Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 06.04.2017, Qupperneq 20
20 fimmtudagur 6. apríl 2017VÍKURFRÉTTIR Umhverfismælingar í Helguvík ●● mikilvægi●óháðs●mælingaaðila Umræða um niðurstöður mæl- inga á mengandi efnum frá verk- smiðju United Silicon í Helguvík hafa verið áberandi í fjölmiðlum undanfarna viku og þá einkum um hversu áreiðanlegar slíkar mælingar séu. Orkurannsóknir ehf. sem ábyrgðaraðili þessara mælinga hefur dregist inn í þá umræðu og fengið gagnrýni fyrir að benda á hugsanlega skekkju í niðurstöðum greininga á þung- málmum. Umfang Orkurannsóknir ehf. hafa annast umhverfismælingar í Helguvík samkvæmt samkomulagi við United Silicon. Orkurannsóknir eru óháður rannsóknaraðili sem starfar innan Keilis. Fyrirtækið var stofnað árið 2010 og er sam- þykkt af Umhverfisstofnun en kostnaður við þetta tiltekna verk- efni er greiddur af United Silicon. Haustið 2015 voru tekin bak- grunnssýni af mosa, öðrum gróðri, jarðvegi og ferskvatni og í byrjun árs 2016 voru settar upp þrjár mælistöðvar í nágrenni verksmiðjunnar þar sem fram fara símælingar á lofttegundum og ryki. Á tveimur mælistöðv- unum er einnig safnað ryk- og úrkomusýnum. Fullkominn mælibúnaður Mælibúnaður er vottaður sam- kvæmt alþjóðlegum stöðlum. Brennisteinsdíoxíð, köfnunar- efnisoxíð og örfínt ryk eru mæld með sjálfvirkum mælibúnaði á tíu mínútna fresti og niðurstöður birtar á vefsíðunni www.andvari. is. Ryksöfnun fer fram með því að draga loft í gegnum síu og er safnað samfellt í sex daga í einu allt árið. Allir verkferlar eru skilgreindir samkvæmt gæðakerfi Orkurann- sókna og rekjanleiki tryggður með skráningum á öllum stigum. Sýni eru send til rannsóknarstofu ALS í Svíþjóð sem fylgir vott- uðum mæliaðferðum samkvæmt ISO 9001. Mælingar þungmálma Mælingar á þungmálmum í ryki frá Helguvík hófust í mars 2016 og hafa sýni hafa verið greind mánaðarlega. Fyrsti hluti var frá mars til september 2016, annar frá október til desember 2016 og sá þriðji frá janúar til mars 2017. Á línuritinu er sýnd niðurstaða þessara mælinga. Í öðrum áfanga mældust gildin fyrir flesta málma um fimm- falt hærri heldur en í fyrsta og þriðja áfanga. Ljóst var að niður- stöður annars áfanga stóðust ekki skoðun um áreiðanleika. Verk- smiðjan var ekki gangsett fyrr en um miðjan nóvember 2016 auk þess sem suðlægar áttir voru ríkjandi allt þetta tímabil. Saman- burður á styrk þungmálma í ryki frá mælistöðvum annars vegar og ryki úr útblæstri kísilverksmiðj- unnar sýndu allt að 27-falt hærri styrk á arseni í ryki. Undir venju- legum kringumstæðum hefðu þessi gildi einfaldlega verið tekin til hliðar þar til frekari mælingar lágu fyrir sem staðfestu eða úti- lokuðu þau. Aðstæður kröfðust hins vegar skjótra viðbragða og því var tekin ákvörðun um að til- kynna Umhverfisstofnun að um hugsanlega skekkju væri að ræða. Hvernig er hægt að fyrirbyggja rangar niðurstöður? Það er ekkert til sem heitir „rétt“ niðurstaða í mælingum. Með endurteknum mælingum er reynt að komast sem næst því. Við mat á niðurstöðum eru núllpunkt- sskekkja, kerfisbundin mæli- skekkja, mælióvissa og staðalfrá- vik lykilatriði. Orkurannsóknir fylgja viður- kenndum ferlum við mælitækni. Þegar hlutir fara úrskeiðis skipta viðbrögðin mestu máli og því verður gripið til eftirfarandi að- gerða: ALS hefur að beiðni Orkurann- sókna hafið rannsókn vegna um- ræddra mælinga Samanburðarsýni fyrir ryk verða send til annarra rannsóknarstofa Verkferlar Orkurannsókna verða yfirfarnir og skráningar auknar Samantekt Í vinnslu er ársskýrsla fyrir um- hverfismælingar í Helguvík fyrir árið 2016. Hún mun lýsa öllum þáttum mælinga sem farið hafa fram, þar á meðal mælingum á jarðvegs-, gróður- og vatns- sýnum sem tekin voru haustið 2015. Gerð verður grein fyrir símælingum á lofttegundum og ryki sem hófust í janúar 2016 og samanburður á gildum fyrir og eftir gangsetningu verksmiðj- unnar í nóvember 2016. Þessi skýrsla mun varpa skýrara ljósi á mælanleg áhrif kísilverk- smiðju United Silicon á nánasta umhverfi. Umhverfisstofnun hefur falið Orkurannsóknum ehf. að annast skýrslugerðina og sýnir það það traust sem fyrirtækið nýtur. Egill Þórir Einarsson, yfirmaður rannsóknar- stofu Orku- rannsókna VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ KRAFTMIKLU FÓLKI TIL STARFA Störf í boði Hlutverk Póstsins er að veita áreiðanlega þjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga á sviði dreifingar-, samskipta- og flutningalausna. Framtíðarsýn Íslandspósts er að fyrirtækið verði nýjunga- og tæknidrifið fyrirtæki sem svarar síbreytilegum þörfum viðskiptavina. Pósturinn óskar eftir bílstjórum í fullt starf ásamt bréfberum í sumarstarf. Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum með ríka þjónustulund, góða hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnuhæfileika. Nánari upplýsingar veitir Anna María Guðmundsdóttir, svæðisstjóri í síma 421 4300 eða í netfanginu annam@postur.is Umsóknarfrestur: 18. apríl 2017 Umsóknir: umsokn.postur.is Pósturinn hlaut Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC árið 2016. Pósturinn leggur mikla áherslu á jafna stöðu kynjanna og er það mikilvæg staðfesting á því að vel sé staðið að jafnréttismálum hjá fyrirtækinu og að mikið sé lagt upp úr því að tryggja að allir fái jöfn tækifæri og eigi þann kost að vaxa og dafna í starfi á eigin verðleikum. Bílstjórar í kvöldkeyrslu Starfið felst í dreifingu pósts og annarra þjónustuvara í Reykjanesbæ. Um er að ræða kvöldkeyrslu. Hæfniskröfur Bílpróf Sjálfstæð og öguð vinnubrögð Bréfberar í sumarstarf Leitað er eftir hressum einstaklingum til að sinna útburði í Reykjanesbæ í sumar. Hæfniskröfur Stundvísi og áreiðanleiki Sjálfstæð og öguð vinnubrögð Leifur Eiríksson, Hildur Ingvarsdóttir, Guðbjörg Eiríksdóttir Blanar, Richard Blanar, Örn Eiríksson, ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju, vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Önnu Vernharðsdóttur, Smáratúni 12, Keflavík, Brynja Kristjánsdóttir, Gunnar H Häsler, Sigrún Kristjánsdóttir, Guðmundur I Ragnarsson, Júlíus Kristjánsson, Guðrún Jakobsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elsku faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Kristján Júlíusson, Heiðarbrún 1, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 31. mars. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju 12. apríl kl. 13:00. Suðurnesjamagasín Sjónvarps Víkurfrétta hefur fengið nýjan sýningartíma á fimmtudagskvöldum á Hringbraut. Framvegis er þátturinn sýndur kl. 20:00 og endursýndur kl. 22:00. Þá er þátturinn sýndur föstudaga kl. 12, 14, 16 og 18. Á laugardögum er þátturinn kl. 14 og 22. Sunnudaga er Suðurnesjamagasín kl. 08 og 18.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.