Víkurfréttir - 20.05.2004, Síða 16
4
Leikmenn Keflavíkur voru kynntir fyrir les-endum Vísis áður en þeir kæmu til Reykja-víkur til að taka á móti Íslandsmeistaratitl-
inum. Gaman er að skoða þessa umfjöllun í dag
og birtist kynningin hér orðrétt:
Högni Gunnlaugsson er 28 ára og fyrirliði Kefla-
víkurliðsins sigursæla. Högni lék með landsliðinu í
sumar, en hann leikur stöðu miðvarðar. Högni er
málari að atvinnu og tveggja barna faðir.
Kjartan Sigtryggsson er markvörður liðsins. Hann
var í Reykjavík. Var að búa sig undir ferðalag til
Bandaríkjanna að skoða heimssýninguna miklu og
hittum við hann því ekki. Kjartan er mjög snjall
markvörður. Hann er 20 ára og er leigubílstjóri hjá
varnarliðinu.
Grétar Magnússon, bróðir Einars Magnússonar, er
19 ára og hefur leikið sem framvörður í fjórum
leikjum sumarsins. Grétar er einn af rafvirkjum liðs-
ins, en þeir eru hvorki meira né minna en þrír.
Magnús Haraldsson, 22 ára skrifstofumaður hjá
Kaupfélagi Suðurnesja, hefur í sex leikjum í sumar
leikið stöðu hægri bakvarðar. Hann er mjög traustur
og öruggur varnarmaður.
Vinstra megin sem bakvörður er Ólafur Marteins-
son, 21 árs nemi í flugvélavirkjun. Hann sótti æfing-
ar alla leið suður í Keflavík í sumar, enda þótt hann
ynni í Reykjavík. Sýnir þetta þann mikla áhuga sem
ríkjandi er hjá liðinu.
Sigurður Albertsson er einn elsti og reyndasti
leikmaður Keflavíkurliðsins. Hann hittum við þar
sem hann var að slá upp fyrir húsi eins síldarjöfursins
í Keflavík að Háaleiti 35 á næsta leiti við hinar
rammgerðu flugvallargirðingu. Sigurður er 29 ára,
kvæntur maður og hefur verið leigubílstjóri en
hyggst nú selja gljáandi Mercury Comet bifreið sína
og fara að vinna önnur störf.
Karl Hermannsson á hægri
kanti var ein helsta driffjöður
liðsins. Karl er þekktur sem
einn af hinum frægu Keflavík-
ur-„bítlum“. Hann
er 19 ára og nemi í rafvirkjaiðn. Við hlið hans er
stundum annar „bítill“, öllu hárprúðari, Rúnar Júl-
íusson. Rúnar hefur hljómlistina sem atvinnu og
þessa dagana spókar hann sig á breiðgötum Liver-
pool, freistar gæfunnar þar og kynnir sér „kollega“
sína, hina upprunalegu Beatles, sem eru upprunnir
þaðan. Rúnar, sem er 19 ára og mjög drífandi fram-
línumaður, hefur einnig leikið í stöðu miðherja í
sumar.
Jón Jóhannsson, eða „Marka-Jón“ eins og hann er
stundum nefndur, fyrir hina miklu markheppni sína,
var lengst af í sumar meiddur. Af honum stafar alltaf
mikil hætta á leikvelli. Jón var í Kaupmannahöfn
þegar okkur bar að garði. Var þar í skemmtiferð
ásamt félaga sínum.
Einar Magnússon, vinstri innherji, var með í öll-
um leikjum Keflavíkurliðsins í sumar. Hann hefur í
sumar starfað í bæjarvinnunni í Keflavík, en á vet-
urna stundar hann nám í tannlækningum við Há-
skóla Íslands. Einar er 21 árs.
Hægri framvörður var Magnús Torfason, 19 ára.
Við hittum hann ekki í gær. Hann hafði fengið frí
úr byggingarvöruversluninni sem hann starfar hjá og
brá sér í réttir í Borgarfirðinum.
Jón Ólafur Jónsson er vinstri útherji Keflavíkur-
liðsins og sá einstaklingur sem flest mörkin hefur
skorað. Jón er raunar Ísfirðingur og lék með 1.
deildar liði Ísafjarðar meðan það var og hét. Hann
fluttist til Keflavíkur fyrir tæpum tveimur árum og
er nú deildarstjóri í kjörbúð hjá Kaupfélagi Suður-
nesja. Hann er 23 ára gamall.
Hólmbert Friðjónsson er einn af þremur rafvirkj-
um í þessu magnaða liði. Hann lék með í öllum
leikjunum nema einum. Hann er 23 ára og á langan
feril að baki í liðum Keflavikur. Byrjaði að leika 16
ára gamall.
Varamarkmaður Kjartans í sumar var Gottskálk
Ólafsson, en hann lék þó aldrei í 1. deildinni. Gott-
skálk er 21 árs gamall, kvæntur og er frá Sandgerði,
þar sem hann lék áður með Reyni. Hann er húsa-
smiður að iðn.
Gísli Ellerup, bakvörður, er 20 ára. Gísli er við nám
í Kennaraskólanum í Reykjavík á veturna, en á
sumrin starfar hann við lyfjabúð föður síns í Kefla-
vík.
Meistaralið Keflavíkur 1964
Tóku við bikarnum
í sparifötunum!
Keflvíkingar tóku við bikarnum í sparifötunum, fyrstir liða á Íslandi! Þeir höfðu tryggt
sér sigur í 1. deildarkeppninni áuðr en KR og ÍA léku síðasta leikinn í keppninni.
Keflvíkingar fylgdust með leiknum á Laugardalsvellinum og tóku síðan við
verðlaunum hjá Björgvini Schram, þáverandi formanni KSÍ.
Aftari röð f.v.: Geirmundur Kristinsson, Gísli Ellerup, Hólmbert Friðjónsson, Siguðurður Albertsson,
Grétar Magnússon, Einar Magnússon, Magnús Torfason, Jón Ólafur Jónsson, Magnús Haraldsson, Óli
B. Jónsson, þjálfari. Fremri röð f.v.: Rúnar Júlíusson, Karl Hermannsson, Gottskálk Ólafsson, Kjartan
Sigtryggsson, Ólafur Marteinsson, Jón Jóhannsson og Högni Gunnlaugsson.
KEF LEIKSKRA tilbuin 18.5.2004 14:51 Page 4