Víkurfréttir - 20.05.2004, Síða 25
VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ 2004 I MIÐVIKUDAGURINN 20. MAÍ 2004 I 25
➤ Íþróttasvæði Mána við Mánagrund:
Nýr dómaraskúr
á keppnissvæðið
Nýjum dómaraskúr hefurverið komið upp áMánagrund, keppnis-
svæði hestamannafélagsins
Mána en Íslandsmót fullorð-
inna verður haldið á svæðinu
dagana 23. til 25. júní í sumar.
Miklar framkvæmdir eru fyr-
irhugaðar á svæðinu þar sem
búist er við um 2000 manns til
Reykjanesbæjar í tengslum við
mótið.
Tvennir feðgar, Bragi Guð-
mundsson og sonur hans Svein-
björn og Axel Vilhjálmsson og
sonur hans Óli gerðu skúrinn upp
sem er gamall vinnuskúr frá
Reykjanesbæ. Verkið hafa þeir
unnið í sjálfboðavinnu en þeir
eru allir miklir hestamenn. Byko
gaf allt efni í skúrinn.
Að sögn Braga breytir skúrinn
allri aðstöðu á keppnissvæði
Mána. „Í skúrnum verður að-
staða fyrir ritara og annað starfs-
fólk svæðisins,“ sagði Bragi í
samtali við Víkurfréttir.
Um næstu helgi verður haldið
innanfélagsmót Mána og segir
Bragi að með því sé í raun verið
að prófa svæðið.
Skúrnum komið fyrir á sinn stað. Smíðafeðgar f.v. Axel Vilhjálmsson,
Óli Axelsson, Bragi Guðmundsson og Sveinbjörn Bragason.
Nemendur í 4. Á ígrunnskóla Grinda-víkur urðu Íslands-
meistarar í flokki 7 til 12 ára
í Línudansi á Íslandsmeist-
aramótinu í dansi sem fram
fór í Laugardalshöll þann 1.
maí sl.Alls tóku sjö hópar
þátt í keppninni í þeirra ald-
ursflokki.
Danskennarinn þeirra er Harpa
Pálsdóttir og sagði hún í sam-
tali við Víkurfréttir að krakk-
arnir hefðu staðið sig mjög vel
í æfingum og í keppninni.
„Krakkarnir æfðu línudans fyr-
ir árshátíðina og í framhaldinu
var ákveðið að við myndum
fara á Íslandsmeistaramótið í
dönsum. Þetta eru hæfileika-
ríkir krakkar sem hafa gaman
af því að dansa,“ sagði Harpa
en danskennsla er skylda í
grunnskóla Grindavíkur. Kenn-
ari krakkanna er Ásrún Krist-
insdóttir.
Íslands-
meistarar í
Línudansi
Frábærir dansarar í 4. Á í Grindavík
21. tbl. 2004 umbrot 18.5.2004 13:33 Page 25