Víkurfréttir - 06.04.2017, Síða 14
14 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi,
hefur lagt fram tillögu til þingsálykt-
unar um að dómsmálaráðherra verði
falið að undirbúa lagabreytingu sem
tryggir að börn sem getin eru með
tæknifrjóvgun og kynfrumugjöf eigi
rétt á upplýsingum um uppruna sinn.
Tillöguna lagði Silja fram ásamt Einari
Brynjólfssyni og Bjarkey Olsen Gunn-
arsdóttur.
Hér á landi eiga börn, sem getin eru
með tæknifrjóvgun, ekki sjálfstæðan
rétt á að fá upplýsingar um hverjir líf-
fræðilegir foreldrar þeirra eru sé notað
gjafaegg eða gjafasæði. Í tillögunni
segir að þau rök hafi verið fyrir því að
leyfa nafnleynd kynfrumugjafa hafa
til að mynda verið þau að ef nafnleynd
yrði afnumin yrði ólíklegra að fólk
gæfi kynfrumuur til tæknifrjóvgunar
og fólk sem þyrfti á þjónustunni að
halda hefði því ekki aðgengi að henni
vegn ónógs framboðs.
Í tillögunni er bent á að í bókinni
Siðfræði lífs og dauða frá 2003 bendi
höfundur, Vilhjálmur Árnason, á að
rannsóknir í Svíþjóð sýni að þó að
mjög hafi dregið úr sæðisgjöfum fyrst
eftir að lög kváðu á um rétt barns til að
vita nafn gjafa hafi þeim svo fjölgað á
nýjan leik. Vilhjálmur bendir einnig á
að ekki megi ýta til hliðar þeim brýnu
hagsmunum barns að fá að vita um
uppruna sinn til þess eins að bæta úr
barnleysi og lina þær þjáningar sem
því kunna að fylgja. Með því skapist
hætta á að farið sé að „nota barnið
sem tæki til að þjóna markmiðum
foreldra en horft framhjá því að það
er einstaklingur með sjálfstæð réttindi
og hagsmuni“.
Flutningsmenn tillögunnar telja
mikilvægt að réttindi einstaklings sem
getinn er með gjafakynfrumum séu
sett í forgrunn og honum tryggður
með lögum sjálfstæður réttur til að fá
upplýsingar um uppruna sinn. Með
því að leyfa nafnleynd kynfrumu-
gjafa líkt og nú er gert sé brotið á
rétti einstaklings sem getinn er með
þessum hætti. Hafi hann þörf á að fá
upplýsingar um uppruna sinn en sé
synjað um þær getur því fylgt mikið
sálarstríð og erfiðleikar. Mikilvægt sé
jafnframt að virða friðhelgi fólks og
þröngva ekki þessum upplýsingum
upp á einstaklinga, enda geti þörf
þeirra fyrir að nálgast þær verið mjög
mismunandi og í einhverjum tilvikum
ekki til staðar. Æskilegt sé því að upp-
lýsingar um uppruna verði fólki að-
gengilegar.
Undirbúningur tólftu Listahátíðar
barna í Reykjanesbæ er nú í fullum
gangi á öllum skólastigum, Tónlistar-
skóla og dansskólum og verður blásið
til hátíðar þann 4. maí með opnunum
á listsýningum skólanna í Duus Safna-
húsum. Þeir sem til þekkja vita hversu
ótrúlega skemmtilegar sýningar Lista-
hátíðar hafa verið og verður engin
undantekning á því í þetta sinn. Há-
tíðin er orðin feikistór og snertir nán-
ast allar fjölskyldur í bænum með ein-
um eða öðrum hætti. Ýmsir viðburðir
taka við í framhaldi af opnunum og að
venju verður boðið upp á dagskrá fyrir
fjölskyldur laugardaginn 6. maí með
listasmiðjum, lummum í Skessuhelli
og fleiru.
Dagskráin á Facebook
Dagskráin er óðum að taka á sig
mynd og verður hún aðgengileg á vef
Reykjanesbæjar þegar nær dregur.
„Auk þess hefur verið stofnuð síða á
Facebook sem heitir Listahátíð barna
í Reykjanesbæ og hvetjum við alla
áhugasama til þess að líka við hana og
fylgjast með,“ segir í tilkynningu frá
Reykjanesbæ.
Einstaklingar, hópar
og fyrirtæki til þátttöku
Allir þeir sem luma á skemmtilegum
hugmyndum um viðburði eða langar
til að taka þátt í dagskránni eru hvattir
til að hafa samband í gegnum net-
fangið listahatidbarna@reykjanesbaer.
is. „Einnig er hér gott tækifæri fyrir
hópa sem bjóða upp á dagskrá tengda
börnum að kynna sig og starfsemi
sína. Þá hvetjum við einnig fyrirtæki í
bænum til að slást í lið með okkur og
bjóða upp á tilboð fyrir börn og fjöl-
skyldur í tilefni hátíðarinnar,“ segir í
tilkynningu frá Reykjanesbæ.
Ungmennaráð í Vogum fór á fund
bæjarstjórnar sveitarfélagsins á dög-
unum. Þar kynntu ungmennin hug-
myndir sínar og áttu góðar samræður
við bæjarstjórn. Ungmennaþing var
haldið í fyrsta sinn í Vogum 1. nóvem-
ber síðastliðinn. Tilgangur þingsins
var að fá hugmyndir frá ungu fólki um
málefni sem þau varða. Þingið er vett-
vangur ungmenna til að koma saman
og ræða ýmis mál, hvað má gera betur
og hverju má breyta.
Ungmennin hittust einu sinni í
mánuði og fóru í verkefnavinnu þar
sem margar hugmyndir komu fram,
til dæmis tengdar samgöngumálum,
leikaðstöðu barna og unglinga, fræðslu
fyrir ungmenni og fleira. Vinnan hjá
ungmennaráði mun halda áfram.
Á vef Sveitarfélagsins Voga segir að
farið verði með tillögur á viðeigandi
staði þar sem krakkarnir kynna sínar
hugmyndir áfram. „Verður gaman að
fylgjast með þessum krökkum áfram
enda mjög mikilvægt að raddir þessa
hóps íbúa heyrist,“ segir á vef sveitar-
félagsins.
Eigi rétt á upplýsingum um uppruna sinn
●● Tillaga●um●rétt●barna●til●upplýsinga●um●líffræðilega●foreldra
Skessan í hellinum býður til
Listahátíðar barna í tólfta sinn
Ljósmynda-
keppni og
Graffiti-
námskeið
Listahátíð●barna●
vekur●athygli●á●þremur●
skemmtilegum●við-
burðum●fyrir●unglinga
■ Listahátíð barna sem sett
verður í tólfta sinn þann 4. maí
vekur athygli á þremur skemmti-
legum viðburðum fyrir unglinga
í tengslum við hátíðina. „Mark-
hópur hátíðarinnar hefur fram
til þessa verið krakkar frá leik-
skóla til 12 ára en nú ætlum við
að teygja okkur örlítið lengra í
átt til eldri krakka einnig,“ segir í
tilkynningu frá hátíðinni.
„Af því tilefni bjóðum við upp á
Ljósmyndasamkeppni Listahátíðar
og Ljósops fyrir krakka í 7. til 10.
bekk. Þema keppninnar eru dýr en
það er einmitt yfirskrift hátíðar-
innar í ár. Keppnin stendur frá 5. til
21. apríl og eru krakkar hvattir til
að setja upp listamannsgleraugun
og senda inn fjölbreyttar og frum-
legar myndir af dýrum. Á Lista-
hátíðinni, sem sett verður þann
4. maí, verður sett upp sýning í
Duus Safnahúsum á úrvali mynda
úr keppninni og verða veitt verð-
laun fyrir skemmtilegustu, frum-
legustu, listrænustu og vinsælustu
myndirnar,“ segir jafnframt í til-
kynningunni.
Þá verður einnig boðið upp á
skemmtilegt tveggja helga Graf-
fiti námskeið þar sem verk verður
unnið á vegg í Fjörheimum og
DJ smiðju. Í þessar smiðjur þurfa
krakkarnir að skrá sig fyrirfram á
netfangið listahatidbarna@reykja-
nesbaer.is .
Nánar má sjá um þessi verkefni
á vef Reykjanesbæjar undir Aug-
lýsingar.
Kynntu bæjarstjórn niður-
stöður ungmennaþings
Krakkarnir kynntu hugmyndir sínar á fundi bæjarstjórnar. Mynd af vefnum vogar.is.
Hringbraut 99 - 577 1150
FAGLEG, TRAUST OG
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKUR-
MÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT
FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR.
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN,
STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR
- „No coding“ þarf ekki að núllstilla
- Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl
- Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L
- Mæling tekur aðeins 5 sek.
- Geymir 480 mælingar í minni
- Hægt að tengja við tölvu
Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks-
verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900