Víkurfréttir - 20.05.2004, Page 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið
Wiley til
Njarðvíkur
Körfuknattleikslið Njarðvíkur
hefur gengið frá samningum
við Bandaríkjamanninn Troy
Wiley. Wiley lék 10 leiki með
KFÍ á síðasta tímabili og stóð
sig frábærlega. Hann skoraði
tæp 30 stig í leik, tók 16 frá-
köst og varði meira en 4 skot.
Leikmaðurinn er gríðarlega
öflugur og verður liðinu mikill
styrkur.
á hafa kapparnir Friðrik Stef-
ánsson, Páll Kristinsson og
Halldór Karlsson allir ákveðið
að leika áfram með Njarðvík-
ingum á næstu leiktíð. essar
fréttir gleðja stuðningsmenn
Njarðvíkinga eflaust þar sem
þeir eru allir lykilleikmenn og
er ljóst að Njarðvíkingar ætla
sér stóra hluti á næsta ári.
Fyrsta umferð Lands-bankadeildarinnar fórfram um helgina og náðu
Suðurnesjaliðin, Grindavík og
Keflavík, ágætum árangri.
Grindavík gerði jafntefli við
ÍBV á heimavelli, en Keflvík-
ingar gerðu enn betur og unnu
góðan útisigur á KA 1-2.
GRINDAVÍK-ÍBV 1-1
Grindavík og Í BV skildu jöfn, 1-
1, á Grindavíkurvelli á sunnu-
daginn.
Gestirnir höfðu frumkvæðið
framan af leiknum og komust
yf ir á 56. mínútu, en Grétar
Hjartarson jafnaði á 70. mínútu
með glæsilegu skoti úr auka-
spyrnu sem Birkir Kristinssson
átti ekki möguleika á að verja.
Zeljko Sankovic, þjálfari Grind-
víkinga, var ekki alveg sáttur við
úrslitin. „ Við erum auðvitað ekki
ánægðir með að ná bara einu
stigi, en þetta var harður leikur.
Í BV voru líka að spila mjög vel.
Áhorfendur voru sennilega að fá
meira út úr leiknum en leik-
mennirnir og þjálfararnir því
leikurinn var opinn og skemmti-
legur með fullt af færum og ég
held að við getum búist við slíku
í sumar.“
KA-KEFLAVÍK 1-2
Keflvíkingar unnu góðan útisigur
á KA, 1-2, í sínum fyrsta leik í
sumar.
Hreinn Hringsson kom KA yfir á
28. mínútu og stóðu leikar
þannig í hálfleik. Keflvíkingar
komust loks í gang í seinni hálf-
leik og jöfnuðu með marki frá
Jónasi Sævarssyni á 56. mínútu.
Hólmar Rúnarsson skoraði svo
sigurmarkið á 74. mínútu.
Milan Stefán Jankovic var
ánægður með sigurinn sem hann
sagði hafa verið afar mikilvægan.
„ Við vorum ekki að ógna neitt í
fyrri hálfleik þótt við værum
meira með boltann, en í seinni
hálfleik fundum við að við gát-
um þetta alveg. Margir strákanna
höfðu ekki spilað áður í úrvals-
deild og voru kannski svolítið
stressaðir í byrjun en það lagaðist
allt.“
N jarðvíkingar unnu stór-an og sannfærandiheimasigur, 4-0, á liði
Breiðabliki í fyrstu umferð 1.
deildarinnar i knattspyrnu á
mánudagskvöld. Eyþór
Guðnason skoraði fyrsta mark
Njarðvíkinga á 30. mínútu og
Alfreð Jóhannsson bætti öðru
við rétt fyrir leikhlé. Í seinni
hálfleik innsiglaði Gunnar
Sveinsson frábæran sigur með
tveimur mörkum á 54. og 70.
mínútu.
essi sigur var frekar óvæntur
vegna þess að Breiðablik er talið
eitt sterkasta liðið í deildinni og
er talið líklegt til að vinna sig
upp í úrvalsdeild, en Njarðvík-
ingar s ndu og sönnuðu að þeir
eru til alls líklegir.
V íðismenn unnu góðanheimasigur á Aftureld-ingu, 3-2, í fyrsta leik
liðsins í 2. deildinni á sunnu-
daginn.
Afturelding skoraði fyrsta mark-
ið þegar um 10 mín. voru liðnar
af leiknum, en Víðismenn jöfn-
uðu fyrir leikhlé með góðu marki
frá Birni Vilhjálmssyni.
Björn var aftur á ferðinni um
miðjan síðari hálfleik og kom
heimamönnum í 2-1 og virtist
sigurinn í höfn, en á 87. mín.
skoruðu þeir sjálfsmark og jöfn-
uðu leikinn 2-2.
Við þetta slysamark efldust Víð-
ismenn og sóttu hart að marki
Aftureldingar. eir uppskáru
laun erfiðisins á 90. mín þegar
Rafni Vilbergssyni var brugðið
innan teigs. Rafn tók spyrnuna
sjálfur og kom Víði í 3-2.
Næsti leikur Víðis er á sunnu-
daginn er þeir mæta KFS kl.
15:00 á Garðsvelli.
Njarðvík rústar Breiðablik!
VÍÐIR BYRJAR VEL
Daglegar íþróttafréttir á vf.is
Tölvupóstur íþróttadeildar: sport@vf.is
Beinn sími blaðamanns: 421 0003
Þorgils Jónsson GSM: 868 7712
Keflavíkursigur á KA - jafnt í Grindavík
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 12:49 Page 22