Víkurfréttir - 20.05.2004, Blaðsíða 13
KR-ingar koma til Keflavíkur!
-þeir röndóttu töpuðu Íslandsmeistartitlinum suður með sjó
fyrir 40 árum þegar Keflavík varð meistari í fyrsta sinn!
Ísumar verða 40 ár liðin frá því að Keflavík vannsinn fyrsta meistaratitil í knattspyrnu oghyggjast Keflvíkingar minnast þeirra tíma-
móta á uppstigningardag þegar þeir taka á móti
Íslandsmeisturum KR í fyrsta heimaleik sumars-
ins.
Knattspyrnusumarið 2004 er komið í gang og eru
Keflvíkingar í Landsbankadeildinni á ný meðal
þeirra bestu eftir árs veru í 1. deildinni í fyrra.
Við þetta tækifæri verður þess minnst að 40 ár
eru síðan Keflvíkingar urðu fyrst Íslandsmeist-
arar árið 1964, en jafntefli í leik gegn KR tryggði
þeim titilinn. Sá titill markaði upphaf „Gullald-
arinnar“ sem stóð í rúman áratug, eða til 1975
þegar Keflvíkingar urðu bikarmeistarar.
Í upphafi leiksins gegn KR, sem hefst kl. 19.15
þann 20. maí, verða gömlu hetjurnar heiðraðarr
og áhorfendum gefst tækifæri til að hylla þá.
Þar munu KR-ingar sem tóku þátt í leiknum
forðum einnig mæta til að samgleðjast Keflvík-
ingum.
KEFLAVÍKURVÖLLUR - FIMMTUDAGINN 20. MAÍ KL. 19.12.
ÍSLANDSMÓTIÐ Í KNATTSPYRNU - LANDSBANKADEILDIN
Fjölmennum á fyrsta heimaleikinn í Keflavík á
þessu ári gegn Íslandsmeisturum KR.
KEFLAVÍK - KR
KEF LEIKSKRA tilbuin 18.5.2004 14:47 Page 1