Fréttatíminn - 01.04.2017, Side 38
Elsa Einardóttir, markaðsfulltrúi Securitas, segir að Skjáboðinn skapi öruggara vinnuum-
hverfi þar sem hann er settur upp. Mynd | Heiða HelgadóttirSkjáboðinn er íslenskt hugvit. Hann var þróaður í upplýsingadeild Securitas.
„Skjáboðinn ætti að vera á
öllum stöðum þar sem þarf að
taka á móti viðskiptavinum, í móttök-
um fyrirtækja, í bönkum, á hótelum,
í móttökum opinberra stofnana svo
eitthvað sé nefnt.
Skjáboðinn – einföld
öryggislausn fyrir fyrirtæki
og stofnanir
Securitas markaðssetur tækninýjung, skjáboða, sem fyrirtækið hefur þróað og prófað undanfarin misseri.
Unnið í samstarfi við Securitas
Skjáboðinn er einfalt öryggistæki sem hentar öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum sem taka
á móti viðskiptavinum. Hann er
settur upp á vinnutölvur starfs-
manna og með einungis einum
músarsmelli er hægt að kalla
eftir aðstoð.
Skapar öruggara
vinnuumhverfi
„Það tekur innan við eina
sekúndu að senda boð og kalla
eftir aðstoð. Skjáboðinn stuðlar
að því að sá sem sendir boðin
sé eins öruggur og hægt er. Það
er mikið öryggisatriði að geta
kallað eftir aðstoð samstarfs-
manna sinna svo lítið beri á og
vita það að þeir hafa fengið boðin
og bregðist við strax. Það er
ekki síður mikilvægt að vita að
ef neyðarboð er sent þá berst
það til stjórnstöðvar Securitas
sem bregst strax við og sendir
öryggisverði á staðinn,“ segir
Elsa Einarsdóttir, markaðsfulltrúi
Securitas.
„Skjáboðinn ætti að vera á
öllum stöðum þar sem þarf að
taka á móti viðskiptavinum, í
móttökum fyrirtækja, í bönkum,
á hótelum, í móttökum opinberra
stofnana svo eitthvað sé nefnt.
Skjáboðinn skapar öruggara
vinnuumhverfi. Samhliða því
sem skjáboðinn er settur upp hjá
starfsmönnum fræðum við starfs-
fólk um rétt viðbrögð við ógnandi
hegðun og aðstoðum við gerð
viðbragðsáætlana,“ segir Elsa.
Eykur á öryggisvitund
starfsfólks
Skjáboðinn sendir tvenns konar
boð; annars vegar gul boð sem
ætluð eru sem ábending til sam-
starfsmanna um nærveru eða
afskipti annarra starfsmanna.
Oft er nóg til að róa viðskipta-
vin að samstarfsmaður komi
til aðstoðar, og hins vegar
rauð boð sem alltaf eru túlkuð
sem árásarboð. Slík boð kalla
á tafarlausa hjálp samstarfs-
manna en slíkum boðum fylgir
forgangsútkall frá Securitas,
ásamt því að kalla til lögreglu.
„Rauð boð gefa til kynna að
starfsmaður telji sig í mikilli
hættu og slík boð ber sam-
starfsmönnum að taka mjög
alvarlega og koma umsvifa-
laust til aðstoðar. Rauð boð
kalla einnig til öryggisverði frá
Securitas sem kemur á stað-
inn. Mikilvægt er að starfsfólk
viti hvaða atburðarás fer í gang
við rauð boð, og mikilvægt
er að starfsfólk hafi fengið
þjálfun í réttum viðbrögðum.
Securitas þjálfar starfsfólk
fyrirtækja í réttum viðbrögðum
þegar skjáboðinn er settur upp.
Slíkt eykur mjög á öryggisvit-
und starfsfólks og kennir því
að nema mögulega hættu og
bregðast við með réttum hætti.“
Öryggi starfsmanna og
vinnustaða eykst verulega með
skjáboða Securitas, sem er
sítengdur stjórnstöð Securitas.
Samstarf starfsfólks og við-
bragðsafls Securitas er lykill að
auknu öryggi vinnustaðarins.
Íslenskt hugvit
Skjáboðinn er íslenskt hugvit
og þróun frá upplýsingadeild
Securitas. Lausnin hefur verið í
smíðum og prófunum í nokkurn
tíma og er núna tilbúin til
notkunar fyrir viðskiptavini.
Skjáboðinn er einfalt öryggistæki á vinnustöðum
þar sem er tekið á móti viðskiptavinum. Hann er
settur upp á vinnutölvur starfsmanna og með
einungis einum músarsmelli er hægt að kalla
eftir aðstoð.
6 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2017ÖRYGGIÁVINNUSTÖÐUM