Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 30

Fréttatíminn - 24.03.2017, Blaðsíða 30
30 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 24. MARS 2017 S Ó F A D A G A R 3 Flott sumarföt, fyrir flottar konur stærðir 38 - 58 Sarah Manning sér lögreglukonu, keimlíka sjálfri sér myrta og áttar sig á því að hún er klón. Do Androids Dream of Electric Sheep? Þessi vísindaskáldsaga er skrifuð á kaldastríðsárunum og litast því mjög af því andrúmslofti sem þá ríkti. Sagan gerist í bandarísku borginni San Fransisco eftir kjarn- orkustríð þegar valdaformgerðir eru gjörólíkar því sem við þekkj- um í dag. Trúir þú á töfra? Þessi íslenska skáldsaga eftir okk- ar eigin Vigdísi Grímsdóttir gerist í náinni framtíð. Þar kynnist les- andinn hinni ungu Nínu Björk og fjölskyldu hennar sem búa í litlu þorpi mitt á milli fjalla. Hægt og rólega kynnist lesandinn umhverf- inu í kringum Nínu og áttar sig á því að veröldin er kannski ekki eins einföld og hún virðist í fyrstu. Handan okkar heima Mikilvægur áróður, töff útlit Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@frettatiminn.is Hjónin Tobba Ólafsdótt-ir og Sæþór Örn Ás-mundsdóttir, grafískir hönnuðir og hönnunar-bændur hjá Farvi, fengu nýja risograph prenvél fyrir jól og ákváðu þau að nýta vélina í skemmtilegt verkefni í tengslum við Hönnunarmars. „Við ákváðum að gera sýningu undir yfirskriftinni áróður og að fá nokkra hönnuði til samstarfs við okkur til að hanna spjöld sem við prentuðum. Vélin prentar einn lit í einu og fyrir vikið verður útkoman svolítið öðruvísi prent,“ útskýrir Tobba. En fjöldi hönnuða á öllum aldri, allt frá nemum og upp þaulreynda einstaklinga, setti sig í samband við þau og vildi vera með. „Áróðursveggspjöld ná svo langt aftur og eru kannski ekki eitthvað sem hönnuðir fá oft tæki- færi til að hanna. Fólk mátti gera það sem það vildi, nema auðvit- að ekki vera meiðandi gagnvart einstaklingum. Tobba og Sæþór fengu átján hönnuði til að hanna áróðursplaköt og settu upp sýningu á verkunum í tengslum við Hönnunarmars. Tobba segir þau hjónin hins vegar hafa verið nokkuð viss um að margir myndu taka sama við- fangsefnið fyrir. „Við bjuggust við að fá kannski eitthvað á móti Trump, en það ákvað enginn að eyða púðri í hann og af átján hönnuðum voru sautján hug- myndir. Það er alveg geggjað. Það voru tveir með vegan og við bjuggumst við að nokkrir myndu koma með spjöld sem tengdust matarsóun eða plastnotkun sem snertir marga, en það var bara eitt af hvoru. Spjöldin eru því jafn mis- munandi og þau eru mörg, allt frá því að hvetja fólk til að taka því ró- lega og lifa í núinu upp í leiðbein- ingar um hvernig eigi að þrífa sig á sundstöðum.“ Aðspurð segir Tobba ekkert efni hafa komið á óvart og þau voru alltaf jafn spennt og hissa þegar hugmyndirnar bárust. „Öll urðu þau uppáhöldin okkar,“ segir hún hlæjandi. „Svo er vélin þannig að þó að við sjáum eitthvað á skjá þá líta plakötin allt öðruvísi út þegar búið er að prenta þau. Litirnir blandast saman og svona. Þannig öll urðu þau ennþá flottari.“ Gerð voru þrjátíu eintök af hverju plakati, eitt af hverju verð- ur til sýnis og svo verða þau til sölu. Tobba segir þau vera í þægi- legri rammastærð og geta því farið inn á hvaða heimili sem er. „Þau eru skemmtilega litrík og quirky.“ Plakötin verða til sýnis í Farva, Álfheimum 4, meðan Hönnunar- mars stendur yfir. Tobba og Sæþór eru mjög ánægð með nýju prentvélina og útkomuna á plakötunum. Mynd | Rut Tveir hönnuðir tóku fyrir veganisma. Hér er afrakstur annars þeirra. Ný og skemmtileg útgáfa af leiðbeining-um um þrif á líkama áður en farið er út í sundlaug. Þörf og góð áminning fyrir okkur öll sem lifum og hrærumst í nútímaþjóð- félagi. Vísindaskáldskapur og sögur sem lýsa veröld, gjörólíkri okkar eigin, hafa lengi verið vinsælar. Eitthvað einstaklega heillandi er við það að fylgja eftir söguþræði sem er algjörlega handan okkar heima og kynnast nýrri veröld, hvort sem það er í textaformi eða á sjón- varpsskjá. Fréttatíminn tók saman nokkrar skáldsögur og þætti sem vert er að leggjast yfir um helgina. | bsp The Handmaid’s Tale Hér er á ferðinni bók eftir kanadíska höfundinn Margaret Atwood þar sem sögusviðið er óræð framtíð í ríkinu Gilead þar sem þjónustustúlkur ganga með börn fyrir yfirstéttina. Black Mirror Þeir sem hafa látið þættina Black Mirror ósnerta ættu að hreinsa dagskrána og poppa. Æsispennandi og furðulegir þættir sem rugla algjörlega í áhorfanda. Orphan Black Þessi æsispennandi þáttasería fjall- ar um eitt af stærstu umræðuefn- um okkar tíma, klónin. Þættirnir, sem hófu göngu sína árið 2013, hefjast á því að aðalpersónan ÞJÓNUSTA Í ALMANNAÞÁGU

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.