Víkurfréttir - 20.05.2004, Side 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Foreldrafé lag Holtaskó laog stjó rn foreldrafé lagsGrunnskó la Grindavík-
ur hlutu á dö gunum hvatning-
arverðlaun Heimilis og skó la
á rið 2004. Þetta er annað á rið
sem Heimili og skó li veita
hvatningarverðlaun en fjö gur
verkefni fengu verðlaun í etta
sinn.
Foreldrafélag Holtaskóla hlaut
hvatningarverðlaunin fyrir for-
varnarverkefnið Ú TLIT gegn
einelti. Í verkefninu, sem skipu-
lagt er af foreldrafélaginu í sam-
vinnu við starfsmenn skólans, er
leitast við að minnka einelti á
skólalóðinni með því að biðja
eldri bekkinga að fylgjast með
börnum yngri deilda skólans á
skólalóðinni. Með þessu móti er
reynt að ná fram virkari tengslum
milli mismunandi aldurshópa og
stuðli þannig að aukinni siðferð-
islegri ábyrgð. Eldri nemendur
kynna verkefnið fyrir yngri nem-
endum í upphaf i annar. eir
sk ra frá hlutverki sínu og kynna
einkennisklæðnað. Í tengslum
við verkefnið hefur verið rætt við
samtökin Regnbogabörn og Geð-
rækt um að koma með fyrirlestur
um einelti og er verkefnið einnig
tengt lífsleikninámi. Í lok hvers
dags er fyllt út sk rsla. 2-4 nem-
endur vinna að forvörnum valda
daga vikunnar, stöðumat eftir
fyrsta mánuð.
Mat dómnefndar var að um væri
að ræða afar athyglisvert verk-
efni. að væri góð fyrirmynd um
jákvætt samstarf foreldrafélags
og skólastarfsmanna þar sem
stuðlað er að heilbrigðum sam-
skiptum barna á msum aldri
ásamt því að börnin læri að taka
ábyrgð á samfélagslegu hlutverki
þeirra í framtíðinni.
Stjórn Foreldrafélags Grunnskóla
Grindavíkur hlaut hvatningar-
verðlaunin fyrir að efla samstöðu
foreldra og skóla og vekja fólk í
bæjarfélaginu til umhugsunar um
uppeldis- og menntamál.
Stjórn Foreldrafélags Grunnskóla
Grindavíkur efndi þann 27. sept.
sl. til fjölskylduveislunnar „ Sól í
Grindavík“ með metnaðarfullri
dagskrá um uppeldis- og mennta-
mál. Markmiðið með veislunni
var að efla samstöðu foreldra og
skóla og vekja fólk til umhugs-
unar um uppeldis- og mennta-
mál. Vettvangurinn var einnig
hugsaður til að foreldrar gætu
komið hugmyndum sínum á
framfæri í „ hugmyndastofum“ .
Á dagskrá voru m.a. tónlistarat-
riði, heitur matur í hléi, framsaga
frá Vigdísi Finnbogadóttur, fyrr-
verandi forseta Í slands, Bergur
Ingólfsson leikari var með erindi,
niðurstöður könnunar nemenda í
10. bekk voru kynntar, kennarar
úr Engjaskóla voru með erindi er
þeir kölluðu „ Fyrir hverja er for-
eldrasamstarf?“ Jón Baldvin
Hannesson skólastjóri hélt erind-
ið „ Hvað þurfa skólar að standa
fyrir - framtíðars n“ og Guð-
bergur Bergsson rithöfundur tal-
aði einnig við gesti. Á meðan á
veislunni stóð var dagskrá fyrir
börnin í íþróttahúsinu.
Mat dómnefndar var að um væri
að ræða frábært framtak dugmik-
illa einstaklinga sem hafi skilað
góðum árangri og haft hvetjandi
áhrif á allt foreldrastarf á landinu.
að er mat dómnefndar að hér sé
um að ræða frábært framtak dug-
mikilla einstaklinga sem hafi
skilað góðum árangri og hafi haft
hvetjandi áhrif á allt foreldrastarf
á landinu með einstaklega góðu
og kraftmiklu framtaki.
➤ Samtökin Heimili og Skóli:
Tvö foreldrafélög á Suðurnesj-
um hljóta hvatningarverðlaun
Frá ritstjórn Víkurfrétta
Þar sem Víkurfréttir eru í dag sólarhring fyrr á ferðinni vegna frídags á morgun,
vannst ekki tími til að hafa blaðið stærra en 32 síður. Vegna þess er talsvert af
efni sem bíður birtingar. Meðal annars bíða nokkrar aðsendar greinar um
skólamál og fl. Þær munu birtast í Víkurfréttum í næstu viku. Bendum á vef
Víkurfrétta sem er uppfærður alla daga vikunnar.
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 15:40 Page 12