Fókus - 15.08.1978, Síða 15
TÆKJABÚNAÐUR
Verulegur hluti af tækjabúnaði Sjónvarpsins e
frá því er það hóf starfsemi sína að Laugavegi
176 árið 1966. Upptaka á innlendum dagskrám
þess fer að miklu leyti fram í einum upptökusal,
og eru þar eingöngu notaðar sjónvarpsmynda-
vélar, og efnið oftast fest á myndsegulbönd til
flutnings síðar, þótt nokkuð sé um beinar út-
sendingar. Sjónvarpið hefursíðan 1972 átt upp-
tökubifreið, búna frumstæðum tækjum, en vor-
ið 1975 fékk það tvær notaðar samstæðar upp-
tökubifreiðar frá norska sjónvarpinu, sem bæta
mjög sjónvarpsupptökur utan húss.
Sjónvarpið hefur einnig á að skipa fjórum kvik-
myndatökuliðum, og vinnur eitt liðið jafnan að,
töku fréttaefnis. Mikið er kvikmyndað í ýmsarl
samsettar dagskrár, auk þess sem ýmsir þætt-
ir eru kvikmyndaðir í heild sinni. Sérstakt kvik-
myndastúdíó var tekið í notkun í húsi Sjónvarps-]
ins á árinu 1975, og léttir það nokkuð á rekstri
hins eiginlega sjónvarpsupptökusalar.
LEIKRITAGERÐ SJÓNVARPSINS
Þegar undirbúningur að íslensku sjónvarpi
hófst, var ekki búist við, að það mundi hafa
bolmagn til leikritagerðar á eigin spýtur, a.m.k.
fyrstu árin, og þá 3 mánuði, sem Sjónvarpið
starfaði á árinu 1966, var ekki aðhafst í því efni.
En snemma var tekið að þreifa fyrir sér um
petta, þótt varlega væri farið í upphafi, og á
yrsta heila starfsári Sjónvarpsins, 1967, voru
ýnd tvö leikrit, tekin upp í sjónvarpssal, en að
|vísu þangað komin af leiksviði (1 og 2 á eftir-
arandi skrá). Áður en hálft annað ár var liðið
Ifrá því að sjónvarpsútsending hófst, var frum-
sýnt fyrsta íslenska sjónvarpsleikritið, Romm
handa Rósalind (4), og á sama ári, 1968, var
íka tekin upp og flutt fyrsta óperan og stærsta
viðfangsefni Sjónvarpsins til þess tíma,
Amahl og næturgestirnir (8). Alls urðu við-
fangsefnin 8 þetta ár, flest þýdd smáleikrit, en
laðeins tvö íslensk.
Árið 1969 voru viðfangsefnin einnig 8 og að-
eins eitt þeirra nýtt, Jón í Brauðhúsum (16),
(
.V-VíílMí' %
■
.
I ' 1 ,-r r-i'- ' ■' * ‘ i
■ ,/: ' “ 1 ,
U|Sl )
'”W
15