Víkurfréttir - 06.04.2017, Page 16
16 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR
Vordagar 6. - 10. apríl
Fullar búðir og veitingastaðir með spennandi vortilboð á góðu verði.
Hlökkum til að sjá þig!
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@vf.is
Isavia hlaut gullmerki PWC síðustu
tvö ár fyrir góða niðurstöðu úr jafn-
launaúttekt. Hjá Isavia eru sett jafn-
réttismarkmið sem eru endurskoðuð
á tveggja ára fresti og í lok árs er metið
hvort þau hafi náðst. Frumvarp fé-
lagsmálaráðherra um jafnlaunavottun
var lagt fram á Alþingi í vikunni en
það kveður á um að öll fyrirtæki og
stofnanir öðlist slíka vottun á næstu
árum. Samkvæmt frumvarpinu er gert
ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir með
250 starfsmenn eða fleiri verði tilbúin
undir vottunina í árslok 2018 en þau
minnstu um áramótin 2020-2021. Til-
gangurinn með frumvarpinu er að
jafna laun kynjanna en rannsóknir
hafa sýnt að víða fá konur greidd lægri
laun en karlar fyrir sambærileg störf.
Blaðamaður Víkurfrétta settist niður
með þeim Sóleyju Rögnu Ragnars-
dóttur, mannauðsstjóra Isavia í Kefla-
vík, Róbertu Báru Maloney, deildar-
stjóra kjaramála og Hauki Þór Arnar-
syni, mannauðsráðgjafa og jafnréttis-
fulltrúa fyrirtækisins. Eitt af mark-
miðum Isavia í jafnréttismálum í ár
er að efla og fjölga konum sem eru
stjórnendur hjá fyrirtækinu en þær eru
færri en karlarnir. Sömuleiðis verður
markmiðið í ár að efla jafnréttisvitund
stjórnenda og starfsmanna. „Þegar
stjórnendastöður eru auglýstar lausar
hér innanhúss þá finnst okkur ekki
nógu margar konur sækja um. Þetta er
verkefni sem við hlökkum til að takast
á við,“ segir Sóley.
Sum störf sækja konur ekki um
Þegar Isavia var stofnað árið 2010
voru tvö fyrirtæki sameinuð í eitt.
Hluti af því ferli var samræming jafn-
réttisáætlana en þær eru gerðar í sam-
ræmi við lög þess efnis og segir Sóley
gullmerki PWC sýna að sú vinna hafi
skilað árangri.
Konur eru 35 prósent starfsmanna
Isavia og segir Róberta ástæðuna þá
að mörg starfanna hjá fyrirtækinu
séu svokölluð „hefðbundin karla-
störf “ þar sem krafist sé meiraprófs
og iðnmenntun sé kostur. „Við gerum
okkar besta til að fá konur í þau störf
en þær sækja ekki einu sinni um,“
segir Róberta og nefnir sem dæmi að í
80 manna deild sem kallast flugvalla-
þjónusta sé aðeins ein kona. „Við aug-
lýstum nýlega eftir fólki í þá deild og
engin kona sótti um.“ Á skrifstofum
Isavia er hlutfall kynjanna jafnara.
Með árunum hefur kynjahlutfall
meðal flugumferðarstjóra jafnast en
ekki er svo langt síðan karlar voru í
miklum meirihluta í þeirri stétt. Síð-
astliðið haust voru 40% af þeim sem
hófu nám í flugumferðarstjórn konur,
en nám í flugumferðarstjórn er nú á
vegum Isavia.
Vel mögulegt að jafna laun
Verði frumvarp Þorsteins Víglunds-
sonar um jafnlaunavottun samþykkt
er ljóst að Isavia verður vel í stakk
búið að mæta þeim kröfum. Sóley,
Róberta og Haukur eru sammála um
að það sé ekki svo ýkja mikil vinna
að passa upp á að konum séu ekki
mismunað þegar kemur að launum.
„Margir starfsmanna okkar fá greitt
eftir launatöflum kjarasamninga. Þá
hækkar fólk í launum eftir ákveðnum
reglum,“ segir Róberta. Sóley bætir
við að sem dæmi sé vel passað upp á
að sérfræðingar séu með sömu laun
miðað við menntun, reynslu, ábyrgð
í starfi og umfang verkefna. Haukur
bendir á að með ákveðnum verk-
ferlum og með kynjagleraugun uppi
sé vel mögulegt að ná jöfnum launum
kynjanna. Öll eru þau sammála um
að ávinningurinn af jöfnum launum
sé óumdeilanlegur. „Það er auðvitað
ávinningur að vera viss um að vera
ekki með kynjamismun og að geta
sýnt fram á það. Fyrirtækið verður
líka eftirsóttari vinnustaður fyrir
vikið,“ segir Róberta.
ALLTAF MEÐ KYNJA-
GLERAUGUN UPPI
●● Isavia●setur●jafnréttismarkmið●á●hverju●ári
●● Eitt●af●markmiðum●Isavia●í●ár●er●að●fjölga●konum●
meðal●stjórnenda.●Þær●sækja●síður●en●karlar●um●þær●
stöður.● Segja●ávinning●af●jöfnum●launum●ótví-
ræðan
Haukur Þór Arnarson, mannauðsráðgjafi og jafnréttisfulltrúi Isavia, Sóley
Ragna Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri Isavia í Keflavík og Róberta Bára Maloney,
deildarstjóri kjaramála hjá Isavia. VF-mynd/dagnyhulda