Dagsbrún - 01.10.1896, Qupperneq 13
157 —
VITNSBURÐUR UM UNITARa.
Einhver merkasti og um leið mælskasti og frjálslyndasti prest-
urinn í Winnipeg, Dr. Iiugh Pedley, tók sér Unitara fyrir umtals-
efni nýlega hér Congregational kyrkjunni. Menn vissu ræðuefnið á
undan, og ætluðu sumir, að Unitarar mundu nú fá lesna lexíuna;
en ræðan varð öll á annan veg. Ræðumaðurinn hafði augsýnilega
kynt sér vel Unitara, kenningar þeirra og háttsemi, og hafði ekkert
annað en gott til þeirra að segja, og er Jpað því merkara, sem allur
þorri Unitara í Bandaríkjunum klofnuðu einmitt út úr kyrkjufélagi
því (Congregationalistum), sem séra Pedley er prestur í, á líkan hátt
og hinir íslensku Unitarar eru frá evangelisku lútþersku kyrkjunni
komnir.
í ræðu sinni gat séra Pedley þess, að aðalstöðvar Unitara væru
einkum í austurhluta Evrópu (Ungarn), Englandi og Bandaríkjun-
um. Hafa þeir klofnað út úr Presbyterakyrkjunni á Englandi, en
úr Congregationalkyrkjunni í Ameríku. Aðalspurningin sem Uni-
tarismus snýst um, segir séra Pedley að sé þetta: Hvaða skoðun
liaflð þér á Kristi ? Þetta segir Pedley að sé hin þýðingarmesta
spurning heimsins; getur hann svo noklcurra svara upp á spurning
þessa. Þrenningartrúmaðurinn stendur fast á grundvelli játningar
Athanasíusar, en hún liljóðar svo: Hver sem vill sáluhólpinn verða,
hann skal um fram alt halda fast við hina einu réttu trú. Hver
sem ekki hefir hana, hann skal eilíflega glatast.” í trú þessari felst
það, að einn er guð í þrenningu og þrír í einingu, að faðirinn er guð
og sonurinn er guð og heilagur andi er guð, og þó eru ekki þrír
guðir, heldur einn guð. Og er þetta einnig játning hinnar lúþersku
kyrkju, sem íslendingar tillieyra. Auðséð er, að séra Pedley hefir
ekki getað felt sig við þetta, því að svo segir haun : Hið versta við
þessa játning er þó ekki kenningin sjálf, heldur svipuhögg þau, sem
hún reiðir að höfði manna. Mörg önnur svör segir hann að hinir
ýmsu flokkar kyrkjunnar gefi upp á spurning þessa um Krist.
Unitarar svari henni ekki allir á sama veg. Sumir skoði Krist sem
einhverja veru á milli guðs og manna, sumir sem yfirnáttúrlegann
mann, syndlausann og óskeikulann, og enn aðrir sem hvern annan
mann, en sérlega vel gefinn, í trúarlegu tilliti. Er það einkum skoð-
un Unitara nú á dögum. Hinni fyrri skoðun sagði hann að Chann-
ing hefði haldið fram, en Theodor Parker hinni síðari. Það sem
séra Pedley fann að Unitörum, var það, að honum þótti þeir ekki
nógu heitir fyrir trú sinni. En margt kvað hann þá hafa gott afrek-
að. Einkuín taldi hann Unitörum það til gildis, að þeir hefðu ætíð