Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.02.2018, Page 18

Víkurfréttir - 08.02.2018, Page 18
18 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 8. febrúar 2018 // 6. tbl. // 39. árg. Bolafótur 1 - 260 Reykjanesbær - GE bílar ehf - Sími 420 0400 - gebilar@gebilar.is - www.gebilar.is UMBOÐSAÐILI ATVINNA GE bílar bílasala í Reykjanesbæ óskar eftir bílasala í 100% vinnu. Um er að ræða sölu á notuðum og nýjum bílum, einnig þau verkefni sem falla til. Kostur ef viðkomandi talar íslensku, ensku og pólsku. Smá tölvukunnátta nauðsynleg. GE bílar eru umboðsaðilar BL og Bílalands í Reykjanesbæ. Upplýsingar í síma 7767600 Guðmundur. HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR HORFÐU Á VIÐTALIÐ Í SJÓNVARPI VÍKUR FRÉTTA Okkar eigin Eurovision- stjarna Sólborg Guðbrandsdóttir tekur þátt í undankeppni Söngvakeppninnar þann 10. febrúar nk. - Elskar að koma fram og syngja Sólborg Guðbrandsdóttir kemur fram í undan- keppni Söngvakeppni sjónvarpsins næstkomandi laugardag ásamt Tómasi Helga Wehmeier en þau flytja saman lagið „Ég og þú“. Sólborg er fædd og uppalin í Keflavík en að hennar sögn er söngur og að koma fram eitt það skemmtilegasta sem hún gerir. Fjölskyldan hennar er söngelsk en Davíð, bróðir hennar, semur íslenska textann við lagið „Ég og þú“ og Sigríður, systir hennar, syngur bak- raddir ásamt Sigurði Smára, sem er einn af bestu vinum Sólborgar. Sólborg hefur starfað sem blaða- maður hjá Víkurfréttum frá því í fyrra, en við sett- umst niður með henni fyrir Söngvakeppnina þar sem að hún var í hlutverki viðmælanda en ekki blaðamanns. Söngvakeppnin, eða Euro- vision, er eitt það besta sem maður getur gert til að koma sér á framfæri í tónlistarheiminum á Íslandi. Rannveig Jónína Guðmundsdóttir rannveig@vf.is VIÐTAL

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.