Myndmál - 01.10.1983, Side 22

Myndmál - 01.10.1983, Side 22
Nú getur myndbandamanían brotist út óheft: ÆTLIÐIAÐ GLÁPA ÚR YKKUR AUGUN? HOPSCOTCH. Aðalhlutverk: Walther Matthau, Glenda Jackson. Leikstjóri: Ronald Neame. Matthau leikur CIA njósnarann Miles Kending sem verður ósáttur við atvinnurek- endur sína. Hann ákveður að hefna sín með þvi að skrifa endurminningar sínar. Hann sendir fyrsta kaflann til allra leyniþjónustu- stofnana heimsins og brátt taka fregnir að ber- ast að skrifin séu meira en lítið skaðleg og manninn þurfi að stöðva fyrir fullt og allt. Upp- hefst þá mikill eltingarleikur um Bandaríkin og Evrópu og gengur mikið á áður en yfir lýkur. Á ELLEFTU STUNDU. Aðalhlutverk: Charles Bronson, Lisa Eilbacher, Andrew Stevens, Gene Davis. Leikstjóri: J. Lee Thompson. Morðingi hefur gengið laus í stór- borginni um hríð, svo að almenningi stendur stuggur af eins og eðlilegt er. Yfirvöldin eru orðin langeygð eftir árangri hjá Leo Kessler, þrautreyndum rannsóknarlögreglumanni sem vinnur að málinu. Allar eftirgrennslanir hafa reynst árangurslausar því morðinginn er greinilega í slóttugra lagi. En grunur þeirra beinist þó smám saman að ungum manni og þegar unnt er að ná rödd hans á segulband og bera saman við fyrri upptökur af rödd morðingjans, er ekki lengur neinn vafi í huga Kesslers. En þetta nægir þó engan veginn eins og yfirmaður hans bendir honum á. Dómstólar taka ekki slík gögn til greina sem sannanir. Hinum grunaða er þvf sleppt með þeim afleiðingum að morðunum er haldið áfram. KÖTTURINN OG KANARÍFUGLINN. Aðal- hlutverk: Edward Fox, Wendy Hiller, Peter McEnry. Leikstjóri: Radley Metzger. Á höfuðbólinu Glencliff Manor er lesin upp erfðaskrá auðkýfingsins Cyrus West. Það er margt furðulegt við þennan upplestur og ekki síður erfðaskrána sjálfa, sem verður til þess að þarna fara að gerast ýmsir dularfullir at- burðir. Gestirnir taka að týna tölunni, ýmist hverfa eða finnast dauðir. Þetta verður allt dularfyllra þegar á líður, þar til loks tekst að finna lausnina, sem sannarlega kemur á óvart. SÆÐINGIN. Aðalhlutverk: Judy Geeson, Robin Clarke. Leikstjóri: Norman J. Warren. Hópur vísindamanna er við rannsóknir á fjarlægri plánetu. Fyrir óhapp losna þar úr læðingi ógnvænleg öfl — ofurkraftur sem verður örlagavaldur allra þeirra sem þarna eru. LEITIN AÐ FJÁRSJÓÐNUM. Aðalhlutverk: Rod Taylor, Stuart Whitman. Leikstjóri: Henry Levin. 22 MYNDMÁL Tveir vaskir menn, sem höfðu verið vinir í fyrra heimsstríði, hittast af tilviljun á Montego- flóa á Jamaica. Þar býr roskinn maður ásamt dóttur sinni og þykist karlinn vita sitt af hverju um fjársjóð sem þar er að finna og var forðum eign frægs sjóræningja. Þeir vinirnir hafa hug á að næla sér í gersemarnar af hafsbotninum en áður en þeir hefjast handa skerst auðmað- ur á eynni í leikinn. DAUÐAGILDRAN. Aðalhlutverk: Faye Dunaway, Frank Langella. Leikstjóri: Rene Clement. Philip Hallard, sem er frábær stærðfræð- ingur, flytur frá USA til Frakklands ásamt konu sinni og tveimur börnum. Honum er ríkt í huga að skrifa bók en ýmis Ijón verða á vegi hans, m.a. ofsóknir óþekktra afla sem síðar kemur í Ijós að eru samtök alþjóðlegra eldflaugasér- fræðinga er vilja notfæra sér vísindaþekkingu hans með því að fá hann til að stunda iðnaðar- njósnir. Hallard hafnar þessu í fyrstu, en sam- tökin kunna ráð sem eiga að fá hann til að skipta um skoðun! Innan tíðar fer lífsþráður hans að líkjast söguþræði í einhverri glæpa- sögunni sem hann hefði sjálfur viljað skrifa. VALACHI-SKJÖLIN. Aðalhlutverk: Charles Bronson, Lino Ventura. Leikstjóri: Terence Young. Joe Valachi hristi heldur betur upp í banda- rfsku samfélagi árið 1963 þegar hann kom fram í sjónvarpi og lýsti mafíuna ábyrga fyrir heilli keðju stórglæpaverka. Charles Bronson leikur hlutverk þessa fyrrverandi mafíu- glæpons sem hafði hlotið hinn svonefnda „dauðakoss" og valdi þá þann kostinn að taka á sig fangelsisdóm, afhjúpa samtökin og hefja nýtt líf. Það var hann sem kom upp um nafn mafíunnar, Costa Nostra og hann hafði verið í nánum tengslum við höfuðpaurana Lucky Luciano og Vita Genovese. Mafían lagði 100.000 dollara til höfuðs honum. "HIGH MELODRAMATIC ENTERTAINMENT!" EIL.yQ*,.*-* “STYLISHLY DIRECTED. AMUSING ALL THE WAY!" Ptayb.y Map-tin, THE-.CATT ' AIVDfO THE f cA^vay jj CHARLES BRONSON i,- \ 3 W A COP... AKILLER... ADEADLINE... 10 *> Midtúfkt í;Ö x\ y; THE CANNOH GROUP. INC. . GOIAN GLOBUS m n« a CHABLES BRQNSON a. J. LEE THOMPSQN . "10 TO MtONIGHT' ' r GRÁA LÓNIÐ. Tveir unglingar, Alice 14 ára og Danny 15 ára, sjá fram á margvíslegan vanda, þegar Alice verður vanfær. Þau telja lausninafólgna í því að forða sér til New York. En þegar þang- að kemur kynnast þau í fyrsta sinn grimmum veruleika. Bíl þeirra er stolið en þegar þau finna þjófinn, sér hann aumur á þeim og tekur þau heim með sér, þar sem hann býr með vændiskonunni, systursinni. Ekki batnarhag- ur unglinganna þegar Alice fæðir barnið. Danny missir vinnuna og þau ákveða að hætta á að fara heim aftur. En rétt fyrir brott- förina gerist hörmulegur atburður. Þjófurinn sem þau búa hjá, ætlar að stela smágjöf handa barni þeirra en er skotinn til bana af lögreglunni. Danny er kærður fyrir þjófnaðinn og leiddur fyrir rétt — og þau verða að játa að það er ekki alltaf besta lausnin að strjúka að heiman. HRINGADROTTINSSAGA. Teiknimynd, gerð eftir sögu J.R.R.Tolkien. Stjórnandi: Ralph Bakshi. /Evintýri J.R.R.Tolkiens um hobbita, álfa, dverga og hinn Myrka Hringadrottin, teljast með hugmyndaríkustu bókmenntum nútím- ans. Upphafið var bókin Hobbit um hið frið- elskandi smáfólk, innblásið æskuglóð og beindi fegrandi Ijósi að lífsháttum hippanna á 7. áratugnum. Hobbit var hin fyrsta þriggja viðamikilla bóka sem segja frá því hvernig fáeinum hraustum einstaklingum tekst að koma í veg fyrir Endalokin með hugrekki sínu, göfgi, fórnarlund og trúmennsku. BAD GEORGIA ROAD. Aðalhlutverk: Gary Lockwood, Carol Lynley. Spennandi og viðburðarrik gamanmynd. Það byrjar allt með því að Molly Golden fær óvæntan arf erfir löngu gleymdan föðurbróð- ur fyrir sunnan. Hún ákveður að flytja. En hún er eftirsótt. Bæði mafían og alríkislögreglan eru á hælum hennar og upphefst hinn æðis- legasti eltingarleikur.

x

Myndmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Myndmál
https://timarit.is/publication/1278

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.