Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.06.2016, Page 22

Víkurfréttir - 16.06.2016, Page 22
22 fimmtudagur 16. júní 2016VÍKURFRÉTTIR ATVINNA WORK Starfskraftur óskast í hreingerningar / ræstingar Okkur hjá Allt hreint vantar fólk til starfa bæði er um að ræða fullt starf og einnig vinna eftir samkomulagi. Mikil vinna framunda. Hæfniskröfur: Viðkomandi verður að vera amk 18 ára og vera með gild ökuréttindi Áhugasamir sendi tölvupóst á halldor@allthreint.is Requirements: Individuals must be at least 18 years old and have a valid driver’s licens Languages: Icelandic or good English We look for people for full time work (08:00 - 16:00 100%) and also part time If interested please send an e-mail to: halldor@allthreint.is HREINGERNINGAR - RÆSTINGAR - AUKAVINNA STAFF NEEDED MUCH WORK AHEAD Nú er komið EM hlé í flestum deildum í fótboltanum. Grindvíkingar töpuðu gegn HK í 1. deild karla á meðan Keflvíkingar misstu tvívegis niður forskot og gerðu 2-2 jafntefli gegn Fram á heimavelli í vikunni. Með tapinu féllu Grind- víkingar af toppnum niður í þriðja sæti en Keflvíkingar eru taplausir með flest jafntefli deildarinnar í fjórða sæti. Í kvennaboltanum eru Grindvíkingar á toppi B-riðils 1. deildar á meðan grannar þeirra frá Keflavík eru í fimmta sæti. Bæði lið féllu svo úr bikarnum eftir stór töp gegn úrvalsdeildarliðum. Í 2. deild karla eru Njarðvíkingar í fjórða sæti, fimm stigum frá toppsætinu. Í 3. deild karla eru þrjú Suðurnesjalið. Víðismenn dvelja ósigraðir þar á toppnum á meðan Þróttarar og Reynismenn eru í sjötta og sjöunda sæti. Aldur/félag? 11 ára Grindavík. Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? Í 4 eða 5 ár. Hvaða stöðu spilar þú? Ég er markmaður. Hvert er markmið þitt í fótbolta? Í ár er að komast í pressuliðið eða landsliðið á Símamótinu. Þegar ég verð eldri langar mig að komast í meistaraflokk, unglingalandsliðin og svo A-landsliðið. Hversu oft æfir þú á viku? Þrisvar í viku með mínum flokki, einu sinni í viku með 4. flokki og svo einu sinni í viku á markmannsæfingu. Svo æfi ég körfubolta fjórum sinnum í viku. Hver er þinn eftirlætis fótbolta- maður/kona? Sara Björk Gunnarsdóttir í landsliðinu og Guðrún Bentína Frímannsdóttir í Grindavík. Líka Unnur vinkona mín. Áttu þér einhverja fyrirmynd í bolt- anum? Hope Solo markmaður í bandaríska landsliðinu. Hefurðu farið á fótboltaleik er- lendis? Nei ekki ennþá. Hversu oft getur þú haldið á lofti? Ekki mjög oft af því að ég er mark- maður. Hvaða erlenda félag heldur þú upp á? Liverpool og Barcelona. Suðurnesjamenn áberandi í Frakklandi Suðurnesjamenn eru fjölmennir í Frakklandi um þessar mundir þar sem Evrópumótið í knattspyrnu stendur sem hæst. Suðurnesjamenn eiga sína fulltrúa í liðinu. Njarðvíkingarnir uppöldu Arnór Ingvi Traustason og Ingvar Jóns- son eru tiltölulega nýir í liðinu auk þess að hinn uppaldi Grindvíkingur Alfreð Finnbogason hefur verið fastamaður undanfarin ár. Fjölskyldur og vinir liðsmanna hafa að sjálfsögðu fjölmennt til Frakklands. Fjölskylda Arnórs Ingva er meðal ann- arra mætt á staðinn og eru þau að sjálfsögðu vel merkt í búningum af sínum manni. Eins og sjá má á myndinni hér að ofan þá eru systkini og faðir Arnórs öll komin í treyju sem merkt er með númeri og nafni Arnórs - „Traustason #21.“ Trausti faðir Arnórs var í sigurvímu eins og aðrir landsmenn eftir leik og í snörpu spjalli við VF sagði hann að leikurinn hafi verið ótrúleg upplifun. Enginn Suðurnesjapilta fékk að spreyta sig að þessu sinni en stemningin hjá okkar fólki er ósvikin eins og sjá má á eftirfarandi myndum. Fjölskylda Arnórs Ingva í alvöru búningum Arnar Helgi með nýtt Íslandsmet Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárus- son setti í vikunni nýtt Íslandsmet í 400 metra hjólastólaakstri á Evr- ópumeistaramóti fatlaðra í frjálsum íþróttum sem fram fer á Ítalíu þessa dagana. Arnar kom í mark á 1.03.91 mín. sem er tíunda persónulega bæt- ingin hans á árinu og nýtt Íslands- met eins og áður kemur fram. Arnari tókst þó ekki að tryggja sér þátttöku- rétt í úrslitum en hann keppir aftur í dag og þá í 100 metra keppni sem verður jafnframt síðasta keppnin hans á mótinu. Zuzanna sigursæl annað árið í röð Zuzanna Korpak úr GS sigraði 15 til 16 ára flokk telpna á Íslandsmóti í holukeppni unglinga sem fram fór á Þorláksvelli í Þorlákshöfn um liðna helgi. Þetta er annað árið í röð sem Zuzanna sigrar Íslandsmótið í holu- keppni en hún sigraði einnig á Hellu í fyrra. Kinga Korpak, yngri systir Zu- zönnu, hafnaði í þriðja sæti í flokki 14 ára á sama móti. Njarðvíkingar spila í efstu deild kvenna Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur hefur þegið boð KKÍ um að leika í Dominos deild kvenna á komandi tímabili. Síðustu tvö tímabil hefur kvennalið Njarðvíkur leikið í 1. deild en verið í toppbaráttu bæði árin. „Það var aldrei spurning um að taka sætið þegar KKÍ hafði samband við okkur. Stefnan hefur alltaf verið að koma liðinu aftur upp. Við erum með ungt og efnilegt lið og teljum þær fullfærar að spila í efstu deild. Auk þess er leikmannamarkaðurinn opinn og munum við reyna að styrkja liðið á næstu dögum. Ég ræddi stutt- lega við stelpurnar í gær og heyrði strax á þeim að þær voru klárar í þetta verkefni. Það er því spennandi tímabil framundan hjá Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur,“ Segir Róbert Þór Guðna- son, varaformaður deildarinnar, á vef- síðu félagsins. Hope Solo er hetjan Grindvíkingurinn Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er markvörður hjá 5. flokki Grindavíkur. Hún er dugleg að æfa fótbolta en hún er einnig á fullu í körfu- boltanum. Í sumar langar hana til þess að komast í landsliðið eða pressuliðið í Símamótinu. Sigurbjörg Sigurpálsdóttir er fótboltasnillingur vikunnar Boltinn stopp vegna EM SPORTMOLAR

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.