Myndmál - 01.10.1983, Blaðsíða 12

Myndmál - 01.10.1983, Blaðsíða 12
Þessa dagana má fastlega gera ráð fyrir að allir unnendur ísl- enskrar kvikmynda- gerðar (og þeir eru ekki svo fáir ef marka má aðsókn) séu annaðhvort mættir á sýningu nýj- Blaðamaðurinn kom sér beint að efninu. Blm.: Hversvegna gerir þú kvikmyndir Þráinn, af hverju varðstu ekki t.d. bifvélavirki? Þráinn gýtur hornauga á við- mælanda sinn og veltir því fyrir sér hvort hann sé starfinu vaxinn. Þráinn: Það er sennilega vegna þess hve ég er mikill klaufi . . . Eftir þennan forleik er vikið að alvarlegri hlutum. Óskemtntilegir mertn Nú hófst þú ekki kvikmynda- nám fyrr en kominn undir þrit- ugt. Hvernig stóð á þvi? Upphaflega ætlaði ég í þetta nám strax eftir menntaskólann og var búin að fá skólavist á frægum pólskum skóla. Þegar til kom voru menn svo óskemmtilegir að fara að tala um peninga, eftir að þeir voru búnir að segja að ég kæmist inn en ég átti auðvitað ekkert af þeim. Ég varð því að slá þessum fyrirætlunum á frest og fór að skrifa bækur i staðinn, það er ódýrara. En ég hafði að sjálf- sögðu áhuga á kvikmyndum áfram og reyndi að fylgjast með því sem var að gerast. Svo gerðist það á miðjum vetri, þegar ég var kennari útá landi og líkaði vel, að ég fann Moggann inná kennara- stofunni og sá þar auglýsingu frá Dramatiska Institutet í Svíþjóð. Ég tók mig til og sótti um, haf- andi ráðfært mig við vini og vandamenn sem reyndar réðu mér eindregið frá því . . . Hvemig var vistin þar? Hún var alveg frábær. Mér finnst það aðdáunarvert framtak hjá Svíum að reka þennan skóla og kosta þessa menntun sem eðli sínu samkvæmt er einhver sú dýr- asta sem völ er á. Það var ekki nóg með að ég fengi skólavistina ókeypis heldur fékk ég námsstyrk líka, svo ég hef ekki yfir neinu að klaga í þeim efnum. Þessi skóli er líka ólíkur flestum öðrum kvik- myndaskólum að því leyti að hann er mun styttri eða tvö ár. Það er reynt að hrúga miklu á þessi tvö ár og lögð megin áhersla á að kenna á praktískan hátt það fag sem maður er að læra. Fjögur fög eru kennd við skólann, fram- leiðsla kvikmynda, leikstjórn, kvikmyndataka og hljóðupp- taka. Menntunin fer að mestu ustu íslensku bíómynd- arinnar eða séu á leið- inni. Myndin sem um er að ræða er afkvæmi þeirra Þráins Bertels- sonar og Jóns Herm- annssonar og kallast NYTT LIF eftir handriti Þráins um tvo grallara úr Reykjavík sem hefja nýtt líf á vertíð í Eyjum. Oft hefur verið rætt við menn af minna til- efni og því skundaði Nýtt Líf fjallar um tvo unga hieiðursmenn, þá Þór Magnússon og Daníel Ólafsson. Þeir eru báðir ógiftir, Þór er reyndar nýskilinn við konuna sína. Þeir starfa á Hótel Sögu, þar sem Þór er þjónn og Daníel matsveinn. Þar tekst þeim að klúðra sínum málum svo rækilega aö þeir missa vinnuna og með svo eftirminnileg- um hætti að þeir telja atvinnumöguleika sína í Reykjavík ail takmarkaða á næstunni. Þá rekast þeir á auglýsingu um að það vanti vana menn á vertíð í Eyjum og drífa sig þangaó hið snarasta með Herjólfi. Þegar til Eyja er komið ráóa þeir sig á Vinnslustöðina hjá Víglundi verkstjóra sem í daglegu tali er kallaður Lundi. Til allrar óhamingju fyrir þá hefur Lundi rót- gróna andúð á Reykvíkingum. Þór og Daníel hreiðra um sig í verbúó og kynnast lífinu, bæði þar og í vinnunni. Þeir eru svolítið gamansamir og vegna þessarar gam- ansemi fer að verða þröngt um þá í frystihús- inu líka. Þá komast þeir í kynni við skipstjóra sem er afskaplega áhyggjufullur, svo að hann er hættur að geta sofið. Og skipstjóri sem ekki getur sofið, getur heldur ekki látið sig dreyma fyrir fiskiríi. Hann fær tröllatrú á Þór, heldur að hann sé svo berdreyminn aö hann muni bjarga fiskiríinu á bátnum, svo þeir fél- agar eru drifnir til sjós. Sjómennskuævintýrin veröa að vísu ekki mjög löng. Þessu lýkur svo þegar fer að vora og þeir félagar taka stefn- una á fast land, væntanlega til að hefja Nýtt Líf á nýjan leik... útsendari Myndmáls á fund leikstjórans og handritshöfundarins og hugðist herja úr honum ALLT SEM ÞIG LANGAR AÐ VITA UM NÝTT LÍF EN ÞORÐIR EKKI AÐ SPYRJA UM... leyti fram í praktísku formi, í staðinn fyrir að sitja og lesa lista- teoríur, listasögu, sálfræði, heim- speki og þviumlíkt, því ætlast er til að maður sé búinn að afla sér þeirrar menntunar áður en komið er inni skólann. Rnessanhataói Snorra... Síðan er það heimkoman . . . Þegar ég kom heim réðist ég til Sjónvarpsins sem dagskrárgerð- armaður. Þetta virkaði líkt og áframhald skólans því maður pródúseraði ósköpin öll af efni og hlaut reynslu sem ég held að hafi nýst manni ákaflega vel. Hjá Sjónvarpinu gerði ég svo fyrstu kvikmyndina mina, Snorra Sturluson. Eftir það hætti ég hjá Sjónvarpinu og stofnaði kvik- myndafélagið Norðan 8 ásamt góðu fólki og við gerðum kvik- myndina Jón Oddur og Jón Bjarni. Síðan kom Nýtt líf til sög- unnar en að öðru leyti hef ég unn- ið sem „frílans“ leikstjóri, bæði fyrir Útvarpið og eins stjórnaði ég áramótaskaupinu síðasta fyrir Sjónvarpið. Svo er ég alltaf að leika mér að því að skrifa. Bæði þessi tvö kvikmyndahandrit sem ég hef filmað og útvarpsþætti o.fl. Nú var Snorri Sturluson all umdeild mynd svo ekki sé meira sagt. Já, Islenska pressan hataði þá mynd frá upphafi. Blaðadómarn- ir um hana hér á landi voru kannski ekkert sérstaklega slæm- ir en pressan hataði þessa mynd frá fyrstu byrjun. Kannski var full ástæða til þess, um það dæmi ég ekki. Afturámóti var henni vel tekið í Noregi, þó að blöð hér hafi ekki séð ástæðu til að tíunda þá gagnrýni . . . 12 MYNDMÁL Myndirnar tók Sigurgeir Jónasson.

x

Myndmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.