Fréttatíminn - 24.03.2017, Qupperneq 14

Fréttatíminn - 24.03.2017, Qupperneq 14
Fyrir um tuttugu og fimm árum vorum við kynnt fyrir hugtakinu kostnaðarvit-und sjúklinga. Þetta var í fæðingarhríðum nýfrjálshyggjunn- ar innan fyrstu ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðis- flokksins, þeirri sem hann mynd- aði með Alþýðuflokki Jóns Baldvins Hannibalssonar. Hugtakið kostnaðarvitund sjúk- linga var mótað af sannfæringu um að ekki væri hægt að byggja upp heilbrigðiskerfi nema á forsendum markaðar. Nýfrjálshyggjan boðaði að aðeins markaðurinn gæti tekið réttar ákvarðanir. Því hlyti opin- ber rekstur án beinna tengsla við markað að úrkynjast; verða skatt- borgurum kostnaðarsamur, veita notendum slæma þjónustu og búa starfsfólki óþolandi skilyrði. Með því að líkja eftir markaðnum innan heilbrigðisþjónustunnar mætti hins vegar lagfæra opinberan rekstur, alla vega tímabundið þar til heil- brigðiskerfið yrði að fullu fært úr opinberri umsjá og yfir til einkafyr- irtækja. Okkur var sagt að það væri frá- leitt að hafa heilbrigðisþjónustu ókeypis, eins og markmiðið hafði verið frá því á fyrir seinna stríð. Fram að nýfrjálshyggjunni var litið á ókeypis heilbrigðisþjónustu sem verðugt markmið, ómissandi hluta hins fullkomna samfélags. En allt í einu varð ókeypis heilbrigðis- þjónusta þvert á móti stórskaðleg. Rökin voru þau að fólk myndi alltaf misnota það sem væri ókeypis, það væri lögmál markaðarins. Ef það kostaði ekkert að láta taka úr sér hálskirtlana myndu allir rjúka til og láta taka úr sér hálskirtlana. Ef sjúklingar þyrftu að borga fyrir að- gerðina, eða hluta hennar, myndu hins vegar aðeins þeir sem þyrftu að láta taka úr sér hálskirtlana óska eftir slíkum aðgerðum. Með þessum rökum var hafin stórfelld gjaldtaka í heilbrigðiskerf- inu. Það sem áður var greitt með skattinum var nú að hluta til inn- heimt á sjúkrabeði. Hluti af tekjuöfl- un fyrir kostnaði heilbrigðiskerfis- ins var færður frá skattkerfinu, þar sem þeir borga mest sem mest eiga og hæstar tekjur hafa, og færð til þeirra sem voru sjúkir eða slasaðir. Þessi tilflutningur á tekjum út úr hinu hefðbundna skattkerfi yfir á notendur opinberrar þjónustu reyndist síðar vera aðdragandi þess að skattheimta af þeim sem mest áttu og hæstar tekjur höfðu voru lækkaðar. Sjúklingagjöldin voru lið- ur í því að færa skattheimtu frá hin- um best stæðu til þeirra sem verst voru settir. En sjúklingagjöldin voru líka forsenda þess að hægt væri að markaðsvæða heilbrigðiskerfið. Þar sem verðmiði var kominn á hverja aðgerð, og svo virtist sem neytend- ur væru að kaupa sér þjónustu, gat ríkið gert samninga við sjálfstætt starfandi lækna sem tóku að sér verkefni sem sjúklingar greiddu að hluta en ríkissjóður að hluta. Vegna óbilandi trúar stjórnvalda á markaðinn og taumlausrar fyrir- litningar á opinberum rekstri voru slíkir samningar gerðir án nokkurs eftirlits. Markaðurinn hlaut alltaf að hafa rétt fyrir sér. Til hvers ættum við þá að hafa eftirlit með honum eða setja á hann kvaðir. Stjórnvöld vildu beita hörðu aðhaldi á opinber- an rekstur en nota trúarsetningar Laissez-faire á markaðinn. Auðvitað var þetta trúarleg af- staða fremur en að hún hafi verið byggð á reynslu eða sannreyndri þekkingu. Þar sem Markaðurinn hafði alltaf rétt fyrir sér var til- gangslaust fyrir okkur mennina að efast um ákvarðanir hans. Hann er í raun sannleikurinn og lífið og því fráleitt að halda að við gætum eitt- hvað haft yfir honum að segja. Þegar ráðgjafafyrirtæki McKinsey gerði athugun á Landspítalanum og hluta heilbrigðiskerfisins fyrir nokkrum árum kom í ljós að ís- lenskir læknar eru fjórum sinnum líklegri til að fjarlægja hálskirtla úr sjúklingum sínum en þeir læknar sem eru næstlíklegastir til að fram- kvæma slíka aðgerð. Þetta var ekki raunin fyrir tíma kostnaðarvitundar sjúklinga. Þá þekktust engin dæmi þess að fólk væri að láta fremja á sér óþarfar aðgerðir eða væri að sturta í sig lyfjum bara vegna þess að þau voru ókeypis. Kostnaðarvitundin hindr- aði heldur ekki fjölgun þessara að- gerða. Hún var engin hindrun fyrir þá lækna sem vildu efnast á því að gera óþarfar aðgerðir í skjóli verk- samninga við ríkið. Þessi niðurstaða ætti ekki að koma neinum á óvart. Banda- ríkjamenn hafa gengið lengst allra þjóða í að reka heilbrigðiskerfi sem business. Þar er rekið dýrasta heil- brigðiskerfi í heimi með minnstum árangri. Bandaríkjamenn lifa skem- ur og við lakari heilsu en þjóðir sem verja miklum mun lægri upphæð- um í heilbrigðisþjónustu en þar sem opinber þjónusta er látin sjá um verkin. Það er því óþarfi að fara lengra með þessa tilraun. Gjaldfrjáls opin- ber heilbrigðisþjónusta er verðugt markmið, eins og öllum var ljóst þar til trúarsetningar nýfrjálshyggjunn- ar fóru að grafa undan samfélaginu. Lausnin er ekki að laga ágalla þess kerfis sem hún bjó til heldur að snúa aftur til þess tíma að við átt- um kerfi óspillt af þvæluhugtökum þessa skaðlega hugmyndakerfis. Gunnar Smári EYÐILEGGING HEILBRIGÐIS- ÞJÓNUSTU lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir 14 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017 Bæjarhraun 14, sími 560 2000 / gaman.is / gaman@gaman.is Það er ógleymanleg upplifun að fara á góða tónleika. Gaman Ferðir eru sérfræðingar í að setja saman flottar tónleikaferðir. Komdu með, það verður bara Gaman! GAMAN Á TÓNLEIKUM! ADELE Í LONDON Club Wembley 1.-3. júlí ‘17 169.900 kr. Innifalið í verði er flug, gisting með morgunverði, 12 kg handfarangur og Club Wembley miði á tónleikana. BRUNO MARS Í LONDON VIP 21.-23. apríl ‘17 129.900 kr. Innifalið í verði er flug, gisting með morgunverði, 12 kg handfarangur og VIP miði á tónleikana. U2 Í LONDON 7.-10. júlí ‘17 149.900 kr. Innifalið í verði er flug, gisting með morgunverði, 12 kg handfarangur og miði á tónleikana. ED SHEERAN Í LONDON VIP 2.-4. maí ‘17 139.900 kr. Innifalið í verði er flug, gisting með morgunverði, 12 kg handfarangur og VIP miði á tónleikana. CELINE DION Í LONDON VIP 21.-23. júní ‘17 149.900 kr. Innifalið í verði er flug, gisting með morgunverði, 12 kg handfarangur og VIP miði á tónleikana. Frá Frá Frá Frá Frá

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.