Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 14
14 fimmtudagur 7. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR ÍÞRÓTTIR „Ég er enn að ná áttum, eftir frá- bærar mótttökur hér heima, á Keflavíkurflugvelli, á Reykjanes- brautinni og á Arnarhóli. Þetta var alveg stórkostlegt og gaman að hafa verið þátttakandi í þessu ævintýri,“ segir Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu en hann kom með íslenska landsliðs- hópnum til Íslands í vikunni. Knattspyrnumaðurinn úr Reykjanes- bæ komst í heimsfréttirnar þegar hann skoraði sigurmark Íslands gegn Austurríki í riðlakeppninni á Evrópumótinu í knattspyrnu. Sig- urinn fleytti Íslendingum inn í 16 liða úrslitin og mark okkar manns var skemmtilegt í blálok leiksins. Auk Arnórs voru tveir leikmenn sem ólu manninn á Suðurnesjum, Ingvar Jónsson markvörður og Alfreð Finnbogason sem lék stóran hluta af yngri flokkunum í Grindavík. Arnór Ingvi hefur undanfarin tæp þrjú ár leikið sem atvinnumaður hjá Nörrköping í Svíþjóð og varð Svíþjóðarmeistari með þeim á síð- asta ári. Hann vakti athygli fyrir frammistöðu sína og komst í lands- liðshóp Íslands. Arnór ól manninn í Njarðvík og stundaði boltann með yngri flokkunum þar þangað til hann varð 15 ára en þá skipti hann yfir í Keflavík. Þar vakti hann athygli fyrir færni sína á vellinum og var meðal annars valinn efnilegasti leikmaður Pepsi-deildarinnar fyrir þremur árum síðan. Víkurfréttir hittu kappann eftir heimkomuna og hann settist niður í skrúðgarðinum í Keflavík með Páli Ketilssyni, ritstjóra. Hvaða væntingar varstu sjálf- ur með fyrir keppnina? Ekki miklar, til dæmis að fá að spila mikið. Ég kom inn í hópinn bakdyramegin ef við getum sagt svo í lokin, eftir æfingaleikina sem við lékum í vetur og vor. Tryggðir þú þig inn í liðið með frammistöðu þinni þar, þegar þú skoraðir mörk og þóttir standa þig vel? Já, ég held það en svo hafði Lag- erback líka fylgst með mér hjá Norrköping í sænsku úrvals- deildinni á sínum heimaslóðum. Var íslenski landsliðshópurinn bjart- sýnn fyrir mótið? Nú gekk liðinu ekkert mjög vel á lokasprettinum. Liðið hafði sýnt mjög góða frammistöðu í undankeppninni síðustu fjögur ár og þó svo það hafi ekki gengið mjög vel þarna í lokin þá var ljóst að hópurinn var mjög einbeittur um að ná góð- um árangri á Evrópumótinu. Hvað með þátt Lars í undankeppninni? Hann átti stóran þátt í því hvaða árangur náðist. Hann er með mikla reynslu og hafði áður komist með Svía og Nígeríu á stórmót. Hann hefur upplifað þetta áður. Svo spila hans lið árangursríkan fótbolta, passífa knattspyrnu. Íslenska lands- liðið spilaði ekki knattspyrnu eins og Barcelona en við náðum góðum úrslitum. Það var magnað að koma liðinu í úrslit Evrópumótsins. En að mótinu. Fyrsti leikurinn gegn Portúgal. Það var mikil- vægt að tapa ekki þeim leik? Við vorum kannski full varkár- ir. Það var mikið í húfi og smá stress auðvitað í liðinu en við náðum þessu mikilvæga stigi. Og stórstjarnan Ronaldo ekki sáttur? Nei, hann er greinilega mjög tapsár. En svona er fótboltinn, maður vinnur ekki alltaf. Framkoma hans var ekki til fyrirmyndar. Hann er ekki í miklu uppáhaldi eftir þetta. Svo er í raun smá svekkelsi að klára ekki sigur á móti Ungverjum í næsta leik? Já, það var ákveðinn skellur að fá mark á okkur í lokin og okkur fannst við hafa verið rændir þessum tveimur stigum. En þetta efldi okkur fyrir leikinn á móti Austurríki. Svo kemur stóra stundin hjá þér í þeim leik, kemur inn á fyrsta sinn í mótinu og skorar sigurmarkið. Það var eitthvað? „Ég kem þarna inn á á sjötugustu og eitthvað mínútu og fæ höf- uðhögg eftir tíu sekúndur eftir hornspyrnu þegar við skullum saman tveir. Það slapp sem bet- ur fer, smá kúla en allt í lagi. Svolítið svona „velkominn á EM“? Já, það má segja það. En það var erfitt að koma inn á. Við lágum svakalega aftarlega og vörðumst en það gekk og svo var gaman að klára þetta. Þú hljópst eins og fætur toguðu þegar Theódór hljóp upp kantinn með boltann? Ég sá alveg hvað var að fara að gerast og hljóp eins og ég gat upp völlinn. Það var ekkert mjög flókið að ná sendingunni og koma boltanum í netið þegar hann kom fyrir. Og tilfinningin þegar þú sást boltann í netinu? Bara ótrúleg. Ég var svo þreyttur eftir hlaupið að ég lyfti bara höndum og fagnaði. Upplifun sem aldrei gleymist. Þú fékkst allar myndavéla- linsur heimsins á þig? Já, og ekki minnkaði athyglin ein- hvern veginn með þessari lýsingu Gumma Ben sem vakti heimsathygli. En þetta var auðvitað gríðarlega mikilvægur sigur. Við vorum komnir áfram og fengum Englendinga. Jafn- teflið hefði fleytt okkur áfram en þá hefðum við fengið Króata í 16 liða úr- slitum. Mér fannst þeir miklu betri en Englendingar. Svo var mikilvægt að fá lengra frí eftir sigurinn á Austurríki. Upplifun sem aldrei gleymist Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í knattspyrnu: l Komst í heimspressuna þegar hann skoraði sigurmark Íslands gegn Austurríki á Evrópumótinu í Frakklandi. Tekur nýtt skref á atvinnumanns- ferlinum með samningi við Rapid Vín. Ísland fékk meiri hvíld og það skipti miklu máli fyrir Englandsleikinn. Hvaða tilfinning er það að koma inn á völlinn gegn Englandi og eiga við þessa kappa, þessar miklu stjörnur úr enska boltanum? Það var gaman að fá að spreyta sig í Englandsleiknum. Inni á velli með stjörnum sem allir þekkja. Þetta eru stór nöfn og nokkrir sem maður hefur fylgst með í gegnum tíðina en það gleymist þegar maður kemur inn á. Ég horfði í andlitið á Chris Smalling og hugsaði með mér: Þetta er bara fótboltaleikur og ég er að fara að keppa á móti þér. Það voru margir sem voru búnir að afskrifa okkur fyrir Englandsleikinn. Mikið rætt og ritað um það hversu mikill skandall það yrði ef litla Ísland ynni England. Pressan var þannig öll á Englendingum. Það sýndi sig svo í leiknum. Við vorum mjög einbeittir og lékum okkar besta leik. Það var smá sjokk að fá markið í blábyrjun en við náðum að svara því og bæta svo við marki. Mér fannst við ein- hvern veginn með þetta eftir það. Svo kom stóri leikurinn gegn heima- mönnum í 8 liða úrslitum. Það fór ekki alveg eins og við vildum? Þetta var einhvern veginn mjög erfitt að horfa upp á þetta. Við átt- um engin svör. Það gekk allt upp hjá þeim, hælsending upphafið að fyrsta markinu og augljóst víti tekið af okkur þó dómarinn hafi verið mjög nálægt. Það er ekkert hægt að gera við því. Þetta hefði verið allt öðruvísi ef við hefðum haldið þeim í tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Einbeitingarleysi og gjafamörk gerðu út um þetta. Við sýndum þó allt annað í síðari hálfleik. Á heildina litið voru Frakkar bara of stórir fyrir okkur núna. Þeir eru með magnað lið, gríðarlega sterkt á öllum sviðum.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.