Fókus - 15.08.1978, Blaðsíða 8

Fókus - 15.08.1978, Blaðsíða 8
hvernig á ad gera 8 mm. kvikmynd ? slatti af gödum rádum o. fl. Eit af mörgu sem vantar hér á landi er leiðbeiningabók á íslensku um gerð 8mm kvik- tækinu Kodak. Flestir þeirra eru þó nokkuð gamlir þannig að I sumum tilfellum er sumt sem sagt er í þeim bókum orðið úrelt vegna örrar tækni- þróunar. ad byrja Til að byrja með skaltu búa til handrit. Einnig er gott að gera skyssur sem sýna frá hvaða sjónarhorni þú tekur. Þegar það er tilbúið er ekki eftir neinu að biða (gefðu þér þó góðan tíma til að semja handritið og gera endurbætur á þvi) og þú skalt smala saman leikurum. Æfið siðan hvert atriði fyrir töku mjög vel þannig að leikarinn veit uppá hár hvað hann á að gera og tökumaðurinn lika. Ef um hljóðupptöku er að ræða þarf að vanda sig enn meira og jafnframt verður að gæta þess að engin hljóð sem ekki eiga heima i myndinni heyrist. Reynið að halda hljóðnem- anum sem næst leikurunum en þó ekki þannig að hann sjáist. Þetta á þó ekki við i öllum tilfellum. Leikararnir verða að gæta þess vel að horfa aldrei i linsu vélarinnar. Ef þeir gera það þá verður myndin ekki eins raunveruleg og ella. Kvikmyndatökuvélin er aðeins auga áhorfandans og leikararnir eiga að láta eins og hún sé ekki til. takan í spennumynd er hægt að mynda sum atriði á þannig hátt að takan eykur enn meira áhrifin. Dæmi: Maður labbar á gangstétt og með hendur i vösum. Það er skuggsýr.t. Hann gengur hægt og rólega og aðeins er tekið af neðri hluta hans, ekki andlitinu. í þessum þáttum verður leitast við að bæta úr þessari þörf og mun verða fjallað um allar gerðir kvikmynda, leiknar myndir, heimildamyndir, fjölskyldumyndir o.sv.frv. 2. dæmi: Tökuvélin verður auga einnar sögupersónunnar. Tökumað- urinn gengur hægt og hægt að einhverju marki, t.d. hurð. Og þannig er hægt að halda áfram. Með hljóðeffektum fullkomnar maður svo verkið. í öllum myndum hefur myndatakan mikið að segja sérstaklega ef vélin er búin ýmsum tæknilegum mögu- leikum svo sem zoomlinsu, útbúnaði til að myndblanda, (mixa) fade-a og fleiru. Zoomlinsa er aðallega ætluð til þess að spara fólki bæði tíma og peninga þvi hún kemur i stað margra aðdráttar- linsa sem sifellt þarf að setja á og taka af. Einnig er hún notuð til að leggja áherslu á eitthvað. En hana skal nota i hófi. Mis er venjulega notað i þeim tilgangi að sýna ákveðinn tima liða. Löng mixing þýðir að langur timi er á milli tveggja atriða sem mixað hefur verið saman en stuttu þýðir að stuttur timi liði. Fadeing þýðir venjulega endir á einhverju. Þá er myndin fadeuð niður i svart og þegar næsta'atriði er tekið er venjulega fadeað upp á sama hraða og fadeað var niður. atburdarás Svo er aðalmálið, atburðar- rás. Það virðist aiiðvelt i fljótu bragði að byggja upp atburðarrás. En það verður að gæta þess að sýna ekki of mikið eða of litið. Við skulum taka sem dæmi hasarmynd 8

x

Fókus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fókus
https://timarit.is/publication/1277

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.