Myndmál - 01.10.1983, Síða 13
PERSÓNUR OG LEIKENDUR:
Daníel Ólafsson: KARL ÁGÚST ÚLFSSON
Þór Magnússon: EGGERT ÞORLEIFSSON
Víglundur verkstjóri: RUNÓLFUR DAGBJARTSSON
Axel bónusvíkingur: EIRÍKUR SIGURGEIRSSON
Ási skipstjóri: SVEINN TÓMASSON
María Víglundsdóttir: GUÐRÚN KOLBEINSDÓTTIR
Sigurður Majones: MAGNÚS S. MAGNÚSSON
Handrit og stjórn: ÞRÁINN BERTELSSON
Framleiðandi: JÓN HERMANNSSON
Kvikmyndataka og klipping: ARI KRISTINSSON
Aðstoðarleikstjóri: SIGURGEIR SCHEVING
Leikmynd: MAGNÚSS. MAGNÚSSON
Förðun og búningar: JÓN KARL HELGASON
Búningar Þórs og Daníels: MARTA BJARNADÓTTIR
Hljóó: JÓN HERMANNSSON
Höfundartónlistar: SIGFÚS HALLDÓRSSON, TAPPI
TIKARRASS, ÁSI í BÆ, SVAVAR BENEDIKTSSON,
GUÐMUNDUR RÚNAR LÚÐVÍKSSON, ODDGEIR
KRISTJÁNSSON, ÁGÚST PÉTURSSON.
Tónlistarráðgjöf: MEGAS
Aðstoð viö kvikmyndatöku: ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
JÓN KARL HELGASON
Aðstoð við hljóðupptöku: JÓHANNES JÓNSSON
Asi skipstjóri telur Daníel geta bjargað fiskiriinu með berdreymi.
Sveinn Tómasson og Eggert Þorleifsson í hlutverkum sinum í Nýtt Líf.
Hvemig fannst þér sjálfum
hafa til tekist með þessa mynd?
Manni þykir auðvitað vænt um
öll börnin sin. En ég held að þessi
mynd hafi bæði verið af vanefn-
um gerð og vanhugsuð, af mér og
öðrum. En það var ánægjulegt að
takast á við þetta verkefni. Fólki
fannst á sinum tíma þetta vera
eitthvað rosalega stórt þó að sú
mynd hafi í rauninni kostað skít á
Svaðilfarir íslenska kvikmvnda-
tökumannsins eru oft með ólíkind-
um. HérmyndarAri Kristinsson
og útkomuna má m.a. sjá á forsíðu
þessa blaðs.
priki. Allavega veit ég til þess að
einhverjir hafi séð hana sér til
ánægju en að öðru leyti er ég ekki
mikið að pæla í henni þessa dag-
ana.
Stórmerkilegt!
En hvað um leikritagerð Sjón-
varpsins? Er þar ekki eitthvað
sem þarf að taka í gegn?
Ef að ríkið getur ekki séð sóma
sinn í því að reka Ríkisútvarpið í
heild, þar með talið Sjónvarpið,
með myndarbrag þá verður að
endurskoða málin og kannski
loka stofnuninni á meðan. Ég sé
ekki að það þjóni neinum tilgangi
að hafa menn á fullum launum
uppí Sjónvarpi, við að bíða eftir
því að peningar fáist til að vinna
einhver verkefni. Sjónvarpinu
hefur verið haldið í þvílíku fjár-
svelti að það er til háborinnar
skammar. En ekki er beinlínis við
þá að sakast sem stjórna Sjón-
varpinu. Ef þeir fengju einhverja
peninga til að spila úr væri hægt
að athuga hvort þeir væru starf-
inu vaxnir. Þetta ástand er öllum
til skammar og það er brýn nauð-
syn á því að allar stéttir sem af-
skipti hafa af Sjónvarpinu, kvik-
myndagerðarmenn, leikarar og
aðrir, taki höndum saman og
reyni að koma þessari stofnun á
lappirnar. Það er fyrirsjáanlegt
að sennilega þyki nóg að gert að
byggja þetta útvarpshús sem
þjóðin er að býsnast yfir. Ég hef
aldrei vitað til þess að það væru
reknar útvarps- og sjónvarps-
stöðvar í nokkru landi, án þess að
það þætti sjálfsagt mál að þær
væru í húsnæði. Þetta þykir aiveg
stórmerkilegt hérna og meira að
segja umdeilt, hvort þessi starf-
semi eigi að hafa þak yfir sér.
Efnisemer
fcJkinærri
Aörir sálmar. Þessi bráð-
skemmtilega mynd sem þú hefur
sent frá þér. Hvers vegna þetta
efni?
Sko, sjáðu til. Allur almenn-
ingur hefur tekið þessari nýbyrj-
uðu kvikmyndagerð vel og látið
Karl Ágúst Úlfsson í hlutverki sínu
í Nýtt Líf.
sig hafa það að sjá hverja mynd-
ina á fætur annarri. Það þykir
ekkert tiltökumál að þriðjungur
eða jafnvel helmingur þjóðarinn-
ar komi og sjái íslenskar bíó-
myndir. Kvikmyndagerðarmenn
mættu vera býsna þakklátir öll-
um almenningi fyrir þessar und-
irtektir. Mig langaði til að gera
einhverja mynd með efni sem
stendur fólki nærri. Það eru
margar þúsundir sem vinna við
þessar undirstöðuatvinnugreinar,
fiskveiðar og fiskiðnað og ég vildi
koma inná þessi mál, ekki bein-
línis til að gera einhverskonar út-
tekt á þessum starfsgreinum,
heldur að láta kvikmyndina og
fólkið í landinu mætast. Mér
fannst þetta góð aðferð, Nýtt Líf
er létt gamanmynd sem byggir að
töluverðu leyti á minni alltof
stuttu reynslu af fiskvinnu, eitt
sumar í Eyjum. Vestmannaeyjar
urðu fyrir valinu vegna þess að
þaðan átti ég þessar ágætu minn-
ingar og vegna þess að Vest-
mannaeyjar eru sú verstöð sem
telst hreinræktað fiskipláss,
þ.e.a.s. þarna er eingöngu lifað á
fiskveiðum en ekki eins og á mörg-
um öðrum fiskveiðistöðum sem
eru líka þjónustumiðstöðvar fyrir
landbúnaðarhéruðin umhverfis.
Skammdegi
Hvað með framtíðarverkefni?
Það er nú fyrst að athuga hvort
maður lifir þessa mynd af . . .
Þessi bransi er eiginlega full
spennandi. En setjum svo að allt
fari vel og auðvitað trúir maður
því í lengstu lög, þá hefur svona
Eggert Þorleifsson „meö allt á hreinu” ásamt blómarós úr Eyjum...
Hljómsveitin Tappi Tikarrass er meóal þeirra fjölmörgu sem sjá um I
tónlistarveitingar í myndinni.
MYNDMÁL f3