Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 14
Fyrir um tuttugu og fimm árum vorum við kynnt fyrir hugtakinu kostnaðarvit-und sjúklinga. Þetta var í
fæðingarhríðum nýfrjálshyggjunn-
ar innan fyrstu ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar, formanns Sjálfstæðis-
flokksins, þeirri sem hann mynd-
aði með Alþýðuflokki Jóns Baldvins
Hannibalssonar.
Hugtakið kostnaðarvitund sjúk-
linga var mótað af sannfæringu um
að ekki væri hægt að byggja upp
heilbrigðiskerfi nema á forsendum
markaðar. Nýfrjálshyggjan boðaði
að aðeins markaðurinn gæti tekið
réttar ákvarðanir. Því hlyti opin-
ber rekstur án beinna tengsla við
markað að úrkynjast; verða skatt-
borgurum kostnaðarsamur, veita
notendum slæma þjónustu og búa
starfsfólki óþolandi skilyrði. Með
því að líkja eftir markaðnum innan
heilbrigðisþjónustunnar mætti hins
vegar lagfæra opinberan rekstur,
alla vega tímabundið þar til heil-
brigðiskerfið yrði að fullu fært úr
opinberri umsjá og yfir til einkafyr-
irtækja.
Okkur var sagt að það væri frá-
leitt að hafa heilbrigðisþjónustu
ókeypis, eins og markmiðið hafði
verið frá því á fyrir seinna stríð.
Fram að nýfrjálshyggjunni var
litið á ókeypis heilbrigðisþjónustu
sem verðugt markmið, ómissandi
hluta hins fullkomna samfélags. En
allt í einu varð ókeypis heilbrigðis-
þjónusta þvert á móti stórskaðleg.
Rökin voru þau að fólk myndi alltaf
misnota það sem væri ókeypis, það
væri lögmál markaðarins. Ef það
kostaði ekkert að láta taka úr sér
hálskirtlana myndu allir rjúka til
og láta taka úr sér hálskirtlana. Ef
sjúklingar þyrftu að borga fyrir að-
gerðina, eða hluta hennar, myndu
hins vegar aðeins þeir sem þyrftu
að láta taka úr sér hálskirtlana óska
eftir slíkum aðgerðum.
Með þessum rökum var hafin
stórfelld gjaldtaka í heilbrigðiskerf-
inu. Það sem áður var greitt með
skattinum var nú að hluta til inn-
heimt á sjúkrabeði. Hluti af tekjuöfl-
un fyrir kostnaði heilbrigðiskerfis-
ins var færður frá skattkerfinu, þar
sem þeir borga mest sem mest eiga
og hæstar tekjur hafa, og færð til
þeirra sem voru sjúkir eða slasaðir.
Þessi tilflutningur á tekjum út
úr hinu hefðbundna skattkerfi yfir
á notendur opinberrar þjónustu
reyndist síðar vera aðdragandi þess
að skattheimta af þeim sem mest
áttu og hæstar tekjur höfðu voru
lækkaðar. Sjúklingagjöldin voru lið-
ur í því að færa skattheimtu frá hin-
um best stæðu til þeirra sem verst
voru settir.
En sjúklingagjöldin voru líka
forsenda þess að hægt væri að
markaðsvæða heilbrigðiskerfið. Þar
sem verðmiði var kominn á hverja
aðgerð, og svo virtist sem neytend-
ur væru að kaupa sér þjónustu, gat
ríkið gert samninga við sjálfstætt
starfandi lækna sem tóku að sér
verkefni sem sjúklingar greiddu að
hluta en ríkissjóður að hluta.
Vegna óbilandi trúar stjórnvalda
á markaðinn og taumlausrar fyrir-
litningar á opinberum rekstri voru
slíkir samningar gerðir án nokkurs
eftirlits. Markaðurinn hlaut alltaf að
hafa rétt fyrir sér. Til hvers ættum
við þá að hafa eftirlit með honum
eða setja á hann kvaðir. Stjórnvöld
vildu beita hörðu aðhaldi á opinber-
an rekstur en nota trúarsetningar
Laissez-faire á markaðinn.
Auðvitað var þetta trúarleg af-
staða fremur en að hún hafi verið
byggð á reynslu eða sannreyndri
þekkingu. Þar sem Markaðurinn
hafði alltaf rétt fyrir sér var til-
gangslaust fyrir okkur mennina að
efast um ákvarðanir hans. Hann er
í raun sannleikurinn og lífið og því
fráleitt að halda að við gætum eitt-
hvað haft yfir honum að segja.
Þegar ráðgjafafyrirtæki McKinsey
gerði athugun á Landspítalanum
og hluta heilbrigðiskerfisins fyrir
nokkrum árum kom í ljós að ís-
lenskir læknar eru fjórum sinnum
líklegri til að fjarlægja hálskirtla úr
sjúklingum sínum en þeir læknar
sem eru næstlíklegastir til að fram-
kvæma slíka aðgerð.
Þetta var ekki raunin fyrir tíma
kostnaðarvitundar sjúklinga. Þá
þekktust engin dæmi þess að fólk
væri að láta fremja á sér óþarfar
aðgerðir eða væri að sturta í sig
lyfjum bara vegna þess að þau voru
ókeypis. Kostnaðarvitundin hindr-
aði heldur ekki fjölgun þessara að-
gerða. Hún var engin hindrun fyrir
þá lækna sem vildu efnast á því að
gera óþarfar aðgerðir í skjóli verk-
samninga við ríkið.
Þessi niðurstaða ætti ekki að
koma neinum á óvart. Banda-
ríkjamenn hafa gengið lengst allra
þjóða í að reka heilbrigðiskerfi sem
business. Þar er rekið dýrasta heil-
brigðiskerfi í heimi með minnstum
árangri. Bandaríkjamenn lifa skem-
ur og við lakari heilsu en þjóðir sem
verja miklum mun lægri upphæð-
um í heilbrigðisþjónustu en þar sem
opinber þjónusta er látin sjá um
verkin.
Það er því óþarfi að fara lengra
með þessa tilraun. Gjaldfrjáls opin-
ber heilbrigðisþjónusta er verðugt
markmið, eins og öllum var ljóst þar
til trúarsetningar nýfrjálshyggjunn-
ar fóru að grafa undan samfélaginu.
Lausnin er ekki að laga ágalla þess
kerfis sem hún bjó til heldur að
snúa aftur til þess tíma að við átt-
um kerfi óspillt af þvæluhugtökum
þessa skaðlega hugmyndakerfis.
Gunnar Smári
EYÐILEGGING
HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTU
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
14 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
Bæjarhraun 14, sími 560 2000 / gaman.is / gaman@gaman.is
Það er ógleymanleg upplifun að fara á góða tónleika.
Gaman Ferðir eru sérfræðingar í að setja saman flottar
tónleikaferðir. Komdu með, það verður bara Gaman!
GAMAN Á
TÓNLEIKUM!
ADELE Í LONDON
Club Wembley 1.-3. júlí ‘17
169.900 kr.
Innifalið í verði er flug, gisting með
morgunverði, 12 kg handfarangur
og Club Wembley miði á tónleikana.
BRUNO MARS Í LONDON
VIP 21.-23. apríl ‘17
129.900 kr.
Innifalið í verði er flug, gisting með
morgunverði, 12 kg handfarangur
og VIP miði á tónleikana.
U2 Í LONDON
7.-10. júlí ‘17
149.900 kr.
Innifalið í verði er flug, gisting með
morgunverði, 12 kg handfarangur
og miði á tónleikana.
ED SHEERAN Í LONDON
VIP 2.-4. maí ‘17
139.900 kr.
Innifalið í verði er flug, gisting með
morgunverði, 12 kg handfarangur
og VIP miði á tónleikana.
CELINE DION Í LONDON
VIP 21.-23. júní ‘17
149.900 kr.
Innifalið í verði er flug, gisting með
morgunverði, 12 kg handfarangur
og VIP miði á tónleikana.
Frá
Frá
Frá
Frá
Frá