Fréttablaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 04.04.2018, Blaðsíða 14
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR 588 80 40 www.scanver.is RAFMÓTORAR Róbert Wessman og viðskiptafé­ lagar hans gengu frá greiðslu upp á 1,4 milljarða króna til Matt híasar H. Johannessen í byrjun síðustu viku, samkvæmt heimildum Markaðarins. Hæstiréttur dæmdi í febrúar f y r r ve ra n d i vi ð s k i p t a f é l a g a Matthíasar, þá Róbert, Árna Harð­ arson og Magnús Jaroslav Magnús­ son, til þess að greiða honum 640 milljónir króna, auk vaxta og dráttarvaxta, í skaðabætur fyrir að hafa hlunnfarið hann í við­ skiptum með óbeinan eignarhlut í lyfjafyrirtækinu Alvogen. Staðfesti Hæstiréttur dóm hér­ aðsdóms um að ráðandi hluthafar í félaginu Aztiq Pharma Partners hefðu – með sölu á sænsku dótt­ urfélagi sem hélt með óbeinum hætti utan um 30 prósenta hlut í Alvogen á undirverði – tekið hags­ muni einstakra hluthafa fram yfir hagsmuni Matthíasar og bakað sér þannig skaðabótaskyldu gagnvart honum. Sænska dótturfélagið var um mitt ár 2010 selt fyrir í mesta lagi 1,5 milljónir króna og gegn ógreiddri viðbótargreiðslu þó svo að verðmæti þess hafi numið nærri 1,7 milljörðum króna á sama tíma. – kij Hafa greitt Matthíasi 1.400 milljónir markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Hagnaður Kerfélagsins, eiganda Kersins í Grímsnesi, var ríflega 58 milljónir króna í fyrra og næstum tvöfaldaðist frá árinu 2016 þegar hann var 30 milljónir. Þá námu tekjur félagsins 113 milljónum og jukust um meira en 60 prósent á milli ára. Þetta má lesa út úr nýjum árs­ reikningi Kerfélagsins sem er í jafnri eigu Óskars Magnússonar, Ásgeirs Bolla Kristinssonar, Jóns Pálma­ sonar og Sigurðar Gísla Pálmasonar. Gjaldtaka við Kerið hófst sumarið 2013 og er aðgangseyrir þar nú 400 krónur með virðisaukaskatti. Í sam­ tali við Fréttablaðið fyrir ári sagði Óskar, stjórnarformaður Kersins, að um 150 þúsund manns hefðu heim­ sótt eldgíginn á árinu 2016. Miðað við mikla tekjuaukningu félagsins í fyrra, þegar það rukkaði gesti um 113 milljónir í aðgangseyri, má því ætla að samtals um 240 þúsund hafi þá heimsótt Kerið. Hluthafar Kersins hafa hingað til ekki greitt sér neinn arð út úr félaginu. Óskar hefur sagt að engin ákvörðun um arðgreiðslu hafi verið tekin og vísað til þess að félagið vilji eiga fyrir þeim tugmilljóna fram­ kvæmdum sem það hefur ráðist í og áformaðar eru. – hae Eigendur Kersins hagnast um nærri 60 milljónir Gjaldtaka við Kerið í Grímsnesi skilaði Kerfélaginu samtals 113 milljónum í tekjur í fyrra. Fréttablaðið/Ernir Nýtt öflugt bókhaldskerfi í skýinu frá manninum sem færði okkur Dynamics Ax Prófaðu frítt í 30 daga www.uniconta.is Lagast að þínum þörfum Erik Damgaard Stofnandi Uniconta Andstaða innan stjórn­kerfisins og á meðal sumra ráðherra ríkis­stjórnarinnar réð mestu um að fallið var frá áformum um að aðgreina Valitor Holding, dótturfélag Arion banka, frá bankanum, áður en kemur að útboði og skráningu, þannig að bréf kortafyrirtækisins yrðu greidd út í arð til hluthafa, samkvæmt heimildum Markaðarins. Við þá ráðstöfun hefðu vogunar­ sjóðir og Goldman Sachs, sem eiga um 32 prósenta hlut í bankanum, jafnframt fengið kauprétt að 21,4 prósenta hlut til viðbótar í Valitor. Einstakir ráðherrar, ásamt ýmsum embættismönnum, mátu það sem svo að slík arðgreiðsla væri síður en svo til þess fallin að auka traust á fjármálakerfinu og færi mögulega gegn ákvæðum stöðugleikaskilyrða Kaupþings. Skýr afstaða Bankasýslu ríkisins, sem lagðist eindregið gegn áformunum og vildi fremur selja Val­ itor í opnu söluferli, hafði auk þess sín áhrif, jafnvel þótt stofnunin sé ekki lengur á meðal hluthafa bankans, en ríkið seldi sem kunnugt er 13 pró­ senta hlut sinn í lok febrúar. Kaupþing, sem hyggst selja allt að 55 prósenta hlut sinn í bankanum í útboði síðar á árinu, taldi sér ekki fært að fara gegn afstöðu stjórn­ valda í þessu máli en fulltrúar þess vinna núna meðal annars að því að ná samkomulagi um endurskoðun á forkaupsrétti ríkisins við opið útboð. Að öðrum kosti er talið að forkaups­ rétturinn, sem virkjast ef Kaupþing selur bréf sín undir genginu 0,8 miðað við eigið fé, muni valda óvissu og aftra fjárfestum frá þátttöku í útboðinu og þar með koma í veg fyrir að raunverulegt markaðsverð á bankanum yrði leitt fram. Á meðal þeirra sem hafa komið að þeirri vinnu fyrir ríkið að undan­ förnu er Bretinn Michael Ridley, fyrr­ verandi bankamaður hjá JP Morgan, sem veitti stjórnvöldum ráðgjöf við fjármálaáfallið 2008 samkvæmt heimildum Markaðarins. Mun hann starfa tímabundið að málefnum sem tengjast fjármálakerfinu á Íslandi, en hann var fenginn að þeirri vinnu einkum fyrir tilstuðlan Lilju Alfreðs­ dóttur, sem situr í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins. ríkið fær minna í sinn hlut Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðasta mánuði hefur stjórn Arion banka ákveðið að leggja áform um að aðgreina Valitor frá bankanum til hliðar. Afar ólíklegt þykir að þau áform verði endurvakin eftir skráningu. Meirihluti hluthafa, vogunarsjóðir og Kaupþing, hafði sóst nokkuð eftir því að kortafyrir­ tækið yrði aðskilið frá samstæð­ unni. Fyrrnefndur kaupréttur, sem samið var um samhliða því að gengið var frá kaupum fjárfestahópsins á tæplega 30 prósenta hlut Kaupþings í Arion í mars í fyrra, virkjast aðeins komi til þess að bréfin í kortafyrir­ tækinu greiðist út til hluthafa með arðgreiðslu eða öðrum sambæri­ legum hætti. Samkvæmt heimildum Markaðarins mun kaupréttur sjóð­ anna renna út innan fárra mánaða. Sá sem talaði einkum fyrir því af hálfu vogunarsjóðanna að Valitor yrði aðgreint frá bankanum fyrir útboðið var maður að nafni Pierre Bour. Hann var meðeigandi Attestor Capital þar til nýlega er hann lét af störfum. Að sögn kunnugra er líklegt að ríkið fái að endingu lægra stöðug­ leikaframlag í sinn hlut, nú þegar fallið hefur verið frá áformum um að greiða Valitor út í arð til hluthafa. Afar ósennilegt er að raunveru­ legt markaðsvirði Valitor verði að fullu verðlagt þegar kortafyrirtækið verður selt, sem hluti af samstæð­ unni, í fyrirhuguðu útboði. Ljóst sé að Kaupþing gæti fengið hærra verð fyrir óbeinan eignarhlut sinn í Val­ itor með því að aðgreina fyrst fyrir­ tækið frá bankanum, „vinna með það“ eitt og sér á allra næstu árum og auka þannig virði þess. Markaðsvirði Valitors er töluvert hærra en sem nemur virði fyrirtækis­ ins í bókum Arion banka. Samkvæmt nýlegu verðmati greiningarfyrir­ tækisins IFS, sem byggist á margföld­ urum erlendra samanburðarfélaga, er virði eigin fjár Valitors metið á um 30,6 milljarða króna. Til saman­ burðar er eigið fé kortafyrirtækisins bókfært á um 16,3 milljarða króna í bókum Arion. Í afkomuskiptasamningi stjórn­ valda og Kaupþings er sérstaklega gert ráð fyrir því, sem lið í því að fá sem hæst verð fyrir hlut Kaupþings í Arion banka, að hægt sé að aðgreina einstakar eignir eða eignarhluti bankans frá honum í aðdraganda og undirbúningi að sölu hlutabréfa. Tryggt er í samningnum að hann nái einnig utan um hinar aðgreindu eignir, svo sem Valitor. Ríkið myndi þannig njóta góðs af sölu og virðis­ aukningu kortafyrirtækisins í formi hærra stöðugleikaframlags, þótt félagið yrði aðgreint frá bankanum með sérstakri arðgreiðslu. Nokkurrar óánægju hefur gætt á meðal fulltrúa Kaupþings og vog­ unarsjóðanna að ekki hafi verið gripið til nægilega markvissra aðgerða á undanförnum misserum til þess að draga úr rekstrarkostn­ aði og bæta arðsemi Arion banka í aðdraganda hlutafjárútboðsins. Þrátt fyrir að rúmt ár sé liðið frá því að sjóðirnir og Goldman eignuðust hlut í bankanum hafa þeir haft lítil sem engin áhrif á stjórn hans. Aðeins Attestor Capital og Goldman fara með atkvæðarétt í bankanum en atkvæðaréttur hinna sjóðanna er í höndum Kaupskila, dótturfélags Kaupþings. hordur@frettabladid.is kristinningi@frettabladid.is Andstaða stjórnvalda stoppaði arðgreiðslu Kaupþing og vogunarsjóðir hættu við að greiða Valitor út í arð vegna andstöðu við þau áform innan stjórnkerfisins og á meðal einstakra ráðherra. Slík ráðstöfun væri engu að síður líkleg til að skila ríkinu hærra stöðugleikaframlagi frá Kaupþingi. róbert Wessman, forstjóri lyfjafyrir- tækisins alvogen Valitor er verðmætasta dótturfélag arion. Fréttablaðið/Eyþór 16,3 milljarðar er eigið fé Valitors Holding bókfært á í reikningum arion banka. 4 . a p r í l 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u r2 markaðurinn 0 4 -0 4 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 5 9 -5 6 5 8 1 F 5 9 -5 5 1 C 1 F 5 9 -5 3 E 0 1 F 5 9 -5 2 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.