Víkurfréttir - 06.04.2017, Blaðsíða 8
8 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf skv. 5. grein samþykktar
sjóðsins.
• Kynning á samningi um sameiningu Eftirlaunasjóðs
Reykjanesbæjar og Brúar lífeyrissjóðs starfsmanna
sveitarfélaga.
Aðalfundur sjóðsins verður haldinn fimmtudaginn
27. apríl nk. kl 17:30. Fundurinn verður haldinn í sal bæjar-
stjórnar, Tjarnargötu 12.
Eftirlaunasjóður Reykjanesbæjar
AÐALFUNDUR 2017
Stjórn Eftirlaunasjóðs Reykjanesbæjar
Sjóðsfélagar og lífeyrisþegar eru hvattir til að mæta vel
og stundvíslega.
Akurskóli fékk góða útkomu úr
mati Menntamálastofnunar
●● Tóku●matinu●sem●góðu●tækifæri●til●að●sjá●hvernig●skólinn●stendur
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@vf.is
Menntamálastofnun framkvæmir
svokallað ytra mat á grunnskólum hér
á landi og síðasta haust var Akurskóli
í Innri-Njarðvík einn þeirra skóla
sem metinn var. Niðurstaða matsins
var sú að af 23 liðum sem kannaðir
voru, voru fjórtán metnir mjög góðir
og taldir fyllilega samræmast lýsingu
um gæðastarf. Sjö liðir voru metnir
þannig að flestir þættir þeirra væru
í samræmi við lýsingu á gæðastarfi.
Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri
Akurskóla, segir niðurstöðuna mikið
gleðiefni og staðfesta að í skólanum sé
unnið gæðastarf. „Við tókum matinu
sem skemmtilegri áskorun og góðu
tækifæri til að sjá hvar við stæðum.
Okkur grunaði að við myndum
koma ágætlega út en niðurstaðan var
óvanalega góð. Að sama skapi er líka
dýrmætt að fá ábendingar um það
sem betur má fara,“ segir hún. Til að
mynda fékk Akurskóli athugasemd
um að valgreinar væru of fáar og í
haust verður bætt úr því með val-
hópum í 1. til 7. bekk og með sér-
stökum vinnustundum þar sem nem-
endur í 8. til 10. bekk geta valið hvaða
námsgrein þeir vilja leggja áherslu á í
tvo tíma á viku. Nú þegar hafa margir
skólar á Íslandi farið í gegnum ytra
mat og stefnt er að því að allir skólar
á landinu fari í gegnum slíkt mat á
næstu árum.
Bæta kennslu með markvissu mati
Ytra mat Menntamálastofnunar fer, í
stuttu máli sagt, þannig fram að skóla-
stjórnendur senda stofnuninni ýmis
gögn, svo sem skólanámskrá, starfsá-
ætlun, allar reglur skólans, verklags-
reglur, handbækur starfsmanna og
fleira. Tveir fulltrúar Menntamála-
stofnunar dvelja svo í skólanum í fjóra
daga og sækja um þrjátíu kennslu-
stundir og meta gæði kennslunnar.
„Fulltrúarnir komu í skólann ákveðna
daga en fóru fyrirvaralaust í kennslu-
stundir. Þeir tóku mörg viðtöl, bæði
við yngri og eldri nemendur og við
formann nemendafélagsins, fulltrúa
úr skólaráði og fulltrúa foreldra,“ segir
Sigurbjörg. Þá voru einnig tekin viðtöl
við skólastjórnendur, starfsmenn og
kennara.
Gróa Axelsdóttir, aðstoðarskólastjóri
Akurskóla, bendir á að í skólanum
hafi það verklag verið tekið upp haust-
ið 2014 að skólastjórnendur fylgist
með einni og einni kennslustund. „Þá
sitjum við stjórnendur til hliðar og
fylgjumst með. Eftir kennslustund
hrósum við kennurum fyrir það sem
vel var gert og bendum á það sem
betur má fara. Við fengum þau við-
brögð frá Menntamálastofnun að
þetta verklag væri til fyrirmyndar.“
Gróa segir það sömuleiðis tilfinningu
skólastjórnenda í Akurskóla að verk-
lagið hafi bætt kennslu hjá kennurum.
„Þetta er skref sem sífellt fleiri skólar
eru að stíga, að meta kennsluna mark-
visst.“
Þakkar góðum hópi starfsfólks
Fyrir utan einkar góða niðurstöðu
í matsþætti tengdum stjórnun fékk
Akurskóli góða niðurstöðu varðandi
alla þætti er snerta nám og kennslu.
Sigurbjörg segir það einstaklega góð-
um hópi starfsfólks að þakka. „Suður-
nesin eru þannig svæði að við skóla-
stjórnendur finnum mjög hratt fyrir
þenslu og þá leita kennarar í önnur
störf. Við erum með hátt hlutfall leið-
beinenda við kennslu en þeir eru mjög
vel menntaðir. Margir þeirra eru í
kennaranámi og hafa lokið námi af
ýmsu tagi og auðvitað nýtist það við
kennsluna.“ Gróa bendir á að starfs-
mannahópurinn sé ungur og mót-
tækilegur fyrir breytingum og að það
komi sér vel hvern dag í Akurskóla.
Sólveig Silfá Guðmundsdóttir, deildarstjóri, Sigurbjörg Róbertsdóttir, skóla-
stjóri, Gróa Axelsdóttir, aðstoðarskólastjóri. VF-mynd/dagnyhulda
verður laugardaginn
20. maí og
miðasala á tix.is
Laugardaginn 8. apríl
Dj-FúZi frítt inn
MUGISON
Fish House - Bar & Grill
erum á facbook Léttöl
Eldri borgarar
baka og bresta
í söng
■ Eldey, kór eldri borgara á Suður-
nesjum, heldur kökubasar föstudag-
inn 7. apríl klukkan 15.30 í Kjarna
Park-Inn hótelsins Hafnargötu 57.
Basarinn byrjar með því að bresta í
söng. „Vonumst til að sjá sem flesta,
nú er tækifærið að kaupa gott með-
læti fyrir páskana. Hlökkum til að sjá
ykkur, kát og hress,“ segja söngfugl-
arnir í Eldey í tilkynningu.
Á 157 km hraða
án ökuréttinda
●● ●Ökumaðurinn●hafði●
aldrei●tekið●bílpróf
■ Ökumaður sem lögreglan á
Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan
akstur um helgina hafði aldrei öðlast
ökuréttindi. Bíll hans mældist á 157
km hraða á Reykjanesbraut þar sem
hámarkshraði er 90 km á klukku-
stund. Þetta var í annað sinn sem
hann var stöðvaður við akstur án
ökuréttinda.
Nokkrir ökumenn til viðbótar voru
kærðir fyrir of hraðan akstur um helg-
ina. Lögregla hafði afskipti af öku-
mönnum sem höfðu gerst brotlegir
í umferðinni, meðal annars með því
að virða ekki stöðvunarskyldu, tala í
farsíma án handfrjáls búnaðar og aka
án þess að hafa öryggisbelti spennt.
Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af
nokkrum bílum því ekki hafði verið
farið með þá í skoðun eða þeir ekki
tryggðir.
Glæfraakstur
undir áhrifum
og án réttinda
■ Ungur ökumaður sem lögreglan
á Suðurnesjum hafði afskipti af
um helgina vegna gruns um fíkni-
efnaakstur hafði aldrei öðlast öku-
réttindi. Hann hafði ekið glæfralega
eftir Reykjanesbraut og var hann
færður á lögreglustöð þar sem sýna-
tökur og skýrslutaka fóru fram.
Vegna ungs aldurs ökumannsins var
barnaverndarnefnd kunngert um
málið. Auk ökumannsins unga hafði
lögregla afskipti af öðrum öku-
manni sem grunaður var um fíkni-
efnaakstur og öðrum sem grunaður
var um ölvun við aksturinn.
Grænt - Mjög gott verklag sem samræmist fyllilega lýsingu um gæðastarf.
Ljósgrænt - Gott verklag, flestir þættir í samræmi við lýsingu á gæðastarfi.
Gult – Viðunandi verklag, uppfyllir viðmið um gæðastarf að mörgu leyti, einhverjir
mikilvægir þættir sem þarfnast úrbóta.
Rautt – Óviðunandi verklag, uppfyllir ekki viðmið um gæðastarf í mörgum