Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 3
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K U R F L U G V Ö L L U R
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 4 . A P R Í L 2 0 1 7
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
R A F I Ð N A Ð A R M A Ð U R C N S
T Æ K N I Þ J Ó N U S T U F L U G L E I Ð S Ö G U S V I Ð S
Helstu verkefni eru uppsetning, viðgerðir og eftirlit með
aðflugsbúnaði á Keflavíkurflugvelli. Í boði er krefjandi og
skemmtilegt starf í spennandi starfsumhverfi hjá ört
vaxandi fyrirtæki. Um er að ræða sumarstarf.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af rafeindavirkjun eða sambærilegum
störfum æskileg (gæti hentað nema í rafeindavirkjun)
• Góð tölvukunnátta
• Þekking á tölvubúnaði
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Geta til að vinna vel í hóp og undir álagi
Upplýsingar um starfið veitir Halldór Sigurðsson, rekstrarstjóri
CNS kerfa, í netfanginu halldor.sig@isavia.is.
Isavia hlaut gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC 2015 og 2016.
Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins
sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls
án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað.
F L U G V A L L A R S T A R F S M E N N
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Helstu verkefni eru eftirlit með flugbrautum og
flugvallarmannvirkjum, eftirlit og viðhald á vélbúnaði
og tækjum, umsjón og framkvæmd snjóruðnings
og hálkuvarna, björgunar- og slökkviþjónusta, viðhald
flugvallar og umhverfis hans og ýmis tækjavinna.
Hæfniskröfur:
• Aukin ökuréttindi
• Stóra vinnuvélaprófið er kostur
• Reynsla af snjóruðningi og hálkuvörnum er æskileg
• Reynsla af slökkvistörfum er kostur
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur,
t.d. bifvélavirki/vélvirki eða önnur iðnmenntun
• Góð tök á íslenskri og enskri tungu,
ásamt grunntölvukunnáttu
Hringur er flugumferðarstjóri í flugstjórnarmiðstöðinni
í Reykjavík. Hann er hluti af góðu ferðalagi.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af
góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur.