Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 13
13fimmtudagur 6. apríl 2017 VÍKURFRÉTTIR Dagur Funi Brynjarsson: Við búum á eyju þar sem það væri rosa- lega auðvelt að vera með lokuð landa- mæri og strangt eftirlit með innflutningi. En er það samt eitthvað sem við viljum? Vissu- lega er mikilvægt að hafa gott eftirlit með hlutunum, en viljum við ekki að fólk geti flutt til landsins í von um betra líf? Viljum við ekki að landið okkar sé fjölbreytt og fullt af mismun- andi menningu? Fyrir mér er allavega mikilvægt að vera með opin landa- mæri. Móttaka flóttamanna er einnig umdeilt mál. Við getum ekki tekið við öllum, en mér finnst sjálfsagt að taka við þeim sem við getum. Fólkið er í neyð, á flótta frá stríðsástandi í eigin heimalandi og þarf aðsetur. Hvað myndum við vilja að gert væri fyrir okkur ef við værum í þeirra sporum? Laufey Ebba Eðvarðsdóttir: -Mér finnst ekki sniðugt að opna öll landamæri. Á Íslandi er há skatt- byrði og með því erum við að greiða fyrir ákveðinn þjónustustuðul í landinu, til dæmis varðandi heilbrigðisþjónustu, þó þar megi margt bæta. En greiðslu- þungi sem hvílir á einstaklingum er ekki mikill þegar upp koma veikindi miðað við mörg önnur lönd og þá er, að mínu mati, ekki sniðugt að hver sem er geti komið hingað bara til þess að nýta sér þessa þjónustu án þess að hafa lagt eitthvað til samfélagsins. Það er samt sem áður eftirsóknarvert að búa í samfélagi þar sem fjölbreytileiki í menningu og mannlífi er mikill og því myndi ég ekki vilja loka landa- mærum alveg. Þó finnst mér að Ísland eigi að taka við fleiri flóttamönnum og aðstoða betur þá sem hingað eru komnir við að aðlagast samfélaginu. Til að draga þetta saman þá finnst mér mikilvægt að hafa stýrt flæði fólks á milli landa. Gunnar Dagur Jónsson: -Þegar ég sá alla þessa umfjöllun um Trump og að hann hafi lokað landa- m æ r u m B an d a - ríkjanna fyrir ákveðnum þjóðernum varð ég vonsvikinn og sár, en á sama tíma mjög ánægður með það að búa á Íslandi og að vera Íslendingur. Við gerum vel í því að taka á móti flótta- fólki. Samt sem áður þarf að bæta alla umgjörð í kringum þetta ferli. Við getum tekið á móti mun fleiri flótta- mönnum en þurfum að stíga varlega til jarðar þar. Við höfum frábært tæki- færi til þess að læra af Svíum í þessum málum, af mistökum og því sem var rétt gert. Opin landamæri Íslands eru einnig mjög mikilvæg fyrir alþjóða- viðskipti okkar og það að geta stundað inn- og útflutning. Margrét Edda Arnardóttir: -Mér finnst mjög sniðugt að vera með opin landamæri, þar sem það auðveldar okkur að ferðast milli landa sem eru í Schengen og við þurfum ekki að fara í gegnum vega- bréfaeftirlit, sem sparar okkur tíma og biðraðir. Að vera með opin landamæri auðveldar einnig lögreglu að komast að upplýsingum um aðra einstaklinga og vörur í gegnum Schengen-upp- lýsingakerfið, en þar er meðal ann- ars hægt að fylgjast með eftirlýstum glæpamönnum og týndum einstakl- ingum sem stuðlar að öryggi okkar. Þó svo að það sé auðveldara fyrir alls konar fólk að komast í gegnum landa- mærin, þá tel ég að við séum betur sett í Schengen heldur en ekki, því ég tel þetta auðvelda samskipti og samstarf milli landanna. UNGA FÓLKIÐ UM OPIN LANDAMÆRI Hafnargötu 15 // Keflavík Sími 421 4440 Vordagar FIMMTUDAGS TIL MÁNUDAGS 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM Opnunartími 9:00 til 18:00 virka daga - 12:00 til 16:00 laugardaga. Vaktsími lyfjafræðings er 8211128 ef afgreiða þarf lyf utan opnunartíma. Hólagötu 15 260 Reykjanesbæ. s: 421-3393 læknasími 421-3394 og fax: 421-3383 10, 30 OG 100 STK LÓRITÍN 20% AFSLÁTTUR6. - 10. APRÍL 20% afsláttur Hafnargata 29 - s. 421 8585 Vordagar 6. - 10. apríl af öllum skóm á vordögum ATVINNA STARFSKRAFTUR ÓSKAST TIL AÐ RÆSTISTARFA Í HSS KEFLAVÍK Vinnutími virka daga frá kl. 08:00 til 13:30 einnig möguleiki á vinnu um helgar Leitað er að einstaklingi 25 ára eða eldri. Íslenskukunnátta æskileg. STARFSKRAFTUR ÓSKAST TIL AÐ RÆSTISTARFA Í HSS HLUTA Í VÍÐIHLÍÐ Í GRINDAVÍK Viðkomandi þarf að hafa aðgang að bíl. Vinnutími er frá kl. 08:00 til 15:00. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi 25 ára eða eldri. Íslenskukunnátta æskileg. Umsóknum skal skila á tölvupópóstfangið halldor@allthreint.is fyrir 21. apríl nk.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.