Fókus - 15.08.1978, Blaðsíða 19
Af John
Schlesinger
Hinn heimsfrægi leikstjóri John Schlesinger
situr aldeilis ekki aðgerðarlaus þessa dagana. Hann
er nú með eina myndina i takinu og fjallar hún um
bandariska hermenn i Bretlandi og er sögusviöiö
seinni styrjaldarárin.
Shclesinger er nú aftur byrjaður að filma i Breta-
veldi eftir sjö ár i Bandarikjunum. Siðasta mynd hans
sem barst hingað til lands var Marathon Man ef ég
man rétt.
Hinn 51 árs gaml
ítalski leikstjóri Federico
Fellini er nú aó fara a
staó meö nýja kvikmynd.
Nefnist húnTHE CITY
OF WOMEN og er tekin
í Cincecittá stúdíóinu
I Róm. Ekki tókst aö
grafa mikió upp um efni
myndarinnar en þó ska
þess getiö aó myndin
er aó sjálfsögóu kyn-
feróislegs eölis..
Þama er verið að filma atriði úr YANKS. Sá sem örin vísar á er sjálfur bossinn,
John Schlesinger.
En svo haldið sé áfram að tala um YANKS.
í litlu þorpi i Yorkshire eru þrjár konur sem finnst
tilveran í slappara lagi. En þegar bandarikjamenn
koma lifnar allt við og verður léttbærara. Konurnar
þrjár eru ieiknar af Vanessu Redgrave, Lisu Eichorn
og Wendy Morgan.
Fellini er iðinn við kolann.
Myndin gengur útá náin samskipti þessara þriggja
kvenna og hermannanna bandarisku sem bretar
kölluðu YANKS. Fremstur i flokki hermannanna
er Richard Gere sem er nokkuð þekktur fyrir leik
sinn i myndinni LOOKING FOR MR. GOODBAR
eftir Richard Brooks.
Ekki er vitað hvenæt YANKS kemur til landsins
eða hvaða bió sýnir hana. Á meðan er bara að biða
og vona.
ÁKS.
Schlesinger ásamt Colin Welland, höfundi handrits.
19