Myndmál - 01.10.1983, Qupperneq 10
Verk Halldórs Laxness eru tví-
mælalaust þær uppsprettur
skáldamjöðsins sem bæði inn-
lendir og erlendir kvikmynda-
gerðarmenn telja töfradrykk fyrir
myndsmiðar sínar, ef marka má
þann áhuga sem þeir hafa sýnt
Nóbelskáldinu um dagana.
Myndgerð einnar þekktustu
sögu Laxness, Atómstöðin, er nú
í vinnslu á vegum kvikmyndafé-
lagsins Óðins sem áður gerði
kvikmyndina Punktur, Punktur,
Komma, Strik.
Kvikmyndun Atómstöðvarinn-
ar hefur verið í undirbúningi frá
árinu 1981 og stóð m.a. til að
filma i fyrrasumar en aðstand-
endur tóku þann kostinn að fresta
tökum og vanda betur til hand-
ritsgerðar. í júní s.l. var svo hafist
handa og voru innitökur mynd-
aðar í stúdíói Aðstöðu við Vatna-
garða i Reykjavík. Önnur atriði
myndarinnar voru tekin í Skafta-
felli og á ýmsum stöðum í borg-
inni.
Atómstöðin gerist á eftirstríðs-
árunum. Ugla, ung, falleg og
greind sveitastúlka kemur til höf-
uðborgarinnar og ræður sig í vist
hjá alþingismanninum Búa
jaún/isröuN
Árland sem er þingmaður fyrir
heimahérað hennar. Einnig ver
Ugla tíma sínum í að læra á orgel
hjá Organistanum (Árni
Tryggvason) en þar kynnist hún
ungum hugsjónamanni, Gunnari
(Arnar Jónsson) og verður barns-
hafandi af hans völdum. Um leið
verður hún ástfangin af þing-
manninum og á erfitt með að gera
uppá milli þessara tveggja
manna. Jafnframt fylgjumst við
með leynimakki stjórnmála-
manna sem undirbúa stofnun
atómstöðvar á íslandi og við-
brögðum almennings þegar frétt-
irnar spyrjast út.
Leikstjóri myndarinnar er Þor-
steinn Jónsson og aðstoðarleik-
stjóri og upptökustjóri er Þór-
hallur Sigurðsson. Fram-
kvæmdastjóri er Örnólfur Árna-
Þjónar laga og réttar færa Arngrím heim,
illa á sig kominn.
j tækniliðinu er harðsnúiö lið að finna. Lois Kramer hljóömeistari
hefur m.a. unnið með Bill Forsyth og kvikmyndatökumaður er Karl
Óskarsson sem áður hefur filmað Okkar á Milli og Á Hjara Veraldar
auk þess að hafa vákið athygli fyrir vel unnar auglýsingamyndir.
Við hliö hans má sjá aðstoöarhljóðmanninn, Tony Cook, sem tekið
hefur uppTiTaar isfenskar hljómplötur í gegnum tíðina.
Þorsteinn Jónsson
leikstjóri Atómstöðvarinnar.
HRAfíim
FLYGUR
Kvikmyndafélag Hrafns Gunn-
laugssonar, F.I.L.M. stendur
þessa dagana fyrir gerð kvikmynd-
arinnar Hrafninn flýgur eftir
handriti Hrafns. Myndin er fram-
leidd í samvinnu við sænska aðila
og hljóðar kostnaðaráætlun uppá
rúmar 10 milljónir króna. Þetta
verkefni er því eitt það stærsta
sem íslenskir kvikmyndagerðar-
menn hafa ráðist í til þessa, ef
undan er skilin myndin Atóm-
stöðin sem nánar er fjallað um
annarsstaðar á opnunni.
Hrafninn flýgur er eins og áður
sagði, hugarsmíð Hrafns Gunn-
laugssonar, sem með fyrri mynd-
um sinum hefur jafnan tekist að
skipta fólki í tvo hópa varðandi
viðhorf til þeirra. Hann segir
þetta verkefni vera nokkurskonar
,,æfingu“ fyrir stórvirkið Gerplu
(eftir sögu H. Laxness), eða leitina
að réttu umbúðunum og frásagn-
araðferð myndmálsins.
Myndin gerist á landnámsárum
íslands. Gestur (Jakob Þór Ein-
arsson úr Óðali Feðranna) kemur
til íslands með hefnd í huga.
Hann leitar tveggja fóstbræðra
sem orðið höfðu foreldrum hans
að bana og numið burt systur
hans. Sagan lýsir síðan leit hans
að þessum mönnum og viðbrögð-
um þeirra við þessum óvænta
(vá)Gesti.
Fóstbræðurnir eru leiknir af
Helga Skúlasyni og Borgari
Garðarssyni. í öðrum helstu hlut-
verkum eru Egill Ólafsson, Edda
Björgvinsdóttir og Flosi Ólafs-
son.
Eins og nærri má geta stjórnar
Hrafn Gunnlaugsson verkinu, en
tökur fóru fram í sumar. Var
m.a. filmað við Drangshlíð og
Hrútafell í Austur-Eyjafjalla-
hreppi, Skiphelli í Landi, Höfða-
brekku við Vík í Mýrdal, í fjör-
unni undir Reynisfjalli og við
Kleifarvatn. Framkvæmdastjóri
son og kvikmyndatökumaður
Karl Óskarsson. Honum til full-
tingis eru Guðmundur Bjartmars-
son, Ásgeir Sigurvaldason og
Aðalsteinn Bergdal. Sigurjón
Jóhannsson sér um leikmynd og
Una Collins um búninga ásamt
Dóru Einarsdóttur. Hljóðstjóri
er Bretinn Lois Kramer sem m.a.
hefur unnið með Bill Forsyth að
myndunum Gregory’s Girl og
Local Hero (sjá umfjöllun annars
staðar i blaðinu) og Tony Cook er
aðstoðarmaður hans. Förðun var
í höndum Rögnu Fossberg, Guð-
rún Þorvarðardóttir sá um hár-
greiðslu og skrifta var Ella
Stefánsdóttir.
Atómstöðin er stærsta kvik-
myndaverkefni sem innlendir að-
ilar hafa tekist á við hingað til.
Kostnaðurinn verður í kringum
13-14 milljónir króna og telja að-
standendur hæpið að ná þeim
peningum inn á íslenskum mark-
aði. Því hafa verið gerðar ráðstaf-
anir til að selja myndina erlendis
og i þeim tilgangi var tekin upp
útgáfa með ensku tali jafnhliða
íslensku.
Stefnt er að því að frumsýna
myndina í lok janúar 1984.
Ugla á í vandræðum með Arngrim.
Tinna Gunnlaugsdóttir og Helgi
Björnsson í hlutverkum sínum.
var Edda Andrésdóttir, aðstoðar-
leikstjóri Þórhildur Þorleifsdótt-
ir, um kvikmyndatöku sáu tveir
þaulreyndir Svíar, Tony Forsberg
og Stefan Hencz, þeir höfðu sér
til aðstoðar þá Helga Má Jónsson
og Guðmund Kristjánsson,
Gunnar Baldursson og Gunn-
laugur Jónasson komu upp leik-
myndinni og Halldór Þorgeirsson
var ábyrgur fyrir leikmunum
ásamt Einari Unnsteinssyni og
Pétri Kjartanssyni. Hljóðmeistari
var Gunnar Smári Helgason,
búningahönnuður Karl Júlíusson
og Berglind Garðarsdóttir um-
sjónarmaður þeirra. Skrifta var
Þuríður Vilhjálmsdóttir og um
förðun sá Gunilla Gránsbo.
Klipping stendur nú yfir i Sví-
þjóð en áætlað er að frumsýna m
yndina um næstu jól.
10 MYNDMÁL