Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 12

Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 12
12 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Audi Q2 #ótaggandi Spáflúnkunýr Audi Q2 gjörbreytir hugmyndum þínum um bíla og ögrar skilgreiningaáráttunni. Útbúinn eins og þú hugsar hann,mætir hann á malbikið eða mölina, fullur sjálfstrausts en #ótaggandi. Verð frá 4.990.000 kr. #allravega? #blikkboli? #skarpur? Ester Sigurbergsdóttir átti erfitt með að trúa því þegar henni bauðst splunkuný þriggja her- bergja íbúð í Borgahverfinu fyrir slikk í gegnum Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. Þá var hún einstæð móðir og tiltölulega nýkomin úr námi. Að hreppa þessa íbúð varð hennar lukka í lífinu. „Ég hugsa oft hvað þetta myndi gagnast einstæð- um mæðrum í dag.“ „Ég flutti inn þegar blokkin var al- veg ný, sennilega árið 1997. Þá var ég 28 ára gömul, nýskilin og átti strák sem var að komast á skólaaldur. Ég hafði verið á almennum leigumark- aði í eitt ár þegar ég fyrir rælni sótti um húsnæði hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur. Ég var að leita leiða til að þurfa ekki vera á stöðugum flutn- ingum með drenginn en bjóst við að þurfa vera á biðlista í mörg ár. Eftir bara örfáar vikur var mér boðið að koma og skoða íbúð í Grafarvogi. Ég skildi ekkert í að hafa fengið þetta. Það var ógleymanlegt að koma inn í íbúðina. Ég bara trúði þessu ekki.“ Ester segir að íbúðin hafi verið glæsileg og innbúið splunkunýtt. Trúði ekki sínum eigin augum Ester í eldhúsi íbúðarinnar. Sonur Esterar gat skotið rótum í hverfinu og leið vel í barnmörgu umhverfi. Hugmynd arkitektanna Harðar Harðarsonar og Þorsteins Helgasonar var að hanna misstór fjölbýlishús sem mynduðu saman sólríka og skjólgóða garða þar sem börn gátu gengið um án þess að fara yfir götu. Bílum var haldið utan hverfisins. „Ég var búin undir eitthvað allt annað og hefði sætt mig við miklu verri íbúð. Þetta var algjör bónus. Mér fannst svo sem ekki öllu máli skipta að eignast húsnæði, heldur að það væri öruggt að strákurinn minn þyrfti ekki að flytja á milli hverfa.“ Hún segist hafa keypt íbúðina af húsnæðisnefndinni með því að borga lága upphæð út og greiða svo lágar afborganir af hagstæðu láni næstu árin. „Afborganirnar voru bara mjög lágar, ég man ekki alveg hver upphæðin var, kannski 40 þús- und krónur á mánuði. Þetta gerði mér kleift að lifa flottu lífi þarna. Ég var ofboðslega þakklát og undrandi á að fá svona fína íbúð svona fljótt. Þarna bjuggum við sonur minn í tíu ár og seinni hluta þess tímabils var maðurinn minn fluttur inn til okk- ar líka.“ Hún segir lífið í Borgahverfinu hafa verið gott og þar hafi hún eign- ast góða kunningja sem hún þekki enn í dag. Eftir að Húsnæðisnefnd Reykjavíkur var lögð niður gat hún selt íbúðina á almennum markaði og keypt sér nýtt húsnæði. „Þá var ég komin með annað barn og þurfti stærra húsnæði. En við fluttum inn- an hverfisins því þarna höfðum við skotið rótum. Ég fékk því mjög mikið út úr þessu.“ BORGAHVERFIÐ

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.