Víkurfréttir - 20.05.2004, Qupperneq 18
6
Milan Stefáni Jankovic,þjálfara Keflavíkur,líst vel á átök kom-
andi sumars. „Ég held að þetta
verði skemmtilegasta og erfið-
asta sumarið hingað til. Öll lið-
in eru vel búin og með góða
leikmenn og toppaðstöðu þan-
nig að þetta verður skemmti-
legt og gott sumar.” Hann sagði
stöðuna góða í sínum herbúð-
um þar sem engar stórar breyt-
ingar hafa orðið á hópnum.
Milan bætir því við að hann telji
líklegt að Hörður Sveinsson eigi
eftir að vekja mikla athygli á
leiktíðinni. „Hann hefur sýnt í
vetur að hann er mjög góður
leikmaður og mun vonandi
standa sig í sumar.”
Þeir leika sinn fyrsta heimaleik
gegn KR á Uppstigningardag og
sagði Milan að þeir hlökkuðu
mikið til fyrsta heimaleiksins og
sérstaklega að fá að spreyta sig
gegn eins sterku liði og Íslands-
meisturunum. „Ég vona bara að
sem flestir mæti til að styðja okk-
ur.”
Zoran Ljubicic, fyrirliði Kefla-
víkur, segist eiga von á sterkri og
jafnri deild í sumar. „Mér líst vel
á þetta. Það er ekki neitt lið sem
getur bókað stig úr leikjunum í
sumar þó að nokkur lið séu sterk-
ari á pappírunum.”
FH, KR, Fylkir og Akranes eru
sterkustu liðin að hans mati en
hann sagði önnur lið geta alveg
blandað sér í toppbaráttuna. „Þau
eru með mestu breiddina og
besta mannskapinn, en stundum
er það bara ekki nóg.”
Zoran var ánægður með byrjun-
ina hjá sínum mönnum, enda búi
þeir að góðum hóp. „Við byrjum
vel, en tökum hvern leik fyrir sig.
Við höfum ákveðið markmið og
reynum okkar besta. Okkar lið er
ungt og margir að byrja. Við höf-
um stuðning frá fólkinu hér í
bænum og strákarnir eiga eftir að
sýna hvað í þeim býr.”
Sigur í
fyrsta leik
gegn KA
nyrðra!
Keflvíkingar unnu góðan úti-
sigur á KA, 1-2, í fyrsta leik
sumarsins.
Keflvíkingar virtust hálfóstyrkir í
byrjun leiks og voru ekki að
skapa nein tækifæri þrátt fyrir að
vera meira með boltann. Heima-
menn virkuðu frískari og komust
yf ir með marki frá Hreini
Hringsyni á 28. mínútu, og gest-
irnir virtust ekki eiga svar. Í sein-
ni hálfleik tóku Keflvíkingar þó
loks við sér og voru eftir það
mun sterkari. Jónas Sævarson
jafnaði leikinn með sínu fyrsta
marki í efstu deild á 56. mínútu
eftir laglegt spil og á 74. mínútu
skoraði Hólmar Rúnarsson sann-
kallað glæsimark með utanfótar-
skoti á fjærstöngina og tryggði
sínum mönnum sigur í fyrsta leik
þeirra í efstu deild eftir árs fjar-
veru.
Milan Stefán Jankovic var
ánægður með sigurinn sem hann
sagði hafa verið afar mikilvæg-
an. „Við vorum ekki að ógna
neitt í fyrri hálfleik þótt við vær-
um meira með boltann, en í sein-
ni hálfleik fundum við að við
gátum þetta alveg. Margir strák-
anna höfðu ekki spilað áður í úr-
valsdeild og voru kannski svolít-
ið stressaðir í byrjun en það lag-
aðist allt.”
ERFITT EN SKEMMTILEGT
Milan Stefán Jankovic, þjálfara Keflavíkur, er bjartsýnn og býst við að sumarið verði
Leikmannalisti 2004/Keflavík
nr. Aldur Leikir/mörk
Markmenn
1 Magnús Þormar 20 0/0
12 Ólafur Gottskálksson 36 184/0
23 Rúnar Þór Daníelsson 20 0/0
Varnarmenn
3 Guðjón Árni Antoníusson 21 2/0
4 Haraldur Guðmundsson 23 27/0
6 Ólafur Ívar Jónsson 29 29/0
15 Brynjar Guðmundsson 22 4/0
17 Sigurður Grétarsson 23 0/0
20 Hjörtur Fjelsted 24 27/0
21 Sreten Djurovic 30 0/0
22 Einar Daníelsson 22 0/0
Miðjumenn
2 Stefán Gíslason 24 12/0
5 Jónas Guðni Sævarsson 21 9/0
7 Hólmar Örn Rúnarsson 23 35/3
8 Zoran Ljubicic 37 153/17
11 Scott Ramsey 29 81/8
16 Ingvi R. Guðmundsson 20 1/0
Sóknarmenn
9 Þórarinn Kristjánsson 24 90/26
10 Magnús Þorsteinsson 22 45/5
13 Hörður Sveinsson 21 16/2
14 Hafsteinn Rúnarsson 21 3/0
18 Guðmundur Steinarsson 25 93/28
19 Haraldur Axel Einarsson 23 0/0
20. maí Keflavík - KR Keflavíkurvöllur kl. 19:15
27. maí FH - Keflavík Keflavíkurvöllur kl. 19:15
31. maí Fylkir - Keflavík Fylkisvöllur kl. 19:15
7. júní Keflavík - Víkingur Keflavíkurvöllur kl. 19:15
15. júní ÍBV - Keflavík Hásteinsvöllur kl. 19:15
23. júní Keflavík - ÍA Keflavíkurvöllur kl. 19:15
28. júní Grindavík - Keflavík Grindavíkurvöllur kl. 19:15
8. júlí Keflavík - Fram Keflavíkurvöllur kl. 19:15
13. júlí Keflavík - KA Keflavíkurvöllur kl. 19:15
18. júlí KR - Keflavík KR-völlur kl. 19:15
25. júlí Keflavík - FH Keflavíkurvöllur kl. 19:15
8. ágúst Keflavík - Fylkir Keflavíkurvöllur kl. 18:00
16. ágúst Víkingur - Keflavík Víkingsvöllur kl. 19:15
22. ágúst Keflavík - ÍBV Keflavíkurvöllur kl. 18:00
29. ágúst ÍA - Keflavík Akranesvöllur kl. 18:00
12. september Keflavík - Grindavík Keflavíkurvöllur kl. 14:00
18. september Fram - Keflavík Laugardalsvöllur kl. 14:00
KEF LEIKSKRA tilbuin 18.5.2004 14:52 Page 6