Fréttablaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 24
Vináttulandsleikur
Japan 2-1 Ísland
(1-0)
Við getum létt undir
Umönnun foreldra er gefandi en getur tekið á vegna annríkis í daglegu lífi.
Við getum létt undir með sveigjanlegri aðstoð á heimilinu og ráðgjöf.
Heimahreyfing
– sérsniðin styrktarþjálfun
Aðstoð við böðun
Innlit
Viðvera
Aðstoð við heimilishald
Útréttingar og bæjarferðir
PO
RT
h
ön
nu
n
(
HEIMA
Heilsa Vellíðan Daglegt líf
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Sími 563 1400
soltunheima@soltunheima.is
www.soltunheima.is
Hjúkrunarfræðingur kemur heim og saman finnum
við þjónustuúrræði fyrir þínar þarfir. Fyrsta heimsókn
án skuldbindingar og kostnaðar.
Persónuleg og sveigjanleg þjónusta
Sara kom með baráttu inn af bekknum en náði á sama tíma að róa taugar íslenska liðsins og koma meiri yfirvegun í spilamennskuna. fRÉTTABLAÐIÐ/epA
Yngri leikmennirnir
mega gera mistök á
æfingarmótum en lykillinn
er að þú hafir lært af þeim
þegar kemur að keppnis-
leikjum.
Freyr Alexandersson
1-0 Yuika Sugasawa (15.), 1-1 Glódís
Perla Viggósdóttir (74.), 2-1 Rumi
Utsugi (85.).
Byrjunarlið Íslands (3-5-2): Guðbjörg
Gunnarsdóttir; Anna Björk Kristjáns-
dóttir, Guðný Árnadóttir, Ingibjörg
Sigurðardóttir (46. Glódís Perla Vig-
gósdóttir) ; Selma Sól Magnúsdóttir,
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (70.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir), Katrín
Ásbjörnsdóttir (60. Rakel Hönnudóttir),
Andrea Mist Pálsdóttir (60. Sara Björk
Gunnardóttir), Anna Rakel Pétursdóttir;
Hlín Eiríksdóttir (85. Svava Rós Guð-
mundsdóttir), Berglind Björg Þorvalds-
dóttir (46. Agla María Albertsdóttir).
3 . m a r s 2 0 1 8 L a U G a r D a G U r24 s p o r t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
sport
FótBoLti Íslenska kvennalandsliðið
var fimm mínútum frá því að ná í gott
jafntefli gegn Japan á Algarve-mótinu
en þurfti að sætta sig við svekkjandi
1-2 tap. Stelpurnar okkar náðu að
jafna metin korteri fyrir leikslok og
var jafnræði með liðunum þegar
Japan komst aftur yfir með skalla-
marki stuttu fyrir leikslok eftir slakan
varnarleik hjá íslenska liðinu.
Vantaði hugrekki framan af
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska
liðsins, gerði tíu breytingar á byrjun-
arliðinu fyrir leikinn. Vildi hann gefa
yngri leikmönnum tækifæri til að ýta
við eldri leikmönnum og auka breidd-
ina. Honum fannst vanta kjark í spila-
mennsku liðsins í fyrri hálfleik þegar
Fréttablaðið heyrði í honum í gær.
„Við gerðum tíu breytingar til að
dreifa álaginu en líka til að gefa nýjum
leikmönnum tækifæri. Eitt af mark-
miðum okkar er að gefa tækifæri og
auka breiddina en á sama tíma skapa
samkeppni um byrjunarliðssætin. Til
þess að sanna þig á efsta stigi verður
þú að fá tækifæri og vera óhrædd. Í
fyrri hálfleik fannst mér vanta hug-
rekki og frumkvæði hjá stelpunum.
Það virtist vera smá sviðsskrekkur í
þeim.“
færð enga kúta á þessu stigi
Freyr vonast til þess að yngri leik-
menn liðsins nýti sér reynsluna sem
fæst af því að spila gegn bestu liðum
heims þótt þetta sé aðeins æfingamót.
Stærri verkefni bíði handan hornsins.
„Leikmenn mega gera mistök
hér en lykillinn er hvort þú lærir
af þeim, á þessu stigi er þetta bara
eins og að hoppa út í djúpu laugina.
Þú verður að geta synt og færð enga
kúta til að bjarga þér. Eftir þetta
verða þær að verða tilbúnari þegar
komið er að keppnisleikjum,“ sagði
Freyr sem var ekki ánægður með
varnarleikinn í báðum mörkunum.
„Það eru mistök alls staðar á vell-
inum í fyrsta markinu, það var lélegur
varnarleikur frá fremsta manni alveg
aftur til Guðbjargar í markinu. Svo í
seinna markinu er þetta bara klaufa-
gangur hjá okkur, við getum ekki
leyft okkur að klúðra svona hlut gegn
jafn sterkum mótherja,“ sagði Freyr
svekktur.
Færð enga hjálparkúta í djúpu lauginni
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, var vonsvikinn yfir skorti á kjarki og áræðni framan af í leik Íslands og
Japans í gær. Hann vonaði að yngri leikmennirnir myndu grípa tækifærið og öðlast reynslu gegn einu af bestu landsliðum heims.
Þorðum loksins að líta upp
Íslenska liðið náði betri tökum á
leiknum í seinni hálfleik. Hann sagði
leikmennina loksins hafa farið eftir
fyrirmælum sem gefin voru fyrir leik.
„Við áttum að gera betur í fyrri hálf-
leik en það var allt annað að sjá til
okkar í seinni. Við fórum að gera það
sem við lögðum upp með fyrir leik,
loka á miðjuna og reyna að ýta þeim út
á kantana. Fara í návígi af krafti en ekki
af hálfum hug. Sóknarlega fórum við
að líta upp og reyna að finna plássið í
staðinn fyrir að hreinsa blint upp völl-
inn. Eftir að við jöfnum metin finnst
mér leikurinn jafn þar til þær skora
þetta mark sem reyndist sigurmarkið.“
kristinnpall@frettabladid.is
0
3
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
D
-D
B
1
8
1
F
1
D
-D
9
D
C
1
F
1
D
-D
8
A
0
1
F
1
D
-D
7
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
2
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K