Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 21
n Þrívíddarmynd tekin af blaðamanni VF
n Alda er nýr heilsudrykkur sem inniheldur collagen úr þorskroði.
l Codland hefur þróað nýjan sykurlausan og próteinríkan heilsudrykk l Svalasti drykkurinn í dag
l Kynna sér flugnám á skemmtilegan hátt l Skoðuðu fis, flugvélar og fengu óvænta þyrluheimsókn
Heilsudrykkur úr roði!
Taka fyrstu flugskrefin
Hakkit er
heitasti klúbb-
urinn í bænum
Viltu auglýsa
í Sjónvarpi
Víkurfrétta?
Nýjasta hverfi Grindavíkur
rís hratt við höfnina
Alda er nýr heilsudrykkur sem er
væntanlegur í verslanir á næstu dög-
um. Drykkurinn er þróaður af Cod-
land, sem er fullvinnslufyrirtæki í
eigu grindvísku útgerðarfélaganna
Vísis og Þorbjarnar.
Nýi heilsudrykkurinn inniheld-
ur collagen en það er ein tegund
próteins sem við inntöku getur bætt
heilsu og hreyfigetu. Það örvar um-
brot frumna í brjóski og liðum og
stuðlar að endurnýjunarferli í band-
vefjum en efnið styður til dæmis vefi
í beinum, húð, vöðvum og sinum
líkamans. Notkun collagens ýtir
jafnframt undir til dæmis stinna og
slétta húð.
„Það kom upp hugmynd hjá okkur í
Codland að nýta það collagen sem við
erum að framleiða í ferskan og nátt-
úrulegan drykk. Við höfum verið að
búa til collagen úr þorskroði og þróa
það áfram og nú erum við komin með
þessa framleiðslu í hendurnar, sem er
þessi frábæri heilsudrykkur, Alda,“
segir Tómas Eiríksson hjá Codlandi.
Codland hefur unnið að drykknum
í samstarfi við brugghúsið Steðja í
Borgarfirði. Drykkurinn hefur verið
til sölu á veitingastaðnum Hjá Höllu
í Grindavík að undanförnu en er
væntanlegur í verslanir á næstu dög-
um. Alda er ferskur límonaðidrykk-
ur og blandaður með collagen. Hann
er jafnframt sykurlaus og því góður
heilsudrykkur. Tómas vonast því til
að drykkurinn verði staðsettur hjá
annarri heilsuvöru í verslunum en
ekki hjá gosdrykkjum.
Nánar er fjallað um nýja drykkinn í
Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá
ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
21:30. Þátturinn er einnig á vef Víkur-
frétta, vf.is, í háskerpu.
Flugbúðir Keilis voru haldnar í vikunni. Í búðunum gefst
ungu fólki kostur á að kynna sér flugnám á skemmti-
legan hátt. Flugbúðirnar í ár stóðu í fjóra daga, frá 13. til
16. júní. Á dagskránni var heimsókn í flugskýli Icelanda-
ir, ferð á Sléttuna þar sem krakkarnir skoðuðu og frædd-
ust um fisflugvélar, flugvirki, flugumferðarstjóri og flug-
maður komu í heimsókn og sögðu frá störfum sínum, og
haldnar voru kynningar á ýmsu tengdu flugi. Þá fengu
allir nemendur að fara í flughermi hjá Keili. Nemendur
komu víða að, til að mynda frá Egilsstöðum og Laugum.
Flugbúðirnar hafa verið haldnar regluleg í nokkur ár og
er ekkert lát á áhuga unga fólksins á flugi.
Nánar er fjallað um flugbúðirnar í Sjónvarpi Víkurfrétta.
Þátturinn er á dagskrá Sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN á
fimmtudagskvöld kl. 21:30. Þátturinn er einnig á vef Víkur-
frétta, vf.is, í háskerpu.
n Kofabyggðin í Grindavík nýtur mikilla vinsælda. Strax við opnun
byggingarsvæðisins á mánudag voru mættir þangað um 30 krakkar
vopnaðir hömrum og nöglum, tilbúnir til að ráðast í kofabyggingar.
Hjalti Steinar Guðmundsson, umsjónarmaður opinna og grænna svæða í
Grindavík, hefur kofabyggðina á sinni körfu. Hann átti alls ekki von á þess-
um fjölda barna í smíðavinnuna og því þurfti mun meira byggingarefni á
staðinn en gert var ráð fyrir.
Gömul vörubretti eru uppistaðan í byggingarefninu en einnig hefur Hjalti
þurft að fara nokkrar ferðir í BYKO í Reykjanesbæ til að taka með alvöru
timbur til kofabyggina. Nánar er fjallað um kofabyggðina í Grindavík í
nýjasta þætti Sjónvarps Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN og vf.is á fimmtu-
dagskvöldum kl. 21:30. Þátturinn er í háskerpu á vf.is
Sjónvarp Víkurfrétta er vikuleg-
ur magasínþáttur frá Suðurnesj-
um sem sýndur er á sjónvarps-
stöðinni ÍNN og á vef Víkur-
frétta. Þátturinn er á dagskrá á
fimmtudagskvöldum kl. 21:30.
Efnistök þáttarins eru úr menn-
ingu, mannlífi og atvinnulífi
Suðurnesja.
Í hverri viku leggjum við upp með
að bjóða áhorfendum upp á já-
kvæðan og skemmtilegan sjón-
varpsþátt með fjölbreyttum efn-
istökum.
Fyrirtækjum og félagasamtökum
á Suðurnesjum stendur til boða
að kaupa auglýsingapláss inni í
þættinum en auglýsingar eru fyrir
og eftir þáttinn og einnig í hléi í
miðjum þætti. Nánari upplýsingar
um auglýsingar veitir auglýsinga-
deild Víkurfrétta. Hafa má sam-
band með tölvupósti á fusi@vf.is
eða í síma 421 0001.
V I K U L E G U R M A G A S Í N Þ Á T T U R F R Á S U Ð U R N E S J U M Í S J Ó N V A R P I
• Fimmtudagurinn 16. júní 2016 • kl. 21:20 • ÍNN • vf.is
SJÓNVARP
EFNI ÞÁTTARINS Í ÞESSARI VIKU
Spánverjinn Xabier
Þór Tejero Landa
er einn af fjölmörg-
um frumkvöðlum á
Ásbrú. Hann ásamt
fleirum reka saman
Hakkit í Eldey á
Ásbrú. Hakkit er
stafræn smiðja eða
svokallað gjörðapláss sem er öllum
opið. Þar má finna ýmis tæki og tól.
Allt frá þrívíddar prentara og leiser
skurðavél, til sjónvarpa og tölva sem
hafa fundið sér nýtt heimili.
Nánar er fjallað um Hakkit í Sjón-
varpi Víkurfrétta sem er á dag-
skrá sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN á
fimmtudagskvöld kl. 21:30. Þáttur-
inn er einnig á vef Víkurfrétta, vf.is, í
háskerpu.