Víkurfréttir - 20.05.2004, Side 19
7
Ísumar teflir Keflavík framkvennaliði í meistaraflokkií fyrsta sinn i áraraðir.
Undanfarin ár hafa Suður-
nesjastúlkur leikið sameigin-
lega undir merkjum RVK í 1.
deildinni og komist nálægt því
að vinna sig upp í efstu deild.
Síðasta haust var tekin ákvörðun
um að sameina liðin undir hatti
Keflavíkur og Ásdís Þorgilsdótt-
ir, landsliðsmaður og margfaldur
Íslandsmeistari með KR var ráð-
in þjálfari.
Hópur Keflavíkurstúlkna er ung-
ur og á framtíðina fyrir sér. Fyrsti
leikur stúlknanna í sumar er 1.
júní þegar þær mæta Skagastúlk-
um í bikarkeppn-
inni.
Ásdís segir stemmninguna góða
í hópnum. „Að vísu vorum við
sennilega að missa eina stelpu í
meiðsli allt sumarið sem er
slæmt fyrir okkur því við erum
með svo lítinn hóp fyrir. En við
erum að fá Lilju Írisi aftur þannig
að það verður gott fyrir liðið og
mun þétta hópinn. Við erum líka
að leita að leikmönnum að utan
til að bæta við hópinn. Ég veit að
við eigum að eiga fullan séns á
því að komast upp ef að við
náum að halda öllum heilum. Ef
við höldum þessum hópi sem við
erum með og náum
jafn-
vel að bæta við þá er ég mjög
bjartsýn.”
Ásdís segir að ef stelpurnar kom-
ist upp þurfi þær að styrkja liðið
verulega. „Ef við förum upp
þurfum við að bæta við okkur.
Það er engin spurning. Þá mun-
um við reyna að fá aftur stelpurn-
ar sem eru að spila í bænum og
eru frá Suðurnesjum. Það er
Nínu Ósk, Björgu Ástu og Ingu
Láru og fleiri. Við verðum að
bæta við okkur ef við ætlum að
reyna að standa í þesum
liðum. Ef
við komumst upp ætlum við okk-
ur ekki niður strax heldur verð-
um við komnar til að vera. Metn-
aður minn liggur allaveganna þar
en það er spurning hvort stjórn-
in fylgi eftir. Það skiptir
miklu máli þvi að við
þurfum peninga til að
gera þetta að veru-
leika.”
Það býr feykimik-
ið í þess-
um stelpum og ef þær fá stuðn-
ing bæjarbúa munu þær geta gert
góða hluti á næstu árum.
Kraftmiklar Keflavíkurstúlkur í fyrstu deild!
Keflavíkurstúlkur!
Efri röð:Hulda Jónsdóttir, Inga Lilja
Eiríksdóttir, Alexandra Cruz, Kristín
Ólafsdóttir, Hrefna Guðmundsdóttir,
Helena Steinsdóttir, Ágústa Heiðdal,
Ester Rúnarsdóttir, Bryndís Valdi-
marsdóttir.
Neðri röð: Björg Ásbjörnsdóttir,
Guðny Þórðardóttir, Ásdís Þorgils-
dóttir, Jóna Júlíusdóttir, Bergey Sig-
urðardóttir.
Landsbankinn býður
á völlinn!
Landsbankinn leggur áherslu á að
unga fólkið skili sér á leikina í Lands-
bankadeildinni í sumar og býður því
öllum viðskiptavinum sínum 16 ára
og yngri á völlinn í sumar.
Leikmannamál Keflvíkinga hafa verið nokkuð í umræðunni síðan í
vetur þar sem þeir leituðu sérstaklega að markmanni í stað Ómars Jó-
hannssonar sem flutti til Svíþjóðar eftir síðustu leiktíð. Liðið leitaði
fanga utan landsteinanna þar sem markmenn frá Danmörku, Þýska-
landi og Serbíu voru skoðaðir, en að lokum sneri Ólafur Gottskálksson
aftur á fornar slóðir og mun verja mark Keflvíkinga ásamt hinum unga
og efnilega Magnúsi Þormar.
Komnir: Guðmundur Steinarsson, Ólafur Gottskálksson og Sret-
en Djurovic.
Farnir: Ómar Jóhannsson og Kristján Helgi Jóhannsson.
Saga Keflavíkur í efstu deild er
löng og hefur liðið unnið til fjög-
urra Íslandsmeistaratitla og
tveggja bikarmeistaratitla.
Gengi liðsins hefur þó verið mis-
jafnt síðustu ár og féllu þeir úr
efstu deild árið 2002 eftir tíu ára
setu. Útlegðin var þó ekki löng
þar sem Keflvíkingar unnu 1.
deildina með sannfærandi hætti
síðasta sumar. Þeir töpuðu aðeins
einum leik. Vistin þar virðist
hafa gert leikmönnunum gott þar
sem ungu strákarnir komu sterkir
inn og virðast svo sannarlega
reiðubúnir í átökin í Lands-
bankadeildinni.
Gengi Keflavíkur á undirbún-
ingstímabilinu var ágætt þar sem
þeir unnu flesta æfingaleiki sína
og voru taplausir í Deildarbik-
arnum áður en þeir féllu óvænt
úr keppni í 8-liða úrslitum.
Stutt stopp
í fyrstu
deild
Litlar breytingar á liðinu
Ólafur Gottskálksson
og Sreten Djurovic.
Keflvíkingar og nágrannar Njarðvíkur í hörkurimmu í 1. deildinni í fyrra.
Keflavík vann báða leikina.
KEF LEIKSKRA tilbuin 18.5.2004 14:52 Page 7