Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 18
18 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017
þvottavélar
SÍÐUmúla 9 · SÍmi 530 2900
TM
Við seljum
eingöngu
með kolala
usum móto
r
með 10 ára
ábyrgð
HVAÐ ER
ECO BUBBLE?
leysir upp þvottaduft
undir þrýstingi og
myndar kvoðu,
svo duftið leysist upp
á um það bil 15 mín,
í stað 30-40 ella.
7 kg 1400 Sn.
Eco Bubble
AddWash
WW70K5400UW
Eco Bubble , addWash,
Smart Check, Tekur 7
kg, 1400 sn/mín,
afgangsraki 44%,
Kollaus mótor,
10 ára ábyrgð á mótor.
8 kg 1400 Sn.
Eco Bubble
AddWash
WW80K5400UW
Eco Bubble
addWash, Smart
Check, Tekur 8 kg,
1400 sn/mín,
afgangsraki 44%,
Kollaus mótor,
10 ára ábyrgð á
mótor.
8 kg 1600 Sn.
Eco Bubble
WW80J6600aW
Eco Bubble, smart
Check, Tekur 8 kg,
1600 sn/mín,
afgangsraki 43%,
Kollaus mótor,
10 ára ábyrgð á
mótor.
TMTMTM
AddWashAddWash
lágmúla 8 · SÍmi 530 2800
Verð: 79.90
0,-
Verð: 89.90
0,-
Verð: 69.90
0,-
Netverslun
nýr vefur
Umboðsmenn um allt land
Klipptu þetta út og geymdu á ísskápnum
Jú, ég veit vel, að ókeypis er allt það sem er best,
En svo þarf ég að greiða dýru verði það sem er verst.
Úr laginu Tvær stjörnur eftir MegasAllt það sem er ókeypis
Er bankareikningurinn orðinn tómur og þú sérð fram á kreppulegan
lífsstíl síðustu daga mánaðarins? Sem betur fer er Reykjavík
kraumandi af ókeypis og skemmtilegum menningarviðburðum,
áhugaverðum íþróttamótum og fróðlegum uppákomum fram að
mánaðamótum. Hér eru nokkur ráð til að lifa lífinu til fulls án þess að
það kosti krónu. Þér þarf alls ekki að leiðast þó þú eigir enga peninga!
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Sýning um þróun
byggðar í miðborg
Reykjavíkur
Ráðhúsi Reykjavíkur, 23. -26. mars
Á þesssari einstöku sýningu verður
hægt að sjá hvernig byggðin mun þró-
ast í miðborginni á næstunni. Myndir,
módel og líkön af húsum og byggð sýna
bæði stórum og smáum hvernig borgin
er að breytast. Mikið hefur verið lagt í
sýninguna og skoða má myndir og um-
ræður á myllumerkinu #hvaðerígangi
Sýningin er liður í dagskrá Hönnunar-
mars.
Myndlistarsýning
Hafnarborg, laugardaginn 25. mars, kl. 15-17
Prófaðu að fara út fyrir þægindarammann og vera viðstaddur opnun
myndlistarsýningar. Í Hafnarborg í Hafnarfirði opnar sýningin Bók-
staflega sem fjallar um svokallaða konkretljóðlist á Íslandi frá 1957 til
samtímans. Á sýningunni verða verk eftir fjölmarga listamenn og við
opnun hennar munu þau Haraldur Jónsson og Ásta Fanney Sigurðar-
dóttir flytja ljóðagjörning. Hér er kjörið tækifæri til að hitta áhugavert
og litríkt fólk, kafa í fortíð og nútíð ljóðlistar og þiggja léttar veitingar.
Sparileg laugardagsuppákoma sem kostar ekki krónu.
Dansmaraþon
Dansverkstæðið, Skúlagötu 30, 2. hæð, föstudaginn 31. mars, kl. 18-21
Félag íslenskra listdansara fagnar 70 ára afmæli sínu með ýmsum hætti.
Dansmaraþonið er liður í afmælisdagskránni en það er opið öllum þeim
sem vilja heiðra íslenskan listdans. Áhugasamir eru beðnir um að skrá
sig á netfanginu formadur@dance.is fyrir 24.mars. Hver þátttakandi
hefur að hámarki 15 mínútur til umráða en annars er formið frjálst. Hér
er kjörið tækifæri til að fara út fyrir þægindarammann og dansa.
Crossfit-leikar
Íþróttahús HK Digranesi, laugardaginn 1. apríl, kl. 8-19
Ef þú hefur gaman af að dást að öflugu íþrótta-
fólki, eða hefur smitast af Crossfit-æðinu, er prýði-
leg skemmtun að fylgjast með þessu móti. Keppt
verður í einstaklings-, para- og liðakeppni í opnum
flokki. Það er aldrei lognmolla í kringum Crossfit-
-ara, svo hér verður hasars að vænta.
Heimspekispjall
um fjölmiðla og
loftslagsmál
Hannesarholt, þriðjudaginn 28.
mars, kl. 20-21
Guðni Elísson prófessor í Há-
skóla Íslands fjallar um fjölmiðla
og loftslagsmál í fyrra heim-
spekispjalli annarinnar. Heim-
spekispjallið er ókeypis í anda
Páls Skúlasonar og öllum opið.
Ráðgjöf um trjáklippingar
og garðvinnu
Bókasafn Garðabæjar, Garðatorgi 7, laugar-
dag 25. mars kl. 13-15
Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðing-
ur hjá Garðyrkjufélagi Íslands fræð-
ir alla sem hafa áhuga, um
garðvinnu og trjáklippingar.
Bókasafnið er notalegur stað-
ur fyrir alla, unga sem aldna.
Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja
rækta garðinn sinn.
Ef þig langar að gera eitthvað skemmtilegt með börnum er Bíó Paradís góður staður. Á Alþjóð-
legri barnakvikmyndahátíð í Reykjavík sem stendur yfir dagana 30. mars til 9. april verða tvö ókeypis
skemmtileg námskeið fyrir krakka. Og sjálf opnunarhátíðin er einnig ókeypis.
TILVALIÐ AÐ GERA MEÐ BÖRNUM
Opnun
Barnakvikmyndahátíðar
í Reykjavík
Bíó Paradís, fimmtudaginn 30. mars, kl. 17
Allir eru hvattir til að mæta í ofurhetjubún-
ingum. Töframaðurinn Jón Víðis skemmtir.
Opnunarmynd hátíðarinnar er ofurhetju-
myndin ANTBOY 3 sem er síðasta myndin í
hinum geysivinsæla þríleik. Sýningin hefst kl.
18 og hún er talsett á ensku.
Frítt er á opnunarathöfnina og sýninguna.
Áheyrnarprufur fyrir
kvikmyndir
Bíó Paradís, laugardaginn 1. apríl, kl. 10-12
Ólafur S.K. Þorvaldz, leikari og leiklistar-
kennari leiðir námskeið í leiklist með sér-
staka áherslu á hvenig skuli undirbúa sig fyrir
áheyrnarprufur fyrir hlutverk í kvikmynd-
um. Námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum
9–12 ára.
Hvernig verða tölvu-
teiknimyndir til?
Bíó Paradís, laugardaginn 1. apríl, kl. 14
Fyrirlestur um kvikmyndina Lói - þú flýgur
aldrei einn, sem er væntanleg í kvikmynda-
hús um næstu jól. Sagan segir af lóuunga sem
er ófleygur að hausti og þarf að lifa af harðan
vetur til að sameinast ástvinum sínum á ný
að vori. Hilmar Sigurðsson er framleiðandi
myndarinnar. Hann mun á fyrirlestrinum
fara yfir það hvernig tölvuteiknimyndir eru
búnar til og sýna efni úr framleiðslu myndar-
innar.
SuoMu námskeið fyrir fjölskyldur
Norræna húsið, laugardaginn 25. mars kl. 11-14
Boðið er uppá tvennskonar spennandi og ókeypis námskeið
fyrir börn 4 ára og eldri og fullorðna.
Kl. 11-14: „Annar heimur – opnum gluggann“
með Hanna Kerman. Á námskeiðinu verður
heimurinn endurhannaður og litaður upp
á nýtt. Með pappír, skærum, límmiðum og
litríkum filmum verður nýr gluggi inn í annan
veruleika. Á námskeiðinu læra börn að vinna
með liti og form og skapa hönnun sem verður
hengd upp í Norræna húsinu.
Kl. 13 -14: „HABI KIDS - Drauma verkstæði“
með Viivi Lehtonen. Habi Kids er sérstakur
staður fyrir börn innan Habitare hönnunar-
sýningarinnar. Markmiðið er að kenna börn-
um að skapa og hafa áhrif á rýmið sitt.
Skoðaðu einstakt prentverkstæði
Fiskislóð 24, föstudag 24. mars kl. 15-20 og laugardag 25.mars kl. 11-17
Reykjavík Letterpress er óvenju-
legt prentverkstæði sem hefur
sérhæft sig í gamaldags prent-
aðferð. Lausaletrinu er raðað á
hvolf, frá vinstri til hægri, eins
og lög gera ráð fyrir. Sem liður
í Hönnunarmars býðst fólki að
líta inn í töfraheim letterpress
prentunar um helgina. Þú getur komið með góða stutta setningu
eða orð og fengið það prentað fyrir þig á pappír að eigin vali. Þú
færð svo að eiga afraksturinn.