Víkurfréttir - 20.05.2004, Qupperneq 8
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Þjónustu- og ábyrgðaraðili fyrir
OPTICAL STUDIO DUTY FREE STORE – LEIFSSTÖÐ
GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR
OPTICAL STUDIO HAFNARGÖTU 45 • SÍMI 421 3811
VORTILBOÐ!
SÓLGLER*
í þínum
styrkleika
fylgja kaupum
á nýjum
gleraugum –
FRÍTT
– út maí!
*Styrkleiki 0 til – 6.00 / 0 til + 4.00,
sjónskekkja til 1.00.
Það hefur verið nóg aðgera í nýjum húsakynn-um Brimborgar við
Fitjar í Reykjanesbæ, en fyrir-
tækið opnaði þar glæsilegan
sýningarsal um miðjan janúar.
Fjölmargir íbúar Suðurnesja aka
á bílum frá Brimborg og segir
Jón S. Sigurðsson sölustjóri
Brimborgar í Reykjanesbæ að
menn séu ánægðir. „ etta hefur
gengið rosalega vel og framar
öllum vonum. Við höfum náð
öllum okkar sölumarkmiðum.
Salan byrjaði hægt en aukningin
hefur verið stöðug. Ástæðan fyrir
því að við komum hingað var sú
að við vildum bæta þjónustu við
íbúa Suðurnesja og eigenda bíla
frá okkur, “ segir Jón en
Brimborg er með umboð fyrir
Ford, Citroë n og Volvo. Jón segir
að Ford Escape sé vinsælasti
bíllinn hjá fyrirtækinu en þessa
dagana standa yfir svokallaðir
franskir dagar. „ Við erum með
mis tilboð í gangi þar sem
slegið er verulega af verði
Citroë n, Ford og Volvo bifreiða,“
segir Jón en í maí verður opið á
laugardögum og sunnudögum frá
klukkan 12 til 16.
Jón góði í DUUShúsum
■ Tónlistar- og sjónvarpsmað-
urinn, Jón Ó lafsson, heldur
áfram ferð sinni um landið og
heldur tónleika í Duushúsum,
Reykjanesbæ, sunnudagskvöldið
23. maí nk. Með honum í för er
Stefán Már Magnússon, gítar- og
bassaleikari. eir flytja lög af
n útkomnum geisladiski Jóns,
sem selst eins og heitar lummur,
auk þess sem eldra efni fær að
fljóta með. Auk þess spjallar Jón
við áhorfendur eins og honum
einum er lagið. Tónleikarnir
hefjast klukkan 21.00 og miða-
verð er 1500 kr.
stuttar
f r é t t i r
➤ Viðskipti og atvinnulíf:
Opið á sunnudögum
í maí hjá Brimborg
Volvo XC 90 er glæsilegasti bíllinn frá Volvo en grunnverð bílsins er 5,5 milljónir
króna. Að sögn Jóns er sex mánaða bið eftir bílnum í Evrópu og 2004 árgerðin er
uppseld fyrir bandaríkjamarkað. Þessi bíll er til sýnis hjá Brimborg í Reykjanesbæ.
Reykjanesbær eignast
Valkosti Árna Johnsen
Árni Johnsen hefur gefiðReykjanesbæ listaverkiðValkosti, sem frumsýnt
var á listsýningu Árna í Gryfj-
unni í DUUS-húsum fyrr á
þessu ári. Þetta var upplýst á
fjölmennum íbúafundi í Njarð-
víkurskóla fyrir stuttu. Áki
Gräns, málarameistari, upp-
lýsti á fundinum að Árni John-
sen hafi falið sér að velja lista-
verkið. - Og að sjálfsögðu valdi
ég dýrasta verkið, sagði Áki á
fundinum.
Ekki er ljóst hvar listaverkið
verður sett upp. Áki vill sjá það
sett upp í Njarðvík en Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri, sagðist frekar
vilja sá verkið sett upp í Reykja-
nesbæ, um leið og hann brosti...
Kíkt fram af
hafnarbakkanum!
Betur fór en á horfðist þegarsementsflutningabíll frá fyr-irtækinu Aalborg Portland
keyrði fram af bryggjunni í Helgu-
vík í síðustu viku. Bíllinn hékk
fram af bryggjunni en ökumaður
bílsins slasaðist ekki og komst af
sjálfsdáðum upp á bryggjuna.
Bíllinn skemmdist töluvert en í hon-
um voru um 30 tonn af sementi, en
Aalborg Portland er með sement-
stanka við Helguvíkurhöfn.
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 12:47 Page 8