Víkurfréttir - 01.11.2007, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 44. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Mikill fjöldi boðsgesta var mættur á fimmtudags-
kvöldið í ný salarkynni Bláa
lónsins við formlega opnun
nýrra mannvirkja baðstaðarins.
Með tilkomu nýbygginganna
hafa mannvirki Bláa lónsins
tvöfaldast frá árinu 1999 og eru
nú 5500 fermetrar að stærð.
Forsetahjónin voru sérstakir
heiðursgestir kvöldsins og lagði
Ólafur Ragnar Grímsson horn-
stein að byggingunni auk þess
sem þau afhjúpuðu listaverkið
Klakabönd eftir Rúrí í glæsilegri
og endurbættri verslun Bláa
lónsins.
Byggingarnar eru hinar glæsi-
legustu þar sem fagurfræðileg
hönnun fær að njóta sín í sam-
spili mannvirkjanna við nánasta
umhverfi.
Sigríður Sigþórsdóttir hjá VA
arkitektum er aðalhönnuður
nýbyggingar Bláa lónsins. Hún
hannaði einnig upprunalega
baðstaðinn og hlaut Íslensku
byggingarlistaverðlaunin fyrir
hönnun Lækningalindar Bláa
lónsins.
Sjá einnig í vefsjónvarpi Víkur-
frétta og ljósmyndasafninu á
vf.is.
Mikill mannfjöldi var mættur til að
fagna opnun nýbygginga Bláa lónsins.
VF-mynd: elg.
GLÆSILEGAR
NÝBYGGINGAR
Forsetahjónin afhjúpuðu lista-
verkið Klakabönd eftir Rúrí en það
er staðsett í glæsilegri verslun
Bláa lónsins. VF-mynd: elg
Bláa lónið:
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja barst enn ein glæsileg gjöf á þriðjudag þegar Sig-
urður Wíum Árnason kom færandi hendi með
tvær súrefnissíur og fullkomna sjúklingalyftu.
Tækin eru samtals að verðmæti 1,6 milljóna
króna, en þau gaf hann í minningu sonar síns,
Sveins Wíum, sem hefði orðið þrítugur þennan
dag, en lést fyrir aldur fram eftir langa dvöl á HSS.
Sigurður hafði áður fært stofnuninni tvær súr-
efnissíur að verðmæti 800.000 kr. í mars á þessu
ári, en þær voru til minningar um Svein og
Bertu Sveinsdóttur, eiginkonu Sigurðar, sem lést
einnig fyrir aldur fram eftir dvöl á HSS.
Fulltrúar HSS sögðu gjöfina afar höfðinglega og
að þær ættu eftir að breyta miklu í starfi stofn-
unarinnar.
Höfðingleg gjöf til HSS
VF-mynd/Þorgils - Sigurður, fyrir miðju,
ásamt starfsfólki HSS.