Myndmál - 01.10.1983, Qupperneq 2

Myndmál - 01.10.1983, Qupperneq 2
------------------- 22 árum síðar er Norman Bates laus Robert Loggia, leikstjórinn Richard Franklin og Anthony Perkins viö tökur á Psycho II. 22 árum eftir frumsýningu best heppnuðustu hrollvekju allra tíma, Psycho Alfreds Hitchcoks, er Psycho II komin til sögunnar. Anthony Perkins er aftur í sömu rullunni, sem móteleigandinn Norman Bates, útskrifaður frá geðveikrahælinu sem „heilbrigð- ur“ eftir 22 ára meðferð. Einnig er Vera Miies í sínu gamla hlut- verki (sem Lila, systir þeirrar sem myrt var í sturtunni). í öðrum helstu hlutverkum eru Robert Loggia og Meg Tilly: Leikstjóri er Richard Franklin og handrit er eftir Tom Hoiland. Vitnum í Anthony Perkins: „Auðvitað er Norman Bates breyttur eftir 22 ára vist á geð- veikrahæli. Hann er meira með- vitaður nú og veit að hann hefur tilhneigingu til að vera hættuleg- ur. En hann er ljúfmenni og með ýmsa jákvæða eiginleika. Ég tel að áhorfendur fái samúð með honum“. Sem frumraun sína í leikstjórn valdi framleiðandinn Stanley R. Jaffe vinsæla sögu Beth Gutcheon, Still Missing, um við- brögð fráskildrar móður (Kate Nelligan) þegar 6 ára sonur henn- ar hverfur gjörsamlega án þess að skilja eftir sig nokkra slóð. Myndin nefnist Without a Trace og var nýlega frumsýnd við já- MYNDMAL Útgefandi: Myndmál, Arnarhrauni 8, 220 Hafn- arfirði, sími 5 26 33. Ritstjórí og ábyrgðanmaður Ásgrímur Sverrisson. Setning: Acta hf. Filmu- vinna og prentun: Steinmark sf. Verð í laus- asölu: 55 krónur. Verð í á- skrift: 275 kr. fyrir 5 blöó. kvæðar undirtektir. Jaffe, sem las handritið og keypti kvikmyndaréttinn níu mánuðum áður en bókin kom út, virðist hafa tilfinningu fyrir bók- menntum sem henta vel kvik- myndaforminu. Hann tryggði sér einnig rétt til að kvikmynda sögur Awery Corman, Kramer vs. Kramer og Devery Freeman Father Sky (kvikmyndin hlaut nafnið Taps) áður en þær voru gefnar út. Eins og áður sagði leikur Kate Nelligan (Eye of the Needle) aðal- hlutverkið, móður drengsins sem hverfur og í öðrum hlutverkum eru David Dukes sem faðirinn (hefur yfirgefið heimilið) en lög- reglan grunar hann til að byrja með um að vera valdur að hvarfi drengsins, Judd Hirsch (Ordinary People) leikur lögregluforingjann sem stjórnar leitinni að drengnum og Stockhard Channing (Grease) leikur nágrannavinkonu. Bókin um Spielberg „Svo þú hélst að þú vissir allt um Steven Spielberg"? Tony Crawley, þekktur dálka- höfundur bresku kvikmynda- blaðanna Films Illustratet og Photoplay sendi nýlega frá sér bók um Spielberg. Þetta merkisrit mun innihalda hinar fróðlegustu upplýsingar um kappann ásamt ýmsu því sem uppúr honum hefur oltið. Bókin er 160 síður í stóru broti með fjölda mynda. Áhuga- menn um fyrirbærið Spielberg geta pantað bókina hjá Zomba Books, Zomba House, 165-167 Willesdes High Road London NW 10 2SG en verðið mun vera í kringum 5 pund. Redford snýr aftur Aðdáendur Roberts Redford hafa nú eitthvað til að gleðjast yf- ir þessa dagana því að kempan hefur nú ákveðið að snúa sér aft- ur að kvikmyndum. Ekki þó sem leikstjóri eins og flestir bjuggust við, heldur samþykkti hann að taka að sér aðalhlutverkið í The Natural sem Barry Leveinson (Diner) leikstýrir. Siðan Redford hlaut Óskar árið 1981 fyrir leik- stjórn myndarinnar Ordinary People, hefur hann að mestu haldið sig í Sundance skíðaskál- unum sínum í Utah, lesið hvert handritið á fætur öðru og hafnað þeim jafnóðum. Redford hafnaði einnig aðalhlutverkinu í japansk- ameríska þrillernum The Ninja og menn töldu að í framtíðinni myndi hann eingöngu halda sig bakvið myndavélina. En Robbi er greinilega ekki allur þar sem hann er séður og birtist nú á hvíta tjald- inu eftir þriggja ára hlé, en hann lék síðast í Brubaker árið 1980. 2 MYNDMÁL

x

Myndmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.