Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Page 15

Víkurfréttir - 06.04.2017, Page 15
15fimmtudagur 6. apríl 2017 VÍKURFRÉTTIR www.n1.is facebook.com/enneinn Hjólbarðaþjónusta N1 Bíldshöfða 440-1318 Fellsmúla 440-1322 Réttarhálsi 440-1326 Ægisíðu 440-1320 Langatanga Mosfellsbæ 440-1378 Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374 Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372 Dalbraut Akranesi 440-1394 Réttarhvammi Akureyri 440-1433 Opið mán –fös kl. 08-18 laugardaga kl. 09-13 www.n1.is  Michelin CrossClimate Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Dekk sem henta margbreytilegum íslenskum aðstæðum sérlega vel og veita frábæra aksturseiginleika. Michelin Energy Saver Margverðlaunuð fyrir veggrip, endingu og eldsneytissparnað. Michelin Primacy 3 Einstakir aksturseiginleikar. Frábært grip og góð vatnslosun. Ein bestu sumardekkin á markaðnum í dag. Hluti af vorinu Rúllaðu inn í sumarið á nýjum dekkjum Pantaðu tíma fyrir dekkjaskiptin á www.n1.is Arnar segist oftast taka upp bara þetta eina skipti á dag en stundum verða þetta 3-4 myndbönd á dag, allt fari það eftir því hversu viðburðarríkur dagurinn er. Arnar viðurkennir að stundum geti verið erfitt að velja bara eitt myndband til dæmis þegar fjöl- skyldan er á ferðalagi. „Þá gerist svo mikið á hverjum degi, en þá reyndi ég bara að velja myndband sem lýsti deginum sem best og hjálpaði mér að muna sem mest eftir öllum deginum.“ Fyrir þremur árum gerði Arnar sams konar myndband sem vakti nokkra athygli. Myndböndin eru auðvitað mjög persónuleg þar sem um er að ræða daglegt líf vina, fjölskyldu og samstarfsfélaga. „Mér fannst ekkert mál að deila þessu með fólki, ég var búinn að gera þetta einu sinni áður fyrir árið 2013 og þá var það aðeins meira mál að opna fyrir lífið mitt svona, en viðbrögðin sem ég fékk við 2013 myndbandinu mínu gerði þetta einhvern vegin eðlilegra. Fólk ýmist sagði við mig að ég ætti fullkomið líf, sem ég leiðrétti á stundinni og aðrir sögðu við mig að lífið mitt væri rosa- lega venjulegt. Svo er maður náttúru- lega með það á bak við eyrað að þetta sé að fara í birtingu, því reyni ég bara að taka ekki neitt vafasamt upp, þó svo að Önnu finnist sum myndböndin af henni vera alveg á línunni,“ segir Arnar og hlær. Tíu tímar af efni í jarðarförinni Talverður tími fer í að púsla svona myndbandi saman en Arnar vann statt og stöðugt að því. „Maður til- einkar sér alls konar flýtileiðir líka núna þegar maður er búinn að vera að vesenast í þessu í 2 ár samtals. Þetta er orðið alveg vel góður partur af lífinu mínu núna og flestir hættir að kippa sér of mikið upp við það þegar ég held allt í einu á símanum mínum að taka upp.“ Arnar er hvergi nærri hættur og sér fyrir sér að eiga orðið ansi gott safn myndbanda þegar yfir lýkur. „Ég tók þá ákvörðun að halda bara áfram að gera þetta, mér þykir svo ótrúlega falleg tilhugsun að ímynda mér 3-4 ár rúlla á einhverjum skjávarpa í brúð- kaupinu og ég tala nú ekki um jarðar- förina þegar ég verð vonandi kominn með yfir tíu klukkustundir af efni ef ég næ meðal aldrinum hjá íslenskum karlmanni, það verður eitthvað mara- þon fyrir greyið gestina.“ Arnar tekur hér myndband af blaðamanni að taka mynd. Arnar er duglegur að vera með símann á lofti og mynda daglegt líf sitt. ●● Tók●upp●tvær●sekúndur●á●dag● ●● Fæðing●frumburðarins●stóð●upp●úr ÁR Í LÍFI ARNARS Njarðvíkingurinn Arnar Stefánsson tók upp allt árið 2016 á mynd- band en það var merkilegt fyrir margra hluta sakir. Arnar hefur þann háttinn á að taka bara upp tvær sekúndur á dag af alls kyns atburðum. Allt frá fæðingu frumburðarins frá uppvaski eða bíóferð. Þegar allar þessar sekúndur eru settar saman þá er útkoman magnað myndband sem lýsir lífi Íslendings ansi vel.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.