Víkurfréttir - 06.12.2007, Qupperneq 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I 28. ÁRGANGUR
Sameining Sparisjóðsins í Keflavík við Sparisjóð Vest-
firðinga og Sparisjóð Húna-
þings og Stranda var samþykkt
á fundi stofnfjáreigenda SpKef
í Stapa á þriðju dags kvöld.
Sam ein ing in mun ganga í
gegn næstu áramót, en áður
en að því kemur er mögulegt
að skref hafi verið tekin í þá
átt að breyta sparisjóðnum í
hlutafélag.
Geirmundur Kristinsson, spari-
sjóðsstjóri, sagði í samtali við
Víkurfréttir að sú vinna gæti
jafnvel hafist strax uppúr ára-
mótum.
„Stjórnin hefur verið með það
á prjónunum að fara út í hluta-
félagavæðingu og jafnvel hefur
verið rætt um að boða til stofn-
fjárhafafundar strax eftir ára-
mótin til að ákveða framhaldið.
Því er ekki að leyna að hlutafé-
lagavæðing Sparisjóðsins myndi
bæði styrkja og auka verulega
ráðrúm til frekari stækkunar.“
Með því vísar Geirmundur til
þess að reglur um sparisjóði og
eignatilfærslur þeim tengdum
eru afar þungar í vöfum miðað
við almenn hlutafélög þar sem
eignahlutir ganga auðveldlega
manna á milli. Hann fullyrðir
að fyrirhuguð hlutafélagavæð-
ing muni ekki hafa í för með sér
neina eðlisbreytingu á starfsemi
SpKef.
Geirmundur útilokaði heldur
ekki frekari sameiningar við
aðra sparisjóði og sagði að tak-
markið væri að ná sem flestum
sparisjóðum saman í eina heild
undir forystu SpKef. „Við höfum
skrif að öll um spari sjóð um
sem hefðu hugsanlega áhuga á
að sameinast og höfum þegar
fengið svör frá þremur, það er
að segja þeim tveimur sem við
vorum að sameinast hér í kvöld
og svo Sparisjóði Þórshafnar og
nágrennis en svo verðum við að
bíða og sjá með framhaldið.“
Fyrst um sinn verða sparisjóð-
irnir reknir undir merkjum
Spari sjóðs ins í Keflavík og
verður stofnfé í sameiginlegum
sjóði samtals rúmir fjórir millj-
arðar að nafnvirði, en um 8,8
milljarðar miðað við gildandi
uppreiknistuðul.
Á fundinum var einnig kjörin
ný stjórn. Þorsteinn Erlingsson
verður áfram stjórnarformaður
og áfram sitja Kristján Gunn-
arsson og Guðjón Stefánsson.
Þeir Björgvin Sigurjónsson og
Heimir Ágústsson koma nýjir
inn í stjórn.
Viðskipti:
SpKef hlutafélag
eftir áramót?
Berjadagar
Kefl avík • Breiðholt • Húsavík • Reyðarfjörður • www.kasko.is • verð birt með fyrirvara um prentvillur • Gildir 5. til 8. janúar eða meðan birgðir endast
-örugglega ódýrt!
Kefl avík • Breiðholt • Húsavík • www.kasko.is • verð birt með fyrirv ra um prentvillur • Gildir 6.–9. desember eða meðan birgðir endas
199 kr/pk
JARÐARBER
299 kr/kg
VÍNBER, GRÆN
199 kr/pk
BLÁBER
199kr/pk
VÍNBER, RAUÐ
700 gr askja
199kr/pk
BRÓMBER
199kr/pk
RIFSBER
199 kr/pk
HINDBER
Um
br
ot
: A
ug
lýs
in
ga
st
of
a
Ví
ku
rfr
ét
ta
Hö
nn
un
: