Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 01.04.2017, Blaðsíða 28
28 | FRÉTTATÍMINN | LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017 MEXICO, Guatemala og Belize 4. - 18. október 2017 Einstök ævintýraferð á slóðir Maya indjána. Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. hin þekkta píramída Tulum, gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Við tökum svo nokkra daga á lúxus hóteli við Karabíska hað þar sem allt er innifalið . VERÐ 498.500.- per mann i 2ja manna herbergi. Innifalið: Flug, hótel allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri. SÍMI: 588 8900WWW.TRANSATLANTIC.IS Kemur ótrúlegasta fólki í splitt Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Flestir stunda liðleikaþjálf-un sem aukadjók. Setjast niður og horfa á aðeins á tærnar á sér eftir æf-ingu, standa svo upp og labba í sturtu,“ segir Einar Carl Axelsson, sjúkranuddari og þjálf- ari hjá Movement Improvement, sem sérhæfir sig í ná fram liðleika og styrk hjá fólki og auka þannig hreyfigetuna. Á leikmannamáli þá kemur hann stirðasta fólki í splitt, á ótrúlega skömmum tíma. „Hjá okkur er liðleikaþjálfunin 50 pró- sent á móti kraftþjálfuninni. Stífu fólki má koma ansi langt á stuttum tíma ef það hefur áhugann í það,“ útskýrir hann. „Við förum oft í splitt og tökum myndir af því. Það er voða gaman. En þetta hefur æðri tilgang en að fara í splitt.“ Þrátt fyrir að stutt sé í grínið hjá Einari er undirtóninn alvarlegur. Enda kom það ekki til af góðu að hann fór að kynna sér öðruvísi hreyfingu. „Ég lenti í snjóbrettaslysi og fimmbraut á mér bakið. Ég var vel tjónaður, allur stífur og stirður. Læstur í kringum bakið og niður í vinstri fótinn. Var algjört hræ, eftir að hafa verið í landsliðinu í tækvandó í mörg ár. Þetta var því mjög erfitt tímabil fyrir mig. Ég gekk á milli lækna og sjúkraþjálf- ara og þeir sögðu mér að ég myndi aldrei geta gert hnébeygjur aft- ur. Ég gæti bara gleymt þessu. Ég var gríðarlega ósammála því og í framhaldinu fór ég að leita að réttu leiðinni til að endurhæfa mig.“ Einar leitaði sjálfur til erlendra þjálfara og kynnti sér aðferðir þeirra sem honum fannst vera eitt- hvert vit í. Þá byrjaði hann í námi í sjúkraþjálfun en skipti svo yfir í sjúkranudd. „Út frá þessu þróað- ist aðferðafræðin hjá Movement Improvement. Ef þú ert með stoðkerfisvanda- mál þá er taugakerfið á þér yfirleitt að læsa niður einhverjum vöðvum til að ná fram stöðugleika og ann- að. Þegar ástandið er þannig er mjög erfitt að verða liðugur. Margir kannast við að hafa verið að teygja og teygja og vakna svo daginn eftir jafn stífir. Þá er eitthvað sem er að láta vöðvann stífna aftur upp.“ En Einar hefur fundið lausn á þessu vandamáli. „Það sem við gerum er að taka fólk í hreyfigrein- ingu og finnum út hvar vandinn liggur. Losum um það. Opnum það sem þarf að opna og styrkjum það sem þarf að styrkja. Eftirleikurinn er í rauninni frekar auðveldur. En að sjálfsögðu veltur þetta líka á því hvort fólk fylgir prógramminu eða er húðlatt.“ Hann segir alla í raun geta orðið liðuga með réttri þjálfun, þrátt fyrir að vera algjörir spýtukallar í upphafi. „Í langflestum tilfellum er hægt að ná mjög miklum bata eða bætingu, hvort sem stirðleikinn er vegna stoðkerfisvandamála eða hvort fólk vilji bara komast í splitt. Það gefur svo mikið fyrir dagleg lífsgæði að vera liðugur og sterkur. Það hætta að vera verkir og vesen. Aðferðafræðin er þannig að við getum verið með byrjendur og lengra komna í sama tíma. Ég segi oft í gríni að ég hafi verið með mömmu mína og keppnisliðið í Mjölni í sama tímanum og það var ekkert vesen. Það er ansi mismun- andi getustigið þar,“ segir hann hlæjandi. Einar getur sveigt sig og beygt án þess að hafa mikið fyrir því. Mynd | Heiða Eftir að hafa fimmbrotið á sér bakið í snjóbrettaslysi fór Einar að leita leiða til að ná meiri bata en læknar spáðu honum. Það tókst heldur betur. Nú er hann kattliðugur og kennir öðrum að ná sama árangri. Við förum oft í splitt og tökum myndir af því. Það er voða gaman. En þetta hefur æðri tilgang en að fara í splitt. Fyrrverandi Framsóknarþingmað- urinn og blómaskreytingameist- arinn Vigdís Hauksdóttir auglýsti fellihýsið sitt til sölu á facebook í vikunni. Ástæðan fyrir sölunni er þó ekki sú að hún sé komin með nóg af Íslandi og ætli að hætta að ferðast um landið. Síður en svo. „Ég er svo sannarlega ekki hætt að ferð- ast um landið fagra. En ég er komin á nýjan sparneytinn rafmagnsbíl og ég treysti honum ekki til að draga fellihýsið,“ útskýrir Framsóknar- konan sem hyggst ferðast um landið með umhverfi- svænni hætti en áður í sum- ar. Aðspurð segist hún þó ekki ætla að pakka saman gamla kúlutjaldinu og setja í skottið. „Nei ætli það – kannski nýti ég mér bara kon- ar gistingu – það eru svo margir verðflokkar og fjölbreytileg gisting í boði,“ segir hún glöð í bragði, enda hlakkar hún til sumarsins. Felli- hýsið er enn óselt og það er einhver lukkunnar pamfíll sem getur eignast þann for- láta grip fyrir rétt verð. Fórnar fellihýsinu fyrir rafmagnsbíl Vigdís er svo sannar- lega ekki hætt að ferðast um landið fagra, en hún hyggst nú gera það með umhverfisvænni hætti. Draumurinn að breiða út Slamm Ljóðaslamm er frumlegt og frábært form til þess að kveða ljóð þar sem tjáningin skiptir öllu. Síðasta fimmtudagskvöld var haldin ljóða­ slammkeppni Borgarbókasafnsins en nýkrýndur sigurvegari á sér þann draum að breiða út slamm á Íslandi. „Það myndast mikil stemning og maður heyrði andköf og mikinn hlátur. Það var mikið pískrað og verið að pæla í ljóðunum og bara öðruvísi stemning en á týpísku íslensku haustljóðakvöldi.“ Þetta segir Jónas Magnús Arnarsson, sigurvegari í ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins. Fjórtán skáld kepptu um sigurinn í þéttsetn- um sal í Tjarnarbíói en viðtökur salarins skáru um hver sigraði en notast var við hávaðamæli. Jónas flutti þrjú ljóð, það þriðja tryggði honum sigurinn í þriðju umferð. En hvað er ljóðaslamm? „Slamm er nýtt form, þetta er ekki rapp og ekki heldur verið að lesa upp ljóð. Það býr svo mikið í flutningnum og kraftinum. Slamm er þannig í raun kröftug og tján- ingarrík leið til að flytja ljóðin þín, segir Jónas. En í slammi er líka bannað að notast við búninga eða leikmuni, flutningur- inn og tjáningin er það sem í raun og veru skiptir máli. „Í gær sá maður allskonar talent, sumir eru bara ótrúlega hlédrægir og hljóðir en eru með það flott ljóð að þau ná til manns. Aðrir eru með háa rödd og báðar leiðir virka og ljóðin komast til skila, segir hann. En í gær var meðal annars kveðið um póli- tísk mál eins og kvennabarátt- una sem og alvarleg persónuleg málefni eins og að vera í neyslu. Jónas er sjálfur orðinn þaul- reyndur í slamminu enda hefur hann tvisvar farið til Noregs til að taka þátt í ljóðaslammi. Nú vinn- ur hann statt og stöðugt að því að flytja inn erlenda slammara til þess að fylla landsmenn innblæstri og á sér þann draum heitastan að breiða út slamm á Íslandi. | bsp Jónas Magnús Arnarsson, sigurvegari í ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins. Mynd | Heiða

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.