Víkurfréttir - 16.06.2016, Síða 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
Mundi
Hvað er Skúli Mogen-
sen núna að „kokka“?
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
HS Veitur hf leita að öflugum liðsmönnum á
aðalstöðvar fyrirtækisins í Reykjanesbæ
HS Veitur hf voru stofnaðar 1. desember 2008 þegar Hitaveitu Suðurnesja hf var skipt í HS Veitur hf
og HS Orku hf.
HS Veitur hf annast raforkudreifingu á Suðurnesjum, í Hafnarfirði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum
og í Árborg.
HS Veitur hf annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum
hluta á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum.
Starfsstöðvar HS Veitna hf eru fjórar, þ.e. í Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum og í Árborg.
Hjá HS Veitum hf starfa tæplega 90 starfsmenn.
Frekari uppýsingar um fyrirtækið er hægt að nálgast á heimasíðu fyrirtækisins.
Starfssvið
- Rekstur dreifikerfa fyrir neysluvatn og heitt vatn.
- Umsjón með hönnun, verklegum framkvæmdum,
starfsmannahaldi og nýframkvæmdum deildarinnar.
- Umsjón með innra eftirliti, gæðastjórnun og
mælabúnaði deildarinnar.
- Áætlanagerð og uppgjörsmál fyrir deildina.
- Umsjón með tölvustjórnunarkerfum veitukerfanna.
- Tryggja nauðsynlega samvinnu við aðrar deildir.
Starfssvið
- Viðhald og viðgerðir á dreifikerfi, línum og
götulögnum.
- Nýlagnir, tengingar og frágangur.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði verk- eða tæknifræði t.d.
bygginga- eða véla.
- Samskiptahæfni og frumkvæði. Starfið krefst mikilla
samskipta við fólk, bæði innan og utan fyrirtækisins
- Góð enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Hæfniskröfur - nemar
- Grunndeild rafiðnaðar.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum.
Hæfniskröfur - rafvirkjar / rafveituvirkjar
- Sveinspróf í rafvirkjun eða rafveituvirkjun.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð framkoma og lipurð í mannlegum samskiptum.
HS VEITUR HF
www.hsveitur.is
Forstöðumaður hita- og ferskvatnsdeildar
Rafvirkjar / rafveituvirkjar / Nemar
Nánari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson forstjóri í síma 422 5200.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Stefánsson svæðisstjóri í síma 422 5200.
Umsækjendur sækja um starfið á heimasíðu fyrirtækisins www.hsveitur.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2016.
Fyrirtækið Air Chefs Catering verður
opnað í haust, gangi áætlanir eigenda
eftir. Framkvæmdastjóri félagsins er
Magnús Ólafsson. Hjá Air Chefs Ca-
tering verða framleiddar máltíðir fyrir
bæði farþega og flugáhafnir WOW
air og annarra flugfélaga sem fljúga til
Íslands. Einnig mun þar verða fram-
leiddur matur fyrir mötuneyti Airport
Associates og önnur fyrirtæki sem til
félagsins leita.
Eldhúsið verður staðsett í nýbygg-
ingu Airport Associates sem nú er
verið að reisa á flugvallarsvæðinu. Að
Air Chefs Catering standa Airport
Associates, Fjárfestingarfélagið Títan
ehf. í eigu Skúla Mogensen, aðal-
eiganda WOW air, og Fjárfestingar-
félagið MK í eigu Magnúsar og við-
skiptafélaga hans.
Magnús er matreiðslumaður og við-
skiptafræðingur að mennt og var áður
framleiðslustjóri hjá IGS svo hann er
vel kunnugur starfsemi sem þessari.
Að sögn hans verða starfsmenn tíu til
fimmtán til að byrja með og verður
unnið samkvæmt vaktafyrirkomulagi.
„Þetta er mjög spennandi verkefni að
opna eldhús á flugvallarsvæðinu. Nú
er verið að vinna að hönnun eldhúss-
ins í samstarfi við mjög færa aðila.
Það eru margvíslegar kröfur sem þarf
að uppfylla í tengslum við framleiðsl-
una.“
Magnús segir spennandi tíma fram-
undan, enda tækifærin mörg á Kefla-
víkurflugvelli.
Opna flugeld-
hús í haust
●● Spennandi●tímar●framundan●og●mörg●
tækifæri●á●Keflavíkurflugvelli,●segja●eigendur●
Air●Chefs●Catering
Við undirritun samstarfssamnings Air Chefs Catering og Airport Associates á dögunum. Frá vinstri Engilbert Hafsteinsson,
Skúli Mogensen, Magnús Ólafsson, Sigþór Kristinn Skúlason, Elías Skúli Skúlason og Karl Finnbogason.
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitar-
félaga hefur veitt bæjaryfirvöldum í
Reykjanesbæ frest til 10. júlí næst-
komandi til að taka afstöðu til tillögu
nefndarinnar um að bæjarfélaginu
verði skipuð fjárhaldsstjórn. Bæjar-
stjórn Reykjanesbæjar samþykkti á
fundi sínum 7. júní síðastliðinn að
óska eftir fresti þar sem viðræður við
kröfuhafa standa enn yfir.
Reykjanesbær fær
frest til 10. júlí
SJÓNVARP
V ÍKURFRÉTTA
NÝR ÞÁTTUR Í
HVERRI VIKU
INNÁ
WWW.VF.IS/VEFTV
SJÁÐ’ANN Í
HÁSKERPU Í TÖLVUNNI,
SPJALDTÖLVUNNI
EÐA SÍMANUM ÞÍNUM!