Fókus - 15.08.1978, Blaðsíða 11

Fókus - 15.08.1978, Blaðsíða 11
Síonvarp en fimm voru ettir islenska höfunda, meðal þeirra Maður og kona (14) og Hrólfur (15). Síðan hefur fjöldi viðfangsefna árlega að með- altali verið nálægt 8, þótt ekki hafi sú tala ver- ið stöðug frá ári til árs. Kemur þar tii bæði mjög misjöfn stærð verkefna og misgóð fjár- hagsstaða stofnunarinnar. En hlutur íslenskra leikrita hefur vaxið mjög. Frá og með 1970 hafa verið tekin upp og flutt í sjónvarp 43 ís- lensk leikrit og 11 erlend, en á tímabilinu öllu frá upphafi Sjónvarpsins eru íslensku leikrit- in 51 og hin erlendu 21. Sum árin hafa öll sjónvarpsleikritin verið íslensk, svo sem árið 1971, er þau voru 9 talsins, og 1973, þegar 8 íslensk leikrit voru flutt. Nokkur hin stærstu þessara verka teljast til sígildra íslenskra leikbókmennta eða byggjast á vel þekktum bókmenntaverkum. svo sem Maður og kona og Hrólfur, sem áður voru nefnd, Galdra-Loftur (29), Kristrún í Hamra- vík (31), í Skálholti (38), Brekkukotsannáll (47), Vér morðingjar (54) og Lénharður fógeti (62). Sum þessi verk mega teljast nýsmíði í þessari gerð, og önnur hafa verið samin beint fyrir Sjónvarpið eða a.m.k. birst fyrst þar. Slík- ar frumsýningar hafa að meðaltali verið um 4 á ári síðan 1970 og nálgast 30 á öllu tímabilinu, síðan Sjónvarpið tók til starfa. Þær eru auð- kenndar með stjörnu í eftirfarandi skrá. Langflest leikrit Sjónvarpsins hafa verið tekin upp á myndsegulband í sjónvarpssal. En oft hafa verið felld inn í þau kvikmynduð atriði (einkum útiatriði), og einstaka verk hafa verið að öllu leyti unnin á filmu. Mest þeirra eru sjón- varpskvikmyndirnar Brekkukotsannáll, sem er í tveimur hlutum, og Lénharður fógeti. Einnig hafa verið gerðar tilraunir með myndsegul- bandsupptökur undir berum himni (36 og 50). Eitt leikrit hefur verið tekið upp á sviði Þjóð- leikhússins (56). Samvinna við leikhús höfuðborgarinnar hefur yfirleitt verið mjög góð. Sjónvarpið hefur að vissu marki notið starfskrafta þeirra leikara og leikstjóra, sem við leikhúsin starfa, og hefur einatt verið sýnd tilhliðrunarsemi af hálfu leik- húsanna, þegar upptökur hafa staðið yfir f Sjónvarpinu. Nokkur leikrit hafa verið flutt af sviðum leikhúsanna í sjónvarpssal og tekin þar upp til útsendingar (t.d. 14, 23, 26, 46). Einnig hefur verið tekin upp á þennan hátt sýning frá Leikfélagi Akureyrar (60). Leikstjórar, sem starfað hafa fyrir Sjónvarpið eru nær 30 talsins. Flestum sýningum hafa stjórnað þeir Gísli Alfreðsson, Baldvir. Halldórs- son, Helgi Skúlason, Sveinn Einarsson, Guðrún Ásmundsdóttir og Klemenz Jónsson. Leikarar, sem komið hafa fram í siónvarpsleikritum, munu losa hundraðið, auk ,,statista", og ýmsir FRH. I NAíTfl IbLABÍ

x

Fókus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fókus
https://timarit.is/publication/1277

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.