Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 07.07.2016, Blaðsíða 8
8 fimmtudagur 7. júlí 2016VÍKURFRÉTTIR „Sæll Chris, við sjáum flugdrekann þinn. Þér verður bjargað. Við erum í 3,5 mílna fjarlægð en á leiðinni.“ Þessi orð úr talstöð björgunarbáts Björg- unarsveitarinnar Þorbjarnar í Grinda- vík glöddu Chris meir en orð fá lýst, að hans sögn. „Þeir kölluðu nafnið mitt í talstöðina en ekki nafnið á bátnum og það veitti mér svo mikinn kraft,“ segir Chris. Á mánudaginn afhendi Chris þeim svo ár sem var það eina sem eftir var af bátnum hans, Northern Reach, og var það hjartnæm stund. Chris átti erfitt með að halda aftur af tárunum og var björgunarsveitar- mönnunum, þeim Smára Þorleifssyni, Gunnari Jóhannssyni, Guðjóni Sig- urðssyni og Helga Einarssyni þakklát- ur fyrir að hafa bjargað lífi sínu. Hann var með nagandi samviskubit yfir því að hafa kallað þá út. Að sama skapi var hann orðlaus yfir fagmennskunni og yfirveguninni sem þeir sýndu við björgunina. Hann hafði óttast að þeir myndu dæma hann fyrir að leggja á hafið í litlum árabát en kveðst þakk- látur fyrir að ekki hafi örlað á neinu slíku. Þegar Chris var bjargað var lík- amlegt ástand hans orðið slæmt og átti hann erfitt með að halda meðvitund. Á marga góða vini á Íslandi Blaðamaður Víkurfrétta hitti Chris rétt áður en hann hélt úr höfn í Grindavík miðvikudaginn 29. júní og svo aftur fimm dögum síðar eftir að honum var bjargað úr sjávarháska. Daginn þegar Chris lagði í hann var hann spenntur fyrir ferðinni sem átti að vera einn leggur af lengra ferða- lagi. Hann sigldi frá Skotlandi áleiðis til Kanada við viðkomu á nokkrum stöðum árið 2011. Árið 2014 sigldi hann frá Færeyjum til Breiðdalsvíkur og skildi bátinn eftir þar hjá vinum sínum sem svo keyrði bátinn þaðan til Grindavíkur fyrr í sumar. Frá Græn- landi hafði Chris svo ætlað sér að sigla til Kanada. „Ég á marga góða vini á Íslandi. Það er fólk sem ég hef kynnst þegar ég hef verið að sigla,“ segir hann. Þeirra á meðal eru Hermann Ólafsson og Margrét Þóra Benedikts- dóttir, jafnan kennd við fiskvinnslu- og útgerðarfélagið Stakkavík ehf. í Grindavík. Þeim kynntist Chris árið 2003 þegar hann fór á kajak í kring- um landið með tveimur vinum sínum og stoppaði í Grindavík. „Þá kom ég til landsins með Norrænu. Á leiðinni kynntist ég frábæru fólki. Við lentum í háska við suðurströndina og vorum mjög fegnir að komast í land í Grinda- vík. Þar hittum við Hermann fyrir til- viljun og hann og Margrét báru okkur á höndum sér, sýndu okkur kindurn- ar sínar, æðarvarpið, fiskverkunina, buðu okkur í mat og hjálpuðu okkur því við höfðum ætlað að gista í tjaldi en veðrið leyfði það eiginlega ekki.“ Með Chris og hjónunum tókust góð kynni en þau höfðu ekki verið í nein- um samskiptum síðan þegar Chris svo birtist allt í einu á dögunum, og þá á leiðinni til Grænlands á árabát. „Þegar ég er að sigla hugsa ég mikið um allt þetta fólk sem ég hef kynnst á ferðalögum mínum. Ég veit að þau fylgjast með í tölvunni og senda mér góðar hugsanir. Þegar ég er í bátnum mínum er ég einn með sjálfum mér en finn að ég er studdur af mörgum. Alls staðar þar sem ég kem hitti ég dásam- legt fólk,“ segir Chris sem segir gaman að hvað fólk verður forvitið þegar lítill bátur kemur á landi í bænum þeirra. „Ef við förum tvær kynslóðir aftur, þá þekkti fólk þetta vel, að róa út á sjó. Mér líður alltaf eins og ég sé velkom- inn og það hlýjar mér um hjartaræt- urnar. Það er svo margt slæmt í gangi í heiminum en á siglingunum mínum er ég heldur betur búinn að komast að því að mikill meirihluti jarðarbúa er einstaklega gott fólk. Þá líður mér eins og það verði allt í lagi. Ætli það megi ekki segja að ferðalögin mín hafi að mestu leiti snúist um að hitta fólk og ÞAKKLÁTUR EFTIR EINSTAKT björgunarafrek Það eina sem eftir af bátnum Northern Reach er þessi ár sem Chris afhenti björgunarsveitarmönnunum á mánudag. Chris er lengst til hægri, við hlið hans Smári Þorleifsson, þá Guðjón Sigurðsson, Helgi Einarsson og Gunnar Jóhannesson. VF-mynd/dagnyhulda l Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík bjargaði siglingakappa á árabát l Hann er nú hættur siglingum Það var hjartnæm stund þegar félagar úr Björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík hittu banda- ríska siglingakappann Chris Duff í mötuneyti Stakkavíkur á mánudag og þakkaði þeim fyrir að bjarga lífi sínu. Chris er þaulreyndur siglingakappi og lagði af stað á litlum árabát með seglum miðvikudaginn 29. júní. Ferðinni var heitið frá Grindavík til austurstrandar Grænlands og áætlaði Chris að ferðin myndi taka um tíu daga. Veðrið leit vel út en það breyttist og eftir að hafa róið við góðar aðstæður í þrjá daga fór róðurinn að þyngjast hjá Chris, í orðsins fyllstu merk- ingu. Veðrið varð verra og straumar úr norðri báru hann af leið. Hann brá á það ráð að dvelja í svefnplássi fremst í bátnum og hafði verið þar í yfir 30 klukkustundir þegar björgunarsveitar- menn úr Grindavík nálguðust á björgunarbátnum Oddi V. Gíslasyni. Viðtal og myndir: Dagný Hulda Erlendsdóttir // dagnyhulda@vf.is Báturinn Northern Reach var ekki stór í sniðum. Fremst í bátnum var pláss til að sofa. Þar dvaldi Chris á meðan hann beið eftir því að veðrið myndi ganga niður. Þegar ljóst var að það myndi ekki gerast ákvað hann að óska eftir hjálp. Áfram beið hann svo í svefnplássinu litla þar til hjálpin barst, samtals í um 30 klukkustundir. Mjög var farið að draga af honum þegar hjálpin barst. Þessa dagana dvelur Chris hjá Margréti Þóru Benediktsdóttur og Hermanni Ólafs- syni í Grindavík. Hann kynntist þeim fyrir 13 árum síðan þegar hann sigldi hringinn í kringum Ísland ásamt tveimur vinum sínum á sjókajak. Þeir kölluðu nafnið mitt í tal- stöðina en ekki nafnið á bátnum og það veitti mér svo mikinn kraft

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.