Víkurfréttir - 06.04.2017, Side 2
2 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
KVÖLD- OG HELGARVINNA Í BOÐI.
UPPLÝSINGAR Á STAÐNUM,
FÖSTUDAGINN OG MÁNUDAGINN FRÁ KL. 15:00 TIL 17:00.
REYKLAUS VINNUSTAÐUR
ATVINNA
■ Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs hefur ákveðið að hleðslustöð fyrir rafbíla
verði sett upp við Íþróttamiðstöðina í bænum. Áætlaður kostnaður við upp-
setninguna er 250.000 krónur.
Hleðslustöðin var gjöf frá Orkusölunni sem undanfarna mánuði hefur fært
öllum sveitarfélögum landsins slíka stöð að gjöf. Verkefnið kallast „Rafbraut um
Ísland“.
Fermingarbörn í nútíð og fortíð
●● Sýning●um●fermingar●opnuð●í●Bókasafni●Reykjanesbæjar
■ Sýning um fermingar var opnuð í Bókasafni Reykja-
nesbæjar síðasta föstudag. Á sýningunni eru ýmsir
munir úr fórum íbúa í Reykjanesbæ, tengdir fermingum.
Þá eru einnig hópmyndir af fermingarbörnum liðinna
ára frá nokkrum kirkjum á Suðurnesjum. Meðal ger-
sema á sýningunni eru einnig gömul fermingarföt og
fermingargjafir. Þá eru einnig sýnd þar viðtöl við íbúa
Reykjanesbæjar um fermingardaginn.
Sýningin mun standa fram yfir hvítasunnu.
Rafhleðslustöð við
Íþróttamiðstöðina í Garði
STJÓRN KEILIS HEFUR
FUNDAÐ 100 SINNUM
■ Sá sögulegi atburður gerðist mánudaginn 3. apríl að stjórn Keilis hélt sinn
100. fund frá stofnun. Keilir var stofnaður þann 4. maí 2007 og verður því
10 ára í vor. Þá verður efnt til mikillar afmælishátíðar í Andrews, samkomu-
húsinu á Ásbrú. Á þessum 10 árum hefur margt gerst í sögu Keilis. Tæplega
3.000 manns hafa verið útskrifaðir frá skólanum. Á þessu ári er áætlað að Keilir
velti um einum milljarði króna og um 150 manns koma að verkefninu með
ýmsum hætti. Stjórnarformaður frá upphafi er Árni Sigfússon og er hann fjórði
frá vinstri á meðfylgjandi mynd. Aðrir í stjórn eru frá vinstri: Guðbjörg Kristins-
dóttir (Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis), Kjartan Eiríksson
(Kadeco), Ásgeir Margeirsson (HS Orka), Árni Sigfússon, Einar Jón Pálsson
(SSS), Sæunn Stefánsdóttir (Háskóli Íslands), Halldór Jónsson (Háskóli Íslands)
og Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri. Á myndina vantar Ásdísi Kristins-
dóttur (Orkuveitu Reykjavíkur).
Vörubretti og hjólbarðar
brunnu inni í kísilverinu
■ Eldsvoði varð í kísilveri United Silicon á sjöunda tímanum á þriðjudags-
kvöld. Eldur logaði í vörubrettum og hjólbörðum inni í kísilverinu, að sögn
varðstjóra hjá slökkviliði Brunavarna Suðurnesja. Mikinn reyk lagði frá
kísilverinu um tíma. Orsök eldsins var sú að málmur skvettist á vörubrettin
og hjólbarðana.
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað til og voru slökkvibílar og sjúkra-
bílar sendir á vettvang. Starfsmönnum United Silicon tókst að slökkva eldinn
áður en slökkviliðið kom á vettvang en það slökkti í glæðum á gólfi verksmiðj-
unnar. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var eldurinn minniháttar.
Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefnastjóri í
Bókasafni Reykjanesbæjar, að leggja loka-
hönd á undirbúning sýningarinnar sem
var opnuð á föstudaginn í síðustu viku.
VF-mynd/dagnyhulda
Erfiðleikar við rekstur United Silicon
hafa áhrif á fleiri en íbúa Reykjanes-
bæjar en greint var frá því í Mark-
aðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins,
í gær að Almenni lífeyrissjóðurinn
hafi ekki enn staðfest tæplega 350
milljón króna fjárfestingu í kísilverk-
smiðju Thorsil í Helguvík, þrátt fyrir
að stjórn hafi samþykkt fjárveitinguna
fyrir ári síðan. Verksmiðjan hefur um
nokkurt skeið verið á teikniborðinu
og mun rísa við hlið verksmiðju Uni-
ted Silicon, gangi áætlanir eftir. Fram-
kvæmdastjóri sjóðsins sagði í samtali
við Markaðinn að ýmsar forsendur
hafi breyst, meðal annars hafi lífeyris-
sjóðir nú víðtækari fjárfestingarheim-
ildir og komið hafi fram neikvæðar
fréttir vegna verksmiðju United Sili-
con. Starfsleyfi Thorsil var kært í mars
síðastliðnum af Landvernd, Náttúru-
verndarsamtökum Suðvesturlands og
íbúum í Reykjanesbæ.
Erfiðleikar United Silicon hafa
áhrif á fjármögnun Thorsil