Fréttablaðið - 12.03.2018, Síða 10
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Stofnuð 1983
35
á r a
Fasteignasalan þín í 35 ár
Starfsfólk Hraunhamars
1 2 . m a r s 2 0 1 8 m Á N U D a G U r10 s p o r t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
sport
Úrslitaleikur karla
Fram 27-35 ÍBV
(12-16)
Fram: Svanur Páll Vilhjálmsson
6, Arnar Birkir Hálfdánsson 5,
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 4,
Matthías Daðason 3, Sigurður Þor-
steinsson 2, Þorgrímur Smári Ólafs-
son 2, Andri Þór Helgason 2, Davíð
Reynisson 1, Valdimar Sigurðsson
1, Bjartur Guðmundsson 1.
ÍBV: Agnar Smári Jónsson 12, Theo-
dór Sigurbjörnsson 8/1, Sigurberg-
ur Sveinsson 6, Kári Kristjánsson 4,
Andri Heimir Friðriksson 2, Friðrik
Hólm Jónsson 1, Róbert Aron Hos-
tert 1, Grétar Þór Eyþórsson 1.
HaNDBoLti Eyjamenn elska bik-
arúrslitaleiki, allavega síðasta árið.
Bæði karla- og kvennalið ÍBV eru
ríkjandi bikarmeistarar í fótbolta
og á laugardaginn tryggði ÍBV sér
bikarmeistaratitilinn í handbolta
karla með átta marka sigri á Fram,
27-35. Karlalið ÍBV í handbolta
hefur farið þrisvar sinnum í úrslita-
leikinn og alltaf snúið heim með
bikarinn í farteskinu (1991, 2015
og 2018).
Úrslitaleikurinn á laugardaginn
var jafn framan af. Frammarar byrj-
uðu vel en Eyjamenn voru lengi
í gang. En um leið og Aron Rafn
Eðvarðsson byrjaði að verja í marki
ÍBV náði liðið undirtökunum. Eyja-
menn kláruðu fyrri hálfleikinn með
7-2 kafla og leiddu með fjórum
mörkum í hálfleik, 12-16. Aron Rafn
hefur ekki verið upp á sitt besta í
vetur en hann sýndi hvers hann er
megnugur í leikjunum um helgina
og með hann í þessu stuði eru Eyja-
menn óárennilegir.
Í seinni hálfleik breikkaði bilið og
Fram var aldrei líklegt til að koma
til baka. Frammarar, sem höfðu spil-
að framlengdan undanúrslitaleik
gegn Selfossi daginn áður, sprungu
á limminu og Eyjamenn lönduðu
öruggum átta marka sigri, 27-35.
„Ég átti þennan eftir. Ég er búinn
að sækja grimmt að honum og þetta
er kærkomið,“ segir Arnar Péturs-
son, þjálfari ÍBV, við Fréttablaðið
eftir leikinn. Þrátt fyrir að hafa
verið lengi að, bæði sem leikmaður
og þjálfari, var þetta fyrsti bikar-
meistaratitill Arnars á ferlinum.
Hann er búinn að eltast lengi við
þennan hval og klófesti hann loks
á laugardaginn.
Arnar hrósaði liði Fram og þjálf-
ara þess, Guðmundi Helga Pálssyni,
í hástert eftir bikarúrslitaleikinn.
„Fram spilaði framlengdan leik í
gær [á föstudaginn], er að nota færri
menn en við og það taldi. En ég vil
hrósa Frömmurum. Þetta eru algjör
ólíkindatól. Þeir eru að mínu mati
með besta þjálfarann í deildinni
og einn af þeim betri í íslenskum
handbolta í dag. Hann nær ótrú-
lega miklu út úr þessum strákum
sem eflast undir hans stjórn og
verða betri og betri. Þetta er flott
og skemmtilegt lið,“ segir Arnar
sem var einnig þjálfari ÍBV, ásamt
Gunnari Magnússyni, þegar liðið
varð Íslandsmeistari árið 2014.
Margir leikmenn ÍBV spiluðu vel
í bikarúrslitaleiknum, þó enginn
betur en Agnar Smári Jónsson. Hann
var sjóðheitur, skoraði 12 mörk úr
aðeins 13 skotum og átti sinn besta
leik síðan í oddaleiknum fræga gegn
Haukum fyrir fjórum árum.
„Hann er ótrúlegur drengur.
Ég veit ekki hvað ég á að segja um
hann. Hann elskar þessa leiki og
stígur upp í þeim,“ segir Arnar að
endingu. ingvithor@frettabladid.is
Arnar klófesti loks bikarhvalinn
Karlalið ÍBV í handbolta varð bikarmeistari í þriðja sinn eftir 27-35 sigur á Fram á laugardaginn. Þjálfarinn Arnar Pétursson var búinn
að bíða lengi eftir bikarmeistaratitli. Agnar Smári Jónsson fór hamförum í úrslitaleiknum, skoraði 12 mörk og reyndist Fram erfiður.
Arnar Pétursson var tolleraður af lærisveinum sínum eftir sigurinn í Coca Cola-bikar karla. Þetta er þriðji bikarmeistaratitill ÍBV í karlaflokki. FréttABlAðið/EyÞór
1
2
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
2
A
-6
E
5
8
1
F
2
A
-6
D
1
C
1
F
2
A
-6
B
E
0
1
F
2
A
-6
A
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
1
1
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K