Víkurfréttir - 20.05.2004, Qupperneq 4
Á síðustu sex má nuðumhefur fíkniefnadeild lö g-reglunnar í Keflavík gert
fíkniefni upptæ k að mark-
aðsvirði um 16 milljó num
kró na. Ef tekið er mið af ví að
efnin sé u blö nduð á ður en au
eru seld á gö tunni er verðmæ ti
eirra ná læ gt 30 milljó num
kró na.
Rúnar Árnason rannsóknarlög-
reglumaður hjá fíkniefnadeild
lögreglunnar í Keflavík segir að
samfélagsleg ábyrgð borgaranna
sé mikil þegar kemur að fíkni-
efnamálum. „ Ef maður hugsar til
skyldu borgaranna um að upp-
l sa um glæpi eða ólöglega starf-
semi þá finnst mér hún vera mik-
il því þetta getur hent okkur öll,
börnin okkar og fólk sem við
þekkjum. etta er samfélagsleg
ábyrgð,“ segir Rúnar meðal ann-
ars í viðtali við Víkurfréttir.
Í hverju felst starf fíkniefnalögreglu-
mannsins?
að felst í því að uppræta ólög-
lega starfsemi sem tengist fíkni-
efnum, s.s. innflutning, sölu og
neyslu fíkniefna. Við sinnum
einnig forvarnarhlutverki og
reynum að aðstoða fjölskyldur
fíkniefnaneytenda og neytend-
urna sjálfa. Í beinu framhaldi af
því þá erum við núna að vinna að
ákveðnu tengslaneti við fólk sem
þekkir til þessara mála hér á Suð-
urnesjunum og við erum að von-
ast til að það gangi eftir að lög-
reglan geti liðsinnt neytendum
betur að koma sér út úr neyslu.
Er markmiðið þá að koma upp eins-
konar hjálparkerfi fyrir fíkniefnaneyt-
endur?
Já, ég hef verið að koma mér í
sambönd við fólk sem þekkir
þennan heim og við erum að
vinna í þeim málum núna.
Hvert er þitt mikilvægasta vinnutæki?
Samskiptin við borgarana skipta
mestu máli í mínu starfi. Mín
vinna byggist algerlega á því að
vera í tengslum við borgarana og
að fólk komi uppl singum á rétta
staði þ.e. til lögreglunnar. Við
erum með símsvara þar sem fólk
getur uppl singar inn nafnlaust.
etta er eina marktæka vinnu-
tólið og það er gríðarlega mikil-
vægt ef fólk veit um einhverja
ólöglega starfsemi, einhvern sem
neytir eða selur fíkniefni að láta
lögregluna vita. að er fyrsta
skrefið í því að við getum farið
að rannsaka mál.
Er algjör nafnleynd til staðar fyrir
þann sem kemur með upplýsingar til
lögreglu varðandi fíkniefnamál?
Eitt það mikilvægasta sem við
byggjum á er að tryggja nafn-
leynd þeirra sem veita okkur
uppl singar og búa þannig til
traust milli lögreglu og borgar-
anna. Ef maður hugsar til skyldu
borgaranna um að uppl sa um
glæpi eða ólöglega starfsemi þá
finnst mér hún vera mikil því
þetta getur hent okkur öll, börnin
okkar og fólk sem við þekkjum.
etta er samfélagsleg ábyrgð.
Vitið þið um einhverja stóra aðila sem
eru að selja fíkniefni hér á Suðurnesj-
um?
að er oft sagt við okkur þegar
við erum að taka aðila með til
dæmis eitt gramm af hassi hvað
við séum að níðast á þessum
litlu. Ef við vissum af þessum
stóru þá værum við náttúrulega
vinna í þeim málum, annað væri
óeðlilegt.
Lögreglan í Keflavík hefur verið að
taka nokkuð mikið af fíkniefnum t.d. á
síðasta ári?
Í samvinnu við yfirstjórn lög-
reglunnar hér í Keflavík var mót-
uð n stefnumörkun í fíkniefna-
málum á Suðurnesjum. Sú
stefnumörkun miðar að því að
sinna þessum málaflokki með
markvissari hætti og að bæta for-
varnahlutverk lögreglunnar. Við
höfum einnig virkjað fleiri vakt-
gangandi lögreglumenn til að
vinna að þessum málum og það
hefur gefist vel að mínu mati.
Hafa þessar breytingar orðið til þess
að meira magn fíkniefna hefur verið
gert upptækt?
Já. Við höfum einnig verið að
bæta samskipti við lögregluna á
Keflavíkurflugvelli, Tollgæsluna
og lögregluembættin í Hafnar-
firði og Reykjavík.
En á síðasta ári og það sem af er
þessu höfum við verið að ná góð-
um árangri með mál sem við
höfum verið að rannsaka og það
hefur s nt sig að þátttaka al-
mennings hefur skipt miklu máli.
Hvað ertu að vinna að mörgum mál-
um núna?
Í kringum 50 mál.
Nú hefur orðið mikil aukning á inn-
brotum á heimili og í fyrirtæki í
Reykjanesbæ. Eru þessi innbrot tengd
aukinni neyslu fíkniefna?
egar verið er að tala um fíkni-
efnavandann sem samfélagslegt
vandamál þá er neyslan einn
þáttur í því vandamáli. Innbrot
eru bein afleiðing langvarandi
fíkniefnaneyslu.
Hefur neysla á Suðurnesjum aukist
upp á síðkastið?
Að mínu mati, án þess að ég hafi
skotheldar sannanir fyrir því þá
finnst mér þjóðfélagið vera
þannig uppbyggt að allt er mun
frjálsara en það var á árum áður.
Tískan, tónlistin og fleiri þættir
eru að höfða til mun frjálsari
hegðunar ungs fólks. É g tel að
neysla sé að aukast. að virðist
einnig vera að ungt fólk sé farið
að neyta fíkniefna áður en það
smakkar áfengi. É g hef fengið
foreldra til mín sem segja að
börnin þeirra hafi aldrei smakk-
að áfengi en verið í neyslu e-
taflna.
Hvað telur þú vera bestu forvörnina?
É g er uppfullur af því að forvarn-
irnar þurfi að byrja heima fyrir
og að foreldrar nálgist unglinginn
með jákvæðum hætti. að er
mikilvægt að foreldrar geri þeim
grein fyrir afleiðingum fíkniefna-
neyslu því það ætlar sér enginn
að verða dópisti. að þarf að
kenna unglingum það sjálfstæði
að segja nei við fíkniefnum. Í
mínum huga skiptir það máli að
forvarnirnar hefjist þegar börnin
eru börn. Mikilvægt er að útivist-
artími sé virtur og að foreldrarnir
viti hvað unglingarnir eru að
gera. að er einnig mikilvægt að
foreldrar fylgist með hegðun
barnanna sinna. að er til dæmis
ekki eðlilegt að unglingur sofi
fram yfir hádegi, sé áhugalaus
um skólann og komi seint heim á
kvöldin. Mikilvægt er að vita í
hvaða félagsskap unglingar eru
og einnig er mikilvægt að for-
eldrar séu í sambandi við aðra
foreldra s.s. foreldra vina barna
sinna.
Texti: Jó hannes Kr. Kristjá nsson
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
MUNDI
„Varnarliðið stelur staurum
á merktri bifreið“ - bls. 6
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamenn:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Þorgils Jónsson (íþróttafréttir),
sími 868 7712, sport@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
➤ Fíkniefnadeild lögreglunnar í Keflavík:
Auglýsingasími
Víkurfrétta er
421 0000
Dóp fyrir 30 milljónir kr. tekið á hálfu ári
- Fimmtíu mál í vinnslu í dag, segir Rúnar Árnason, rannsóknarlögreglumaður
... enda er Varnarliðið
staurblankt miðað við
fréttir síðustu mánaða!
Símsvari fíkniefna-
lögreglunnar í Kefla
vík:
420 2456
Ég er uppfullur af því að
forvarnirnar þurfi að
byrja heima fyrir og að
foreldrar nálgist
unglinginn með já-
kvæðum hætti. Það er
mikilvægt að foreldrar
geri þeim grein fyrir af-
leiðingum fíkniefna-
neyslu því það ætlar sér
enginn að verða
dópisti.
Rúnar Árnason, rannsóknarlögreglumaður
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 13:11 Page 4