Fréttablaðið - 03.03.2018, Side 2
Veður
Áframhaldandi norðaustanátt með
éljum á norðan- og austanverðu
landinu en bjart og fallegt veður
sunnan jökla og á vestanverðu
landinu. sjá síðu 52
Bestu myndirnar dregnar fram
Undirbúningur fyrir fréttaljósmyndasýninguna Myndir ársins 2017 var í fullum gangi í Hörpu í gær. Sýningin hefst í dag. Við opnunina er jafnan
spenna því þá eru veitt verðlaun fyrir vinningsmyndir ársins. Sýningin verður aðgengileg á opnunartíma Hörpu næstu þrjár vikur. Fréttablaðið/Ernir
samfélag Bílstjóri sem gleymdi
mikið fatlaðri konu í bíl ferðaþjón-
ustu fatlaðra á þriðjudag vinnur
fyrir sama fyrirtæki og gleymdi 18
ára stúlku í sjö klukkustundir 2015.
Þetta staðfestir framkvæmda-
stjóri Strætó bs. sem telur þó að lík-
lega sé aðeins tilviljun að svo hafi
hitt á. Eina skýringin sem fundist
hafi á atvikinu í vikunni sé einbeit-
ingarleysi bílstjóra.
Jóhannes Svavar Rúnarsson,
framkvæmdastjóri Strætó bs., segir
að farið hafi verið yfir málið strax
þegar það kom upp. Svo virðist
sem allt hafi farið úrskeiðis, ekki
hafi verið farið eftir leiðbeiningum
og verklagsreglum svo brýna þurfi
fyrir verktökum sem sinna Ferða-
þjónustu fatlaðra fyrir Strætó bs. að
fræða starfsmenn sína.
„Það er ekki hægt að segja að
leiðbeiningarnar séu óskýrar eða
tækin og tólin ófullnægjandi. Það
er óskiljanlegt hvernig svona getur
gerst enda erum við með tæki þar
sem fólk er stimplað inn og út úr
bílnum, bílarnir eru litlir þannig
að yfirsýn yfir bílinn ætti að vera
auðveld. Þetta er óskiljanlegt atvik
og svo sem engin ein skýring. Við
finnum ekki aðra skýringu en að
þarna hafi ákveðið einbeitingarleysi
átt sér stað.“
Aðspurður hvort viðkomandi bíl-
stjóri hafi verið sendur í leyfi vegna
málsins segir Jóhannes að fyrir-
tækið tjái sig ekki um slíkt.
Fyrirtækið sem um ræðir heitir
All Iceland Tours, einn 20 verk-
taka sem sinnir akstri fatlaðra fyrir
Strætó. Aðspurður hvort tilefni sé til
að endurskoða þjónustu þess fyrir-
tækis, í ljósi þess að þetta er í annað
skipti sem fötluð kona gleymist í
bílum þess, segir Jóhannes að leið-
beiningar hafi verið ítrekaðar við
alla verktaka og mælst til þess að
þeir fari ítarlega yfir þær, verklags-
reglur og viðbragðsáætlun áður en
þeir sendi menn af stað í keyrslu.
„Það er það sem við gerðum gagn-
vart öllum í þessu ferli. En það er lík-
lega bara tilviljun að þetta kemur
svona upp.“
Jóhannes kveðst ekki hafa heyrt
af mikilli starfsmannaveltu hjá fyrir-
tækjunum sem sinna akstrinum, í
það minnsta ekki óeðlilegar tölur.
Vissulega hafi menn haldist illa í
þessu starfi eftir byrjunarörðugleik-
ana 2015, álagið hafi verið mikið og
öll mistök ratað í fjölmiðla sem ekki
allir hafi höndlað.
„Okkur sýnist við vera með nokk-
uð reyndan hóp í þessum akstri.
Flestir þessara verktaka hafa sinnt
þessu í áratugi, það er mikil reynsla
og gamalreyndir starfsmenn, en
auðvitað einhverjir nýir.“
mikael@frettabladid.is
Sami verktaki gleymdi
fötluðu stúlkunni 2015
Sama fyrirtæki ber ábyrgð á að kona gleymdist í bíl ferðaþjónustu fatlaðra í
vikunni og í sambærilegu atviki 2015. Framkvæmdastjóri Strætó segir að ítrek-
að hafi verið við alla verktaka við aksturinn að fara yfir leiðbeiningar og reglur.
tvenn stór mistök ferðaþjónustu fatlaðra urðu hjá sama verktakanum undir
Strætó. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Fréttablaðið/anton brink
Við finnum ekki
aðra skýringu en að
þarna hafi ákveðið einbeit-
ingarleysi átt sér
stað.
Jóhannes S.
Rúnarsson,
framkvæmdastjóri
Strætó bs.
Ökuland ehf.
Ökuskóli
Akstursþjálfun
hjá Mercedes-Benz í Þýskalandi
fyrir ökumenn og eigendur vörubíla
sem og aðra áhugasama
• Metin til endurmenntunar bílstjóra
• Heimsókn í vörubílaverksmiðju
• Tæknisafnið í Speyer
Fararstjóri: Guðni Sveinn 899 1779
gudni@okuland.is
Verð: 185.000.kr.
Hægt er að sækja um styrki til ferðarinnar.
Nánari upplýsingar um ferðatilhögun: www.okuland.is
Skráningu fer að ljúka.
12.–15. apríl 2018
Ökuland ehf.
Ökuskóli
Akstursþjálfun
hjá Mercedes-Benz í Þýskalandi
fyrir ökumenn og eigendur vörubíla
sem og aðra áhugasama
• Metin til endurmenntunar bílstjóra
• Heimsókn í vörubílaverksmiðju
Tæk isafnið í Sp yer
Fararstjóri: Guðni Sveinn 899 1779
gudni@okuland.is
Ve ð: 185.000.kr.
Hægt er að sækja um styrki til ferðarinnar.
Nánari upplýsingar um ferðatilhögun: www.okuland.is
Skráningu fer að ljúka.
12.–15. apríl 2018
Heilbrigðismál Alma Dagbjört
Möller hefur verið skipuð nýr land-
læknir frá og með 1. apríl næst-
komandi af Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra.
Alma verður fyrst kvenna til að
gegna þessu embætti hér á landi en
sex sóttu um stöðuna og var Alma
önnur tveggja sem lögskipuð hæfn-
isnefnd mat hæfasta.
Skipunartíminn er fimm ár en
Alma mun taka við af Birgi Jakobs-
syni sem er á leið í heilbrigðisráðu-
neytið að verða aðstoðarmaður
Svandísar. – smj
Alma skipuð
nýr landlæknir
stjórnmál Draga má sterklega í
efa að það að láta alla einstaklinga,
18 ára og eldri, fá skilyrðislaust
300 þúsund krónur í borgaralaun
á mánuði úr ríkissjóði leiði til
bættrar afkomu þeirra verst settu.
Mun líklegra er að þeir sem lakast
standa fari verst út úr slíkum kerfis-
breytingum. Þetta segir fjármála-
stjóri Reykjavíkurborgar í umsögn
um þingsályktunartillögu Pírata
um skilyrðislausa grunnframfærslu,
betur þekkta sem borgaralaun.
Í umsögninni er bent á að árlegur
kostnaður ríkisins við að greiða
tæplega 260 þúsund manns 300
þúsund krónur á mánuði yrði rúmir
930 milljarðar. Eða ríflega 110 millj-
örðum meira en nemur áætluðum
útgjöldum A-hluta ríkissjóðs 2018.
Hugmyndir um borgaralaun eru í
umsögninni kallaðar „félagslegt til-
raunaverkefni“. – smj
Borgaralaun
ekki til góða
alma Dagbjört
Möller.
fiskveiðar Stjórn Sjómannasam-
bands Íslands er andvíg lagafrum-
varpi þingmanna Samfylkingar-
innar og Pírata um að umframkvóti
á þorski fari í útboð. Það sé skaðlegt
fyrir hagsmuni sjómanna.
Samkvæmt frumvarpinu á
umframkvóti af þorski að fara
á uppboð ef heildarafli á þorski
verður aukinn. Leigugjald fyrir afla-
hlutdeildir sveiflist sjálfkrafa með
arðsemi veiða og dragi úr líkum
á pólitísku inngripi. Þá væri ekki
verið að hygla neinum.
Stjórn Sjómannasambandsins
segir fjölda sjómanna hafa lífs-
viðurværi af fiskveiðum. Þorsk-
veiðiheimildirnar séu mikilvægar í
því sambandi og „því óásættanlegt
að stjórnmálamenn vilji sí og æ
skerða tekjumöguleika þeirra sem
þegar hafa atvinnu af sjómennsku
með því að færa fiskveiðiheimildir
frá þeim til einhverra annarra.“ – sa
Þorskur fari
ekki á uppboð
3 . m a r s 2 0 1 8 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-9
5
F
8
1
F
1
D
-9
4
B
C
1
F
1
D
-9
3
8
0
1
F
1
D
-9
2
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K