Fókus - 15.08.1978, Qupperneq 4
SAGA LJÖSNIYNDA M. é 6/s. 3
hrxðskotariffill og var hann
ætlaður til að kanna hreyf-
ingar manna og dýra. Riffill
þessi er fyrirrennari kvik-
myndatökuvélarinnar, mun
hann hafa tekið 15 myndir
á sekúndu en nútima kvik-
myndatökuvél tekur 24
myndir (ramma) á sekúndu
þegar eðlilegur hraði er
tekinn. Heiðurinn af þessum
riffli á franski ljósmyndarinn
Jules Etienne Marey og er
riffillinn smiðaður i kringum
■1880.
í byrjun tuttugustu aldar-
innar byrjar áhugaljósmyndun
að breiðast út. Framfarir
og umbætur komu i flóð-
bylgjum, nú gátu fleiri en rika
fólkið farið að stunda ljós-
myndun. Myndavélin sem átti
einna mestan þátt i þvi að
breiða áhugaljósmyndun
út til fleiri en riks fólks var
kassamyndavélin sem East-
mann Kodak lét á markaðinn
rétt fyrir aldamót. Sú vél
hélst næstum óbreytt á mark-
aðinum i 50 ár.
Kassavél frá KODAK sem
hélst á markaðinum í meira
en 50 ár.
Árið 1914 byrjaði fyrri
heimsstyrjöldin, þá tók ljós-
myndatæknin kipp. Þá varð
not fyrir meiri tækni og meiri
hraða, nýjungarnar voru
iðnvæddar og allir ljósmynd-
arar nutu góðs af. Á milli-
striðsárunum hélt þróunin
áfram, áhugaljósmyndun
var i miklum blóma og mynda-
vélar tiltölulega ódýrar. En
svo kom áfallið. Seinni
.heimsstyrjöldin stöðvaði alla
|framleiðslu og ljósmynda-
iðnaðurinn lagðist i lágdeyðu
að öllu leiti að einu atriði
lundanskildu. Við teikni-
Jjorðin sátu framsýnir menn
ig gerðu áætlanir. Það var
ekki fyrr en sex árum eftir
striðslok að áætlanir þessara
manna fóru að verða að veru-
leika. Uppúr 1950 fór ljós-
myndatæknin að taka á sig
þá mynd sem nú er. Að sjálf-
sögðu heldur þróunin áfram
og má nefna vasamvndavélar
og reflex vélar sem helstu
nýjungar siðustu ára.
í þessari grein hefur verið
stiklað á stóru í sambandi við
sögu ljósmyndanna, en ég
vil svona i lokið eindregið
hvetja menn til að nota ljós-
myndatæknina sem mest.
Á siðustu tiu árum hefur
almenn myndavélaeign
tvöfaldast. Nú er myndavél
á svo að segja hverju heimili,
gallinn bara sá að þessar
heimilisvélar eru grátlega
litið notaðar.
Sparið ekki filmuna, mynd
er góð minning.
HH.