Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 16
16 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR Vordagar 6. - 10. apríl Fullar búðir og veitingastaðir með spennandi vortilboð á góðu verði. Hlökkum til að sjá þig! Dagný Hulda Erlendsdóttir dagnyhulda@vf.is Isavia hlaut gullmerki PWC síðustu tvö ár fyrir góða niðurstöðu úr jafn- launaúttekt. Hjá Isavia eru sett jafn- réttismarkmið sem eru endurskoðuð á tveggja ára fresti og í lok árs er metið hvort þau hafi náðst. Frumvarp fé- lagsmálaráðherra um jafnlaunavottun var lagt fram á Alþingi í vikunni en það kveður á um að öll fyrirtæki og stofnanir öðlist slíka vottun á næstu árum. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir með 250 starfsmenn eða fleiri verði tilbúin undir vottunina í árslok 2018 en þau minnstu um áramótin 2020-2021. Til- gangurinn með frumvarpinu er að jafna laun kynjanna en rannsóknir hafa sýnt að víða fá konur greidd lægri laun en karlar fyrir sambærileg störf. Blaðamaður Víkurfrétta settist niður með þeim Sóleyju Rögnu Ragnars- dóttur, mannauðsstjóra Isavia í Kefla- vík, Róbertu Báru Maloney, deildar- stjóra kjaramála og Hauki Þór Arnar- syni, mannauðsráðgjafa og jafnréttis- fulltrúa fyrirtækisins. Eitt af mark- miðum Isavia í jafnréttismálum í ár er að efla og fjölga konum sem eru stjórnendur hjá fyrirtækinu en þær eru færri en karlarnir. Sömuleiðis verður markmiðið í ár að efla jafnréttisvitund stjórnenda og starfsmanna. „Þegar stjórnendastöður eru auglýstar lausar hér innanhúss þá finnst okkur ekki nógu margar konur sækja um. Þetta er verkefni sem við hlökkum til að takast á við,“ segir Sóley. Sum störf sækja konur ekki um Þegar Isavia var stofnað árið 2010 voru tvö fyrirtæki sameinuð í eitt. Hluti af því ferli var samræming jafn- réttisáætlana en þær eru gerðar í sam- ræmi við lög þess efnis og segir Sóley gullmerki PWC sýna að sú vinna hafi skilað árangri. Konur eru 35 prósent starfsmanna Isavia og segir Róberta ástæðuna þá að mörg starfanna hjá fyrirtækinu séu svokölluð „hefðbundin karla- störf “ þar sem krafist sé meiraprófs og iðnmenntun sé kostur. „Við gerum okkar besta til að fá konur í þau störf en þær sækja ekki einu sinni um,“ segir Róberta og nefnir sem dæmi að í 80 manna deild sem kallast flugvalla- þjónusta sé aðeins ein kona. „Við aug- lýstum nýlega eftir fólki í þá deild og engin kona sótti um.“ Á skrifstofum Isavia er hlutfall kynjanna jafnara. Með árunum hefur kynjahlutfall meðal flugumferðarstjóra jafnast en ekki er svo langt síðan karlar voru í miklum meirihluta í þeirri stétt. Síð- astliðið haust voru 40% af þeim sem hófu nám í flugumferðarstjórn konur, en nám í flugumferðarstjórn er nú á vegum Isavia. Vel mögulegt að jafna laun Verði frumvarp Þorsteins Víglunds- sonar um jafnlaunavottun samþykkt er ljóst að Isavia verður vel í stakk búið að mæta þeim kröfum. Sóley, Róberta og Haukur eru sammála um að það sé ekki svo ýkja mikil vinna að passa upp á að konum séu ekki mismunað þegar kemur að launum. „Margir starfsmanna okkar fá greitt eftir launatöflum kjarasamninga. Þá hækkar fólk í launum eftir ákveðnum reglum,“ segir Róberta. Sóley bætir við að sem dæmi sé vel passað upp á að sérfræðingar séu með sömu laun miðað við menntun, reynslu, ábyrgð í starfi og umfang verkefna. Haukur bendir á að með ákveðnum verk- ferlum og með kynjagleraugun uppi sé vel mögulegt að ná jöfnum launum kynjanna. Öll eru þau sammála um að ávinningurinn af jöfnum launum sé óumdeilanlegur. „Það er auðvitað ávinningur að vera viss um að vera ekki með kynjamismun og að geta sýnt fram á það. Fyrirtækið verður líka eftirsóttari vinnustaður fyrir vikið,“ segir Róberta. ALLTAF MEÐ KYNJA- GLERAUGUN UPPI ●● Isavia●setur●jafnréttismarkmið●á●hverju●ári ●● Eitt●af●markmiðum●Isavia●í●ár●er●að●fjölga●konum● meðal●stjórnenda.●Þær●sækja●síður●en●karlar●um●þær● stöður.● Segja●ávinning●af●jöfnum●launum●ótví- ræðan Haukur Þór Arnarson, mannauðsráðgjafi og jafnréttisfulltrúi Isavia, Sóley Ragna Ragnarsdóttir, mannauðsstjóri Isavia í Keflavík og Róberta Bára Maloney, deildarstjóri kjaramála hjá Isavia. VF-mynd/dagnyhulda

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.