Fréttablaðið - 03.03.2018, Side 12
FJÁRMÁLAUMHVERFI
HEILBRIGÐIS-
ÞJÓNUSTUNNAR
Málþing á vegum Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu
mánudaginn 5. mars kl. 13.30
DAGSKRÁ
13.30 - 13.40 Setning málþings
Pétur Magnússon, formaður Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu og
forstjóri Hrafnistuheimilanna
13.40 - 13.55 Ávarp frá formanni fjárlaganefndar
Willum Þór Þórsson
13.55 - 14.10 Greiðslur og kröfur í heilbrigðisþjónustu
Eybjörg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri
Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
14.10 - 14.25 Barnið vex en brókin ekki - þróun
eftirspurnar og fjárveitinga
María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Landspítalans
14.25 - 14.40 Upplýsingar og stefnumótun
Ásgerður Th. Björnsdóttir, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs SÁÁ
14.40 - 14.55 Sjúkratryggingar og nýju lögin um
opinber fjármál
Steingrímur Ari Arason, forstjóri
Sjúkratrygginga Íslands
14.55 - 15.10 Erum við að mæta þörfum sjúklinga
með því að fjármagna stofnanir?
Svanbjörn Thoroddsen, stjórnarformaður
KPMG á Íslandi
Að framsögum loknum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Erna Indriðadóttir, fjölmiðlakona
Málþingið verður haldið á Icelandair
hótel Reykjavík Natura, þingsal 2,
mánudaginn 5. mars nk. kl. 13.30-15.45.
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Pétur Magnússon
Ásgerður Th.
Björnsdóttir
Willum Þór Þórsson
Steingrímur Ari
Arason
Eybjörg Hauksdóttir
Svanbjörn
Thoroddsen
María Heimisdóttir
Erna Indriðadóttir
Stjórnmál „Ég veit ekki hvort þið
gerið ykkur grein fyrir því hvaða
þrekvirki hvert og eitt ykkar hefur
unnið. Saman hefur okkur tekist að
reisa flokkinn upp á hnén aftur,“
sagði Logi Einarsson, formaður
Samfylkingarinnar, er hann setti
landsfund flokksins í gær. Logi var
endurkjörinn með öllum greiddum
atkvæðum. Heiða Björg Hilmisdóttir
var endurkjörin varaformaður.
„Það voru alls ekki allir sem spáðu
því. Og fyrir það vil ég þakka ykkur
öllum. Við erum mætt aftur til leiks,
ætlum okkur góðan árangur í sveitar-
stjórnarkosningum í vor og verða
aftur sá burðarflokkur í íslenskum
stjórnmálum sem almenningur
þarfnast,“ sagði formaðurinn.
Logi sagði að niðurstaða Samfylk-
ingarinnar í þingkosningum haustið
2016 hefði verið reiðarslag. Þrátt fyrir
það hefði flokkurinn náð að lifa af,
meðal annars vegna þess að sveitar-
stjórnarfólkið hefði haldið fánanum
á lofti, en eins og kunnugt er fjölgaði
þingmönnum flokksins úr þremur í
sjö í kosningunum í haust.
„Án þeirra hefði þetta allt verið svo
mikið erfiðara. Við stýrum sveitar-
félögum víða um land og þá hafa full-
trúar okkar í minnihluta sýnt hressi-
legt andóf. En það er auðvitað á engan
hallað þó ég nefni sérstaklega borgar-
stjórnarflokkinn í Reykjavík, sem
vegna stærðar er okkar mikilvægasta
vígi. Á okkar vakt og Reykjavíkur-
listans hefur Reykjavík gjörbreyst, frá
umkomulitlum úthverfabæ í iðandi,
nútímalega borg. Þar hefur þétting
byggðar skipt miklu og borgarlína
mun reka smiðshöggið á,“ segir Logi.
Þessa þróun sagði Logi ekki bara
skynsamlega af fjárhagslegum ástæð-
um. Borgin væri orðin fallegri og
heilsusamlegri. Þá væru þessi áform
líkleg til að bjarga ríkisstjórninni fyrir
horn í loftslagsmálum.
„Ekkert er minnst á hið byggða
umhverfi í stjórnarsáttmálanum og
nýr umhverfisráðherra hefur ekki
gefið nein skýr fyrirheit í þeim efnum.
Þrátt fyrir að þar sé einna mest að
sækja í aðgerðum gegn loftslagsvánni.
Það er því mikilvægt að okkur vegni
vel í vor: Í þeim kappleik munu eigast
við fortíðin og framtíðin,“ sagði Logi.
Formaðurinn gagnrýndi ríkis-
stjórnina hart fyrir að hafa ekki eflt
félagslegan stöðugleika. „Það að
langstærstu aðildarfélögin innan
ASÍ vilji segja upp kjarasamningum
segir ákveðna sögu. Getuleysið til að
fjármagna bætt kjör almennings er
ömurlegt og ógnar félagslegum og
efnahagslegum stöðugleika,“ sagði
hann og gagnrýndi að vopnaflutning-
ur til stríðshrjáðra landa væri heimil-
aður en framlög til þróunarmála og
móttaka flóttamanna væru langt frá
eðlilegum viðmiðum.
Svo sagði Logi þingið ekki hafa
bönd á sjálftöku þingmanna og
birta upplýsingar seint eða alls ekki.
„Skýrslum er leynt og stjórnsýslan
stenst illa skoðun. Og loks situr dóms-
málaráðherra brött, þrátt fyrir að hafa
fengið á sig hæstaréttardóm vegna
skipanar heils nýs dómstigs.“
jonhakon@frettabladid.is
Reykjavík breyst úr úthverfisbæ
í iðandi og nútímalega borg
Einar Logason, formaður Samfylkingarinnar, segir þrekvirki hafa verið unnið við að reisa flokkinn aftur
upp á hnén eftir mikið reiðarslag. Samfylkingin og R-listinn hafi breytt Reykjavík úr umkomulitlum út-
hverfabæ í nútímalega borg. Samfylkingin eigi að verða „aftur sá burðarflokkur sem almenningur þarfnist“.
Formaður Samfylkingarinnar segir getuleysi ríkisstjórnarinnar til að fjár-
magna bætt kjör almennings vera ömurlegt. Fréttablaðið/Ernir
dómSmál Allir fimm sakborningarn-
ir í markaðsmisnotkunarmáli Glitnis
voru fundnir sekir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Lárusi Welding,
fyrrverandi bankastjóra Glitnis, var
hins vegar ekki gerð refsing. Þetta
kom fram á frettabladid.is í gær.
Jóhannes Baldursson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta, var dæmdur í tólf mánaða
fangelsi. Þrír starfsmenn eigin við-
skipta bankans hlutu skilorðs-
bundna dóma. Jónas Guðmundsson
hlaut tólf mánaða skilorðsbundið
fangelsi, Valgarð Már Valgarðs-
son níu mánaða skilorðsbundið
fangelsi og Pétur Jónasson sex
mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Enginn ákærðu var viðstaddur
dómsuppkvaðninguna. Fimmmenn-
ingarnir voru ákærðir fyrir mark-
aðsmisnotkun en Lárus var einnig
ákærður fyrir umboðssvik.
Aðalmeðferð málsins fór fram í
janúar. Ákæruvaldið fór fram á allt
að átján mánaða fangelsi yfir starfs-
mönnum eigin viðskipta, en krafðist
ekki refsingar yfir Lárusi því hann
hefur náð hámarksrefsingu í öðrum
hrunmálum, sem er sex ára fangelsi.
Jóhannes Baldursson hafði áður
hlotið fimm ára fangelsi. – sks
Dæmdir sekir
um umboðssvik
lögmenn mættu án sakborninganna
til dómsuppsögu. Fréttablaðið/StEFán
Stjórnmál Þórólfur Árnason, for-
stjóri Samgöngustofu, sagði við
frettabladid.is í gær að engin lög
hefðu verið brotin er flugfélaginu
Atlanta var heimilað að flytja vopn
til Sádi-Arabíu. Sérfræðiþekking á
málaflokknum væri þó takmörkuð
hjá stofnuninni.
„Það hafa engin lög verið brotin
og það hefur verið farið eftir öllum
reglugerðum. Allir flutnings aðilar
hafa staðið sína plikt samkvæmt
alþjóðlegum skuldbindingum,“
sagði Þórólfur. Hins vegar séu
breytt viðhorf til alþjóðamála.
Þórólfur sat í gær sameigin-
legan fund utanríkismálanefndar
Alþingis og samgöngunefndar, þar
sem rætt var um flutning vopna frá
Íslandi til Sádi-Arabíu, sem heimil-
aður var af íslenskum stjórnvöld-
um. Sagði Þórólfur að skilningur
allra hefði verið sameiginlegur –
breyta ætti verkferlum, þannig að
málaflokkurinn myndi framvegis
heyra undir utanríkisráðuneytið,
ekki samgönguráðuneytið.
Aðspurður sagði Þórólfur ýmis-
legt mega betur fara. Til dæmis
væri sérfræðiþekkingu á vopnum
hjá Samgöngustofu talsvert ábóta-
vant. Stofnunin hefði reynt eftir
bestu getu að setja sig inn í málin.
Þórólfur hefur engin gögn viljað
afhenda um málið, og Samgöngu-
stofa neitað að tjá sig. Hann kvaðst
ekki vilj baka Samgöngustofu
mögulega skaðabótaskyldu.
„Ég persónulega treysti mér ekki
til þess að veita upplýsingar út á
við nema að fyrir liggi einhvers
konar úrskurðir,“ sagði Þórólfur.
– sks
Brutu ekki lög í
vopnaflutningi
Þórólfur árnason,
forstjóri Sam-
göngustofu.
3 . m a r S 2 0 1 8 l a U G a r d a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-B
8
8
8
1
F
1
D
-B
7
4
C
1
F
1
D
-B
6
1
0
1
F
1
D
-B
4
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K