Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagurinn 7. júlí 2016 • 27. tölublað • 37. árgangur Heildarvelta fast- eignaviðskipta 770 milljónir á viku n Á Suðurnesjum var 19 kaupsamningum þinglýst vikuna 17. til 23. júní. Þar af voru fimm samningar um eignir í fjölbýli, níu um eignir í sérbýli og fimm samningar um annars konar eignir. Heildar- velta fasteignaviðskipta á Suðurnesj- um þessa viku var 770 milljónir og meðalupphæð á samning 40,6 millj- ónir. Það er óvenju mikið því meðal- tal síðastliðinna vikna á Suðurnesj- um var 31,1 milljón. Til samanburð- ar var meðalupphæð á samning á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku 40,8 milljónir. Þegar búið að fjárfesta í lest fyrir 200 milljónir l Áætlaður kostnaður við lest frá Keflavíkur- flugvelli 100 milljarðar Eignarhaldsfélagið Fluglestin - þróunarfélag var formlega stofnað í byrjun júní um hraðlest á milli Keflavíkurflugvallar og höfuð- borgarsvæðisins. Frá þessu er greint í Fréttatímanum. Áætlað er að kostnaður við verkefnið verði um 100 milljarðar. Þegar er búið að fjár- festa í því fyrir 200 milljónir. Danska verkfræðifyrirtækið Per Aarsleff er stærsti hluthafinn með 23 prósent hlutafjár. Kadeco, þróunarfé- lag Keflavíkurflugvallar á 20 prósenta hlut, Reykjavíkurborg 2,7 prósent og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum 1,5 prósent. Áætlað er að lestarsam- göngur á milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins hefjist innan átta ára. n „Ég er enn að ná áttum, eftir frábærar mótttökur hér heima, á Keflavíkurflugvelli, á Reykjanesbrautinni og á Arnarhóli. Þetta var alveg stórkostlegt og gaman að hafa verið þátttakandi í þessu ævintýri,“ segir Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu en hann kom með íslenska landsliðshópnum til Íslands í vikunni. Víkurfréttir hittu Arnór og ræddu við hann um EM, ný skref í fótboltanum og fleira. Viðtalið er á bls. 14-15 en kappinn er einnig í sjónvarpsþætti vik- unnar hjá VF. Þátturinn er frumsýndur á ÍNN kl. 21.30 í kvöld, fimmtudag og á Kapalrás Reykjanesbæjar en einnig á vf.is í háskerpu. - segir Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu. Nýtt knattspyrnu ævintýri að hefjast í Austurríki hjá „Sam- einingartákni“ Reykjanesbæjar. Gaman að vera þátttak- andi í þessu ævintýri Það verða stórstjörnur íslenskrar kántrýtónlistar sem stíga á svið í Andrews þegar Blik í auga verður flutt í sjötta sinn á Ljósanótt. Söngvarnir Björgvin Halldórs- son, Stefanía Svavarsdóttir, Jóhanna Guðrún og Eyjólf- ur Kristjánsson fara fyrir stórhljómsveit undir stjórn Arnórs Vilbergssonar. Þar er valin maður í hverju rúmi og ljóst að vel verður tekið á því þegar helstu smellir kántrýsins verða fluttir gamlir og nýir í bland við góðar sögur og skemmtilegheit. ,,Við hlökkum svakalega til og erum handvissir um að bjóða upp á skothelda skemmtun með pínulítið öðru sniði en við höfum verið að gera,“ segir Kristján Jóhannsson, sögumaður og einn aðstandenda sýningarinnar. ,,Við fé- lagarnir‚ ég, Arnór og Bubbi erum búnir að liggja sveittir yfir lagalistanum og grisja út 25 lög. Þetta voru ekki nema um 1000 lög sem þurfti að hlusta á til að finna hinn eina sanna tón,“ segir hann. Kristján segir gaman að fara aðeins út fyrir þægindara- mmann og prófa eitthvað nýtt. „Við erum vissir um að þessi tegund tónlistar höfðar vel til gesta okkar sem sumir hafa komið ár eftir ár. Ég vona að við bregðumst ekki aðdáend- um Blikins þetta árið,“ segir Kristján að lokum. Með „sveita“ blik í auga á Ljósanótt ÞAKKLÁTUR EFTIR EINSTAKT björgunarafrek Það var hjartnæm stund þegar félagar úr Björgunarsveitinni Þorbirni í Grinda- vík hittu bandaríska siglingakappann Chris Duff í mötuneyti Stakkavíkur á mánudag og þakkaði þeim fyrir að bjarga lífi sínu. Chris er þaulreyndur sigl- ingakappi og lagði af stað á litlum árabát með seglum miðvikudaginn 29. júní. Ferðinni var heitið frá Grindavík til austurstrandar Grænlands og áætlaði Chris að ferðin myndi taka um tíu daga. - Nánar er fjallað um björgunina og rætt við Chris Duff í miðopnu Víkurfrétta í dag. Þessar hnátur brostu til ljósmyndara Víkurfrétta í skrúðgarðinum í Keflavík í vikunni. Þar nutu þær veður- blíðunnar í hreystitækjum sem þar er að finna. Áfram verður hægt að njóta sumarblíðu næstu daga ef eitthvað er að marka veðurspár. Mynd: pket

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.